Fréttablaðið - 07.08.2014, Síða 12
7. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Amerískir með klakavél
án klakavélar
kr. 179.900
með klakavél
kr. 399.900
KYNNINGARVERÐ
STJÓRNSÝSLA Átta fornleifafræð-
ingar gagnrýna vinnubrögð Minja-
stofnunar harðlega, sem þeir segja á
skjön við bæði stjórnsýslu- og sam-
keppnislög.
Dr. Bjarni F. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fornleifafræðistofn-
unar, segir í samtali við Fréttablað-
ið að Minjastofnun sé í „Indiana
Jones-leik“ hér og þar um landið.
Fornleifafræðingarnir átta segja
Minjafræðistofnun taka að sér verk-
efni við fornleifarannsóknir sem
stofnunin eigi aðeins að hafa eftir-
lit með og gefa leyfi fyrir, auk þess
sem stofnunin sé umsagnaraðili í
skipulagsmálum og málum er lúta
að mati á umhverfisáhrifum. Þessi
verkefni eigi ekki að vera á hendi
stofnunarinnar heldur sjálfstætt
starfandi fornleifafræðinga.
Bjarni segir að það geti vart tal-
ist eðlileg stjórnsýsla að Minjastofn-
un taki að sér verkefni sem eigi að
vera sinnt af fornleifafræðingum
á markaði, enda geti hún ekki haft
eftirlit með sjálfri sér. „Þetta hefur
að okkar mati þær afleiðingar að
minjavarslan fer marga áratugi
aftur í tímann. Minjastofnun getur
ekki gert neinar kröfur til sjálfrar
sín, það er engin skýrslugerð, það
er engin eftirfylgni, og hún hefur
eftirlit með sjálfri sér sem er öllum
skaðlegt,“ segir Bjarni.
Í grein sem hópurinn birtir á Vísi
í dag segir að vitað sé um dæmi þar
sem framkvæmdaaðilum hafi verið
mismunað án nokkurrar sýnilegrar
ástæðu. Sumir hafi fengið þjónustu
frá Minjastofnun sér að kostnaðar-
lausu en aðrir hafi þurft að ráða til
sín þjónustu fornleifafræðinga á
markaði og greitt fullt og eðlilegt
verð fyrir. Þegar sams konar aðil-
ar, sams konar mál, fái mismun-
andi meðferð hjá opinberri stofn-
un sé ekki gætt að jafnræðisreglu
stjórnsýslulaga. Þeir segja að ef
fram heldur sem horfir muni þessi
stefna Minjastofnunar gera út af við
íslenska fornleifafræði eins og hún
hefur þróast síðastliðna áratugi.
Kristín Huld Sigurðardóttir, for-
stöðumaður Minjastofnunar, vildi
ekki tjá sig um málið þegar eftir því
var leitað. fanney@frettabladid.is
Segja Minjastofnun
fara á skjön við lög
Átta fornleifafræðingar gagnrýna Minjastofnun Íslands harðlega. Stofnunin sinni
verkefnum sem eigi að vera á hendi sjálfstætt starfandi fornleifafræðinga án þess
að taka gjald fyrir. Opinberar stofnanir geti ekki haft eftirlit með sjálfum sér.
FJÁRHÚSA-
RÚST Fornleifa-
fræðingarnir
segja að hætta
sé á að minjav-
arsla fari marga
áratugi aftur í
tímann.
MYND/AÐSEND
BANDARÍKIN George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sat á
meðal eiginkvenna afrískra þjóðarleiðtoga á makaráðstefnu sem fram
fór í gær. Verndari ráðstefnunnar var Michelle Obama, forsetafrú
Bandaríkjanna, og Laura Bush, fyrrverandi forsetafrú. Á ráðstefn-
unni var fjallað um áhrif maka á stjórnarhætti þjóðarleiðtoga. Einnig
var rætt um samstarf opinberra aðila og einkaaðila á sviði menntunar,
heilbrigðismála og efnahagsmála. - jhh
George W. Bush yngri fundaði með afrískum áhrifakonum:
Makar þjóðarleiðtoga hittust
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Vel fór á með forsetanum fyrrverandi og eiginkonum
afrískra þjóðarleiðtoga á fundinum í gær. NORDICPHOTOS/AFP
DÝRALÍF Endur eiga verulega erfitt
uppdráttar á Reykjavíkurtjörn og
ljóst að flestar andartegundir deyja
út ef ekkert er að gert.
Þetta segir Ólafur Karl Nielsen,
fuglafræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun Íslands.
Hann hefur nýlokið talningu þar
og þó að hún komi aðeins skár út en
í fyrra er ekki mikið tilefni til kæti.
Sex andartegundir verpa á Tjörn-
inni en þar af eru þrjár við það að
deyja út; duggönd, gargönd og æður.
Ástæðurnar eru margar, til dæmis
afrán frá hrafni og köttum, mávar
gleypa síðan unga, varpland skrepp-
ur saman í Vatnsmýrinni og svo
er fæðuskortur og samkeppni við
aðgangsharða mávana erfið.
Gleðitíðindin eru þó þau að urtönd
hefur orpið á Tjörninni en það er í
fyrsta sinn sem það gerist. Hún er
þó árlegur gestur þar að vetrartíma.
Ólafur Karl segir þó að helstu
gleðitíðindin séu þau að borgar-
yfirvöld hafi látið af afskiptaleysis-
stefnu sinni í þessum málum en
hún myndi ganga af þessu fuglalífi
dauðu. Þessi nýja stefna birtist til
dæmis í því að þrjátíu æðarungum
var sleppt í Vatnsmýrinni í sumar
og er fæði komið til þeirra nú, þótt
markmiðið sé að þeir lifi sem villtir
fuglar í framtíðinni. - jse
Fuglafræðingur segir að harðæri ríki hjá öndunum á Tjörninni og löngu sýnt að þær þrífist engan veginn án inngrips:
Þrjár af sex andartegundum á Tjörninni að deyja út
1980 2014
Æður 110 6
Duggönd 50 6
Gargönd 23 1
Fjöldi kolla
FUGLALÍF Á
TJÖRNINNI
Það er ekki
sjálfgefið að
fuglalíf kryddi
mannlífið
í miðborg
Reykjavíkur.
STJÓRNMÁL Alþingi verður sett þann
9. september og er málaskrá ríkis-
stjórnarinnar í vinnslu. Ljóst er að
miklar breytingar verða á húsnæð-
iskerfinu, velferðarþjónustunni og
tekið verður á umgengni á ferða-
mannastöðum svo eitthvað sé nefnt.
Haustþingið hefst annan þriðju-
dag í septembermánuði og er
vinnsla stóru málanna í fullum
gangi hjá ríkisstjórninni. Málaskrár
eru enn ekki fullbúnar og tæmandi
en sumt er þó þegar ákveðið.
Ýmis mál urðu út undan á síð-
asta þingi. En að frátöldu fjárlaga-
frumvarpinu snúast stærstu þing-
mál stjórnarinnar sem þegar eru
ljós um meiriháttar endurskipu-
lagningu í húsnæðismálum. Þar
má nefna ný húsnæðislánafélög,
lög um húsaleigu og húsnæðis-
samvinnufélög verða innleidd sem
og nýtt húsnæðisbótakerfi. End-
urskoðuð verða lög um greiðslu-
aðlögun einstaklinga og vegna
yfirskuldsettra fasteigna. Þá
eru boðaðar miklar breytingar á
barnaverndarmálum og yfirstjórn
þeirra og málefnum fjölskyldna,
svo sem fæðingarorlofsmála. Stór
og umdeild mál koma aftur inn
í þingið. Endurskoðuð náttúru-
verndarlög verða lögð fram, sem
taka meðal annars á umgengni og
gjaldtöku á ferðamannastöðum,
og í þeim á að skapa sátt um þá
staði sem falla undir svokallaðan
almannarétt. - lb
Húsnæðismál, barnaverndarmál og fæðingarorlofsmál á þingi fyrir jól:
Stór mál eru væntanleg í haust
SÁTTIR Það
bíður forseta
Alþingis ærið
verkefni á
næsta þingi
enda mörg
umdeild mál
sem bíða.
MANNÚÐARMÁL Samtökin
Amnesty International segja að
hryllileg myndskeið, ljósmynd-
ir og vitnisburðir sem samtökin
hafi tekið saman varpi ljósi á ný
sönnunargögn um stríðsglæpi,
þar á meðal aftökur án dóms og
laga og önnur alvarleg mannrétt-
indabrot í Norðaustur-Nígeríu,
á meðan barátta hersins gegn
Boko Haram og öðrum vopnuðum
hópum stigmagnast.
Þau segja að myndskeiðin, sem
fengin voru með hjálp fjölmargra
heimildarmanna í ferð til Borno-
fylkis, afhjúpi ljóslifandi sönnun-
argögn um fjölmarga stríðsglæpi
sem eiga sér stað í Nígeríu. - jhh
Ný myndskeið lýsa hryllingi:
Aftökur án
dóms og laga
Þetta
hefur að okkar
mati þær
afleiðingar að
minjavarslan
fer marga
áratugi aftur í
tímann.
Dr. Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur
BANDARÍKIN Einn þekktasti bar-
áttumaður gegn tóbaksnotkun,
læknirinn Jesse Steinfeld, lést í
fyrradag. Hann var 87 ára að aldri.
Steinfeld er þekktastur fyrir að
vera fyrsti skurðlæknirinn sem
var rekinn úr starfi eftir að hafa
barist gegn tóbaksneyslu í Banda-
ríkjunum. Hann fékk heilablóðfall
fyrir mánuði og dvaldi á hjúkr-
unarheimili þegar hann dó. Susan
Steinfeld, dóttir Jesse, segir við
AP-fréttastofuna að faðir hennar
hafi lagt grunninn að betra lífi
almennings og gert heiminn betri.
Hann var aðalskurðlæknir Nixons
og það var forsetinn sem rak hann
úr embætti. - jhh
Hugsjónamaður fallinn frá:
Barðist hart
gegn tóbaki