Fréttablaðið - 24.07.2014, Page 16
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
NÁTTÚRA „Þessar látlausu rign-
ingar og sólarleysi gera berjun-
um ekki gott. Ég var bjartsýnn í
vor vegna þess hversu maímán-
uður var fallegur og hlýr en mér
sýnist að hér í kringum mig, eins
og í Elliðaárdalnum, hafi lítið
orðið úr þessum fallegu sætu-
koppum sem við sáum í vor.“
Sveinn Rúnar Hauksson, lækn-
ir og berjavinur, segir grænjaxla
umhverfis höfuðborgarsvæðið
litla um þessar mundir. „Ég er
þó sannfærður um að sunnan-
lands og vestanlands verði falleg
ber en það þarf að leita að þeim.
Við Reykvíkingar þurfum að
fara lengra til að komast í mylj-
andi berjamó. Fólk sem þekkir
til mun samt finna ber hér líka
án þess að fara langt. Það stefn-
ir hins vegar í gott berjaár fyrir
norðan og austan eins og í fyrra.
Það varð viðsnúningur fyrir
austan í fyrra eftir erfiða berja-
sprettu árin þar á undan. Frétt-
irnar þaðan eru kannski ekki
alveg eins góðar núna en þær
lofa góðu.“
Huldu Magneu Jónsdóttur,
bónda að Ytri-Tjörnum í Eyja-
firði, líst vel á horfurnar á sínum
heimaslóðum. „Ég fór um miðja
síðustu viku út í Dalvík og kíkti í
Múlann. Það lítur afskaplega vel
út. Það var hægt að tína þrosk-
uðustu berin en það er sennilega
um hálfur mánuður þar til hægt
verður að byrja að tína eitthvað
að ráði. Magnið af krækiberjum
er gríðarlegt og það er einnig
mikið af aðalbláberjum og blá-
berjum.“
Hún segir að það sem hafi
glatt hana mest hafi verið að
ekki sáust nein merki eftir birki-
feta. „Það sást ekkert á lyng-
inu. Hann étur annars allt og þá
koma engin ber. Mér sýnist útlit-
ið alveg frábært.“
Sveinn Rúnar kveðst ekki hafa
neina trú á að hægt verði að fara
að tína fyrir sunnan fyrr en í
lok ágúst. „Berjatíminn okkar
er í ágústlok og fyrstu vikuna í
september fram í næturfrost en
krækiber eru góð í saft þótt frost
hafi verið í tvær vikur.
ibs@frettabladid.is
Berjasprettan sögð
góð fyrir norðan
Sennilega er hálfur mánuður þar til hægt verður að tína ber að einhverju ráði
norðanlands. Fréttir um berjasprettu að austan lofa einnig góðu. Lítið orðið úr
sætukoppunum sem sáust kringum höfuðborgarsvæðið í vor vegna sólarleysis.
KRÆKIBER Gríðarlega mikið er af krækiberjum fyrir norðan, að sögn Huldu Magneu Jónsdóttur, bónda að Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði. Mikið er af aðalbláberjum og bláberjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fólk sem
þekkir til
mun samt
finna ber hér
líka án þess
að fara langt.
Sveinn Rúnar
Hauksson,
læknir og berjavinur
Fimm sinnum meiri líkur eru á að
ferðatöskur skili sér ekki á áfanga-
stað þegar ferðast er innan Evrópu
en í Asíu, að því er kemur fram á
vef Túrista, turisti.is. Þar segir að
níu af hverjum þúsund ferðatösk-
um sem fara í gegnum evrópskar
flughafnir sé stolið, þær týnist eða
finnist löngu síðar.
Þetta er sagt mun meira en
gengur og gerist á flugvöllum í
Asíu og Norður-Ameríku og er
vitnað í skýrslu fyrirtækisins
SITA. Í Asíu týnast tvær af hverj-
um þúsund töskum en í Norður-
Ameríku þrjár af þúsund. Á heims-
vísu fækkaði þeim tilfellum sem
ferðatöskur glötuðust um 17,2 pró-
sent en á sama tíma fjölgaði flug-
farþegum um 5,1 prósent.
Þegar SITA hóf að taka saman
upplýsingar um týndan farangur
flugfarþega árið 2007 þurftu um
17 af hverjum þúsund flugfarþeg-
um í Evrópu að sætta sig við að
fara tómhentir út úr flugstöðinni.
Ástandið nú er nær helmingi betra
en er enn mun verra en það var í
Norður-Ameríku og Asíu árið 2007.
Túristi greinir jafnframt frá
því að nokkuð sé um að íslenskum
tryggingafélögum berist tilkynn-
ingar um þjófnað úr ferðatöskum
sem hafa verið innritaðar í flug. Á
síðasta ári skiptu tilfellin nokkr-
um tugum. Ekki er hægt að greina
mun á fjölda þeirra eftir því hvort
flogið er til og frá Íslandi eða milli
tveggja erlendra flugvalla.
- ibs
Níu af hverjum þúsund töskum skila sér ekki:
Líklegast að taskan
glatist í Evrópu
Á FÆRIBANDINU Átta af hverjum tíu töskum sem ekki skila sér á farangursbandið hafa
ekki komist í sömu vél og eigandinn, að því er segir á vefnum turisti.is. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Töfflur eru sérstaklega varasam-
ar við akstur og háir hælar fylgja
í kjölfarið samkvæmt niðurstöðum
erlendra rannsókna, að því er Sig-
rún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðing-
ur í forvörnum hjá Vátrygginga-
félagi Íslands, greinir frá. Hún
segir að þegar ekið sé í töfflum eða
háhæluðum skóm sé töluverð hætta
á að slíkur skóbúnaður flækist fyrir
þegar verið er að færa fætur á milli
pedala. Skórnir geti farið undir
pedal ana eða runnið til á þeim.
Sigrún bendir á að samkvæmt
niðurstöðum könnunar sem gerð
var í Bretlandi bendi tölur til þess
að slíkur skóbúnaður hafi komið við
sögu í 1,4 milljónum tilfella þar sem
ökumenn sögðu að mjög litlu munaði
að umferðarslys hefði orðið. „Það er
ekkert sem segir að við séum eitt-
hvað betri en aðrar þjóðir í þessum
efnum. Opnir sandalar, sem eru sér-
staklega vinsælir hjá yngra fólki,
flækjast til dæmis ótrúlega mikið
fyrir þegar verið er að færa fætur
á milli pedala.“
Að sögn Sigrúnar eru full ástæða
til að huga að því hvort skór séu
hentugir til aksturs eða ekki. Séu
skór til daglegs brúks ekki hent-
ugir til aksturs megi hafa aukaskó
í bílnum.
Hún getur þess jafnframt að í
Frakklandi hafi hæstiréttur dæmt
konu fyrir að vera í háhæluðum
skóm er hún varð völd að slysi þar
sem barn lést. - ibs
Skóbúnaður hefur áhrif á umferðaröryggi:
Sandalar og háir
hælar varasamir
VARASAMUR SKÓBÚNAÐUR Sandal-
arnir geta runnið til eða farið undir
pedalana.
Þeir sem skoða þvottaleiðbeiningar á sundfatnaði sínum komast í mörgum
tilfellum að því að mælt er með handþvotti. Auk þess er oft ráðið frá því að
setja sundfatnaðinn í þeytivindu eða þurrkara. Sé farið eftir þessum ráðum
endist sundfatnaðurinn betur.
Á vef norska ríkisútvarpsins er haft eftir sérfræðingi í neytendamálum
að skynsamlegt sé að þvo bikiní og annan sundfatnað varlega upp úr volgu
vatni með fljótandi þvottaefni í og skola vel.
Sérfræðingurinn segir mikilvægt að láta ekki sundfatnað liggja í bleyti.
Í lagi er að hengja sundfötin til þerris úti en helst ekki láta sól skína á þau
því þá er hætta á að þau upplitist. - ibs
Farið eftir leiðbeiningum um þvott á sundfatnaði:
Forðist að þurrka
sundföt í sólskini
Betra verð allt árið
Sjö golfhótel í boði í grennd við Gatwick.
Sendið okkur fyrirspurn á bse@mi.is eða hringið í 896-2245.
Skoðið heimasíðu okkar www.betriferdir.is
London Golf
5 stjörnur í gistingu, fæði og
ótakmörkuðu golfi
11 dagar 30. sept – 11. okt.
Fararstjóri Björn Eysteinsson.
10 dagar 11. okt. – 21. okt.
Fararstjóri Jón Karlsson, golfkennari, sem býður upp
á kennslu allan tímann.
Skoðið og bókið á www.betriferdir.is
La Sella*****