Fréttablaðið - 07.08.2014, Page 26

Fréttablaðið - 07.08.2014, Page 26
FÓLK| TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Heiðrún er mikið náttúrubarn en hefur jafnframt áhuga á tísku og hönnun. Hún fékk þá hug- mynd á síðasta ári að blanda þessum tveimur áhugamálum saman. Jöklar, firðir, norðurljós, ár og fossar birtast í fallegum kjólum, skyrtum og hálsklútum með aðstoð færustu ljósmyndara lands- ins. Heiðrún ákvað að nota ljósmyndir af landslaginu til að gæða efnið lífi. Hún fékk strax jákvæðar undirtektir hjá ljós- myndurum um samstarf en þeim fannst þetta spennandi verkefni. Myndir Sig- urðar Hrafns Stefnissonar og Ragnars Axelssonar skreyta silkikjóla sem falla vel að líkamanum. STYRKIR LANDVERND „Ég kom með fyrstu hönnunarlínuna mína í desember á síðasta ári. Ævintýr- ið vakti fljótt athygli og þróunin hefur verið afar jákvæð,“ segir Heiðrún. „Mig langaði til að vekja athygli á hönnun minni utanlands og hafði samband við kynningarfulltrúa Icelandair og kynnti vöruna fyrir honum. Hann fékk áhuga og bauð blaðamanni frá þýska blaðinu Süddeutsche Zeitung hingað til lands. Tekið var viðtal við mig í apríl sem birt- ist í blaðinu núna. Það sem vakti athygli blaðamannsins var tenging íslenskrar náttúru við tískuhönnun og ekki síst að ég læt hluta ágóðans renna til Land- verndar. Einnig er viðtal við fram- kvæmdastjóra Landverndar sem fjallar meðal annars um fyrirhugaðar virkjanir á hálendi Íslands og náttúrupassa,“ greinir hún frá. Heiðrún segist alltaf hafa verið ákveðin í að stofna eigið fyrirtæki. „Ég hef ferðast mikið um landið og er mjög heilluð af íslenskri náttúru. Mig langaði til að kynna náttúruna með fallegum myndum eftir íslenska landslagsljós- myndara. Þegar hugmyndin var fædd ákvað ég að láta slag standa og fram- kvæma. Þetta var ólíkt því sem margir aðrir voru að gera. Sigurður Hrafn er einn okkar fremsti ljósmyndari í því að festa norðurljósin á filmu. RAX er sömu- leiðis einn af okkar bestu ljósmyndur- um og það er gaman að vinna með þeim báðum.“ ÓSTÖÐVANDI NÁTTÚRA „Ný lína er væntanleg í lok ágúst og þar verða myndir RAX í aðalhlutverki. Ég ætlaði að koma með sumarlínu í vor en vanmat tímann sem fór í framkvæmd- ina. Á lokasprettinum fékk ég Unu Hlín Kristjánsdóttur tískuhönnuð í samstarf með mér en hún er einstaklega fær og kemur með skemmtilegar hug- myndir. Við leggjum áherslu á að nota einungis vönduð efni eins og silki. Myndirnar koma einstaklega vel út á silki. Ég hef gefið nýju línunni nafnið Relent- less. Allar ljósmyndirn- ar eru teknar úr lofti og má lýsa þeim sem hinni óstöðvandi nátt- úru landsins. Vatna- jökull kemur við sögu, Landmannalaugar og Skeiðarársandur auk fleiri fallegra staða sem gefur mikla fjöl- breytni í litum. Það er mjög gaman að sjá hvernig myndirnar koma út í efninu,“ segir Heiðrún og bætir við að það hafi verið einstaklega skemmtilegt að vinna með ljósmyndurunum. „Nýja línan verð- ur sannkallað augnakonfekt,“ segir hún. GÓÐAR VIÐTÖKUR Heiðrún hefur strax fengið mikil við- brögð og fyrirspurnir frá áhugasömum seljendum í Þýskalandi eftir að greinin birtist. „Það er gaman að fá þessi við- brögð og þau eru hvatning til að kynna vöruna meira á erlendum markaði. Ég er rétt að byrja og hef miklar væntingar með framhaldið. Nokkrar verslanir selja vörur mínar hérlendis, til dæmis Kraum og Islandia en hægt er að kynna sér vöruna á heimasíðunni, dimmbla.is. „Ég hef lagt ríka áherslu á að hanna flíkur sem eru tímalausar og þægilegar.“ Heiðrún segist einnig vera ánægð með viðtökurnar hér á landi. „Ég hef fengið einstaklega góð viðbrögð og mikið hrós. Þetta hefur verið mikil en ánægjuleg vinna en ég hef mikla ástríðu fyrir því sem ég er að gera,“ segir Heið- rún sem hefur sömuleiðis nóg að gera sem móðir tveggja drengja, tveggja og fjögurra ára. ■ elin@365.is ÍSLENSKIR KJÓLAR VEKJA ATHYGLI Í ÞÝSKALANDI HÖNNUN Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir viðskiptafræðingur stofnaði hönnunarfyrirtæk- ið Dimmblá á síðasta ári sem fengið hefur afar góð viðbrögð, nú síðast frá Þýska- landi. Tímaritið Süddeutsche Zeitung fjallar um hönnun hennar á ferðasíðum. VEKUR ATHYGLI Heiðrún Ósk Sigfús- dóttir hannar kjóla og skyrtur með landslags- myndum úr íslenskri náttúru. Hönnunin hefur vakið athygli í Þýska- landi jafnt og hér á landi. Myndin er tekin við Kleifarvatn. Myndin á kjólnum er eftir RAX. MYND/EMIL ÞÓR SIGURÐSSON UTANLANDS Greinin sem birtist um Heið- rúnu í þýska tímaritinu Süddeutsche Zeitung. NÝJU EFNIN Í haustlín- unni verða efnin mynd- skreytt eftir RAX. DDaglega D3 vítamín styrkir m.a. ónæmiskerfi, tennur og bein og hjálpar til við upptöku kalks. Nýjar vörur komnar! Rýmingasala hafin af eldri vöru. Hægt að gera frábær kaup á vandaðri vöru. Skipholti 29b • S. 551 0770 Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.