Fréttablaðið - 24.07.2014, Page 38
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30
„Hátíðin verður keyrð á svipuð-
um nótum og undanfarin ár með
fernum tónleikum,“ segir Sigur-
geir Agnarsson glaðlega þegar
hann er inntur frétta af Reyk-
holtshátíðinni sem hefst á föstu-
dagskvöld og stendur fram á
sunnudag. Sigurgeir er listrænn
stjórnandi hátíðarinnar annað
árið í röð. „Maður reynir að búa
til prógramm sem höfðar til fólks
og er spennandi,“ segir hann og
nefnir fyrst glænýtt verk eftir
Huga Guðmundsson sem hátíðin
pantaði. Það nefnist Söngvar úr
Hávamálum og verður á lokatón-
leikunum á sunnudag. „Það geng-
ur vel hjá Huga, hann er nýbúinn
að fá þriggja ára starfslaun hjá
danska ríkinu,“ bætir hann við til
fróðleiks og heldur svo áfram að
lýsa dagskránni.
„Þær Steinunn og Hanna Dóra
eru með söngtónleika á laugar-
deginum klukkan 17 sem bera
undirtitilinn þjóðlegar ástríður.
Þær eru þar með spænsk og ensk
þjóðlög, líka nokkur eftir Grieg
og síðan íslensk einsöngslög í
útsetningum eftir Þórð Magn-
ússon, þar fáum við nýjar hlið-
ar á lögunum. Ef fólk vill heyra
rómantíska músík þá ætti það að
mæta á laugardagskvöldið, þá er
tónlist eftir Grieg og Smetana.
Þar vantar ekki ástríðurnar.
Á opnunartónleikunum er horft
í austurátt, að sögn Sigurgeirs.
„Þar er verk eftir Prokofiev, són-
ata fyrir tvær fiðlur, virkilega
skemmtileg,“ lýsir hann. „Líka
strengjakvartett eftir Sjostako-
vits, dálítið ábúðarfull tónsmíð
og síðan er verið að flytja verk
eftir Vasks, hann er Letti, verður
sjötugur á næsta ári. Það er sterk
músík og áhrifamikil – dálítið
mínímalísk, svolítið poppuð og
grípandi. Fólk þarf ekki að vera
með áunninn smekk á klassískri
tónlist til að njóta hennar. Ekki
má heldur gleyma að geta hins
ægifagra Píanókvintetts Césars
Franck sem er á lokatónleikunum
á sunnudag klukkan 16.“
Þetta er í átjánda sinn sem
Reykholtshátíðin er haldin. Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir stýrði
henni fyrstu fjórtán árin og svo
Auður Hafsteinsdóttir í tvö ár.
„Þetta er gaman og það er í mörg
horn að líta,“ segir Sigurgeir.
„Maður reynir að vera tímanlega
í að bóka fólk og leggja línurnar
með prógrammið. Það hefur allt-
af verið góð mæting í Reykholti,
enda upplagt fyrir fólk sem vill
skreppa eitthvað út úr bænum að
bruna þangað og skoða sig aðeins
um, það er ekki nema klukkutíma
akstur. Svo er auðvitað fullt af
fólki búsett nær og sumarhúsa-
byggðir rétt hjá.“ gun@frettabladid.is
Ábúðarfull tónlist og
þjóðlegar ástríður
Á Reykholtshátíð um helgina verða fernir tónleikar, hverjir öðrum áhugaverðari,
ef marka má Sigurgeir Agnarsson sellóleikara og listrænan stjórnanda hennar.
Á ÆFINGU Sif Margrét Tulinius, Lonneke van Straalen, Domenico Codispoti, Jan Bastian Nevel, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Ari
Þór Vilhjálmsson. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Ari Þór Vilhjálmsson fiðla,
Domenico Codispoti píanó,
Hanna Dóra Sturludóttir mezzó-
sópran, Jan Bastianan Neven
selló, Lonneke Van Straalen fiðla,
Sif Margrét Tulinius fiðla, Sigur-
geir Agnarsson selló, Steinunn
Birna Rangarsdóttir píanó og
Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla.
➜ Flytjendur á
Reykholtshátíð
„Glæpasögur eru stór hluti af því
sem fólk les og það er ekki endilega
neitt auðveldara að þýða glæpasögur
en aðrar bókmenntir,“ segir Magnea
J. Matthíasdóttir, formaður Banda-
lags þýðenda og túlka, spurð hvað
komi til að ákveðið hafi verið að
veita sérstök verðlaun fyrir þýðingu
á glæpasögu. „Okkur fannst tíma-
bært að veita þeim dálitla athygli.
Það eru fjölmargir þýðendur sem
vinna við það að þýða glæpasögur
og margir þeirra gera það mjög vel.“
Magnea segir að þrátt fyrir að
glæpasögur njóti mikilla vinsælda
lesenda þá þyki sú bókmenntagrein
enn ómerkilegri en margar aðrar.
„Það er ekki alveg réttlátt því þetta
eru ekki bara bækur sem maður les
sér til afþreyingar. Oft taka þær á
samfélagsmálum og eitt einkenni
góðra glæpasagna er að þær tala
beint inn í nútímann eins og öll góð
bókmenntaverk.“
Að verðlaununum standa, auk
Bandalags þýðenda og túlka, Hið
íslenska glæpafélag og glæpasagna-
hátíðin Iceland Noir og verða þau
afhent í fyrsta sinn á hátíðinni Ice-
land Noir í Norræna húsinu, þann
22. nóvember næstkomandi. Þær
glæpasögur sem gefnar hafa verið
út síðan í júní í fyrra voru gjald-
gengar til tilnefningar en dómnefnd,
skipuð þeim Katrínu Jakobsdótt-
ur, alþingismanni og fyrrverandi
menntamálaráðherra, Kolbrúnu
Bergþórsdóttur, blaðamanni og
bókmenntagagnrýnanda, Magneu
J. Matthíasdóttur, Quentin Bates,
rithöfundi og þýðanda, og Ragnari
Jónassyni rithöfundi, valdi fimm
bækur á listann yfir tilnefningar til
Ísnálarinnar.
„Þetta er búinn að vera ansi stíf-
ur lestur,“ segir Magnea. „Það hefur
komið út alveg óhemjumagn af
glæpasögum á þessu tímabili, miklu
meira en mig óraði fyrir þegar við
byrjuðum. En þetta er búið að vera
mjög skemmtilegt og gleðilegt að
geta vakið athygli á þýðingum þess-
ara bóka sem yfirleitt eru ekki til-
nefndar til annarra verðlauna eða
mikið hampað.“ - fsb
■ Að gæta bróður míns (Veljeni vartija) eftir Antti Tuomainen. Sigurður
Karlsson þýddi.
■ Brynhjarta (Panserhjerte) eftir Jo Nesbø. Bjarni Gunnarsson þýddi.
■ Hún er horfin (Gone Girl) eftir Gillian Flynn. Bjarni Jónsson þýddi.
■ Manneskja án hunds (Människa utan hund) eftir Håkan Nesser. Ævar
Örn Jósepsson þýddi.
■ Sannleikurinn um mál Harrys Quebert (La Vérité sur l’affaire Harry
Quebert) eftir Joël Dicker. Friðrik Rafnsson þýddi.
Þessir eru tilnefndir til Ísnálarinnar
Fimm þýðingar á glæpasögum
tilnefndar til Ísnálarinnar
Tilnefningar til nýrra þýðingaverðlauna, Ísnálarinnar, voru tilkynntar í gær.
Verðlaunin eru fyrir bestu þýðingu á glæpasögu og verða veitt í haust.
MAGNEA J. MATTHÍASDÓTTIR „Gleðilegt að geta vakið athygli á þýðingum
þessara bóka sem yfirleitt eru ekki tilnefndar til annarra verðlauna eða mikið
hampað.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hugrún Þorsteinsdóttir, arki-
tekt og listgreinakennari, gengur
með gestum um höggmyndagarð
Ásmundarsafns í kvöld. Í tilefni af
göngunni verður opið í Ásmundar-
safni til klukkan 22. Þar stendur
yfir sýningin Ásmundur Sveinsson
– Meistarahendur þar sem gefur
að líta verk sem spanna langan
feril listamannsins.
Gangan er hluti af dagskrá
Listasafns Reykjavíkur, Borgar-
bókasafns Reykjavíkur og Borgar-
sögusafns Reykjavíkur sem bjóða
upp á göngur á fimmtudagskvöld-
um í sumar.
Leiðsögnin hefst klukkan 20 við
inngang Ásmundarsafns að Sig-
túni. Allir eru velkomnir og þátt-
taka í göngunni er ókeypis.
Gengið um
höggmyndagarð
Opið er í Ásmundarsafni til klukkan tíu í kvöld.
ÁSMUNDARSAFN Þar stendur nú yfir sýningin Ásmundur Sveinsson– Meistarahendur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
MENNING