Fréttablaðið - 15.08.2014, Side 20
15. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja
í síma 512 5000.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR THORLACIUS
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 1. ágúst
sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Gylfi Thorlacius Svala Thorlacius
Sigríður Thorlacius Árni Kolbeinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Ástkær eiginmaður,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN GÍSLASON
skipstjóri,
Naustahlein 1, Garðabæ,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
12. ágúst. Útförin verður auglýst síðar.
Vilborg Vilmundardóttir
Vilmundur Þorsteinsson Bjarney Jóhanna Sigurleifsdóttir
Gísli Þorsteinsson Jolanta Salminaite
Hrefna Björg Þorsteinsdóttir Guðmundur Löve
Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir Aðalbjörn Þórólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför þeirra fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
18. ágúst kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast þeirra er bent á líknarstofnanir.
F.h. fjölskyldna,
Björg J. Snorradóttir
Arndís Snorradóttir
Sævar Þór Geirsson
Gylfi Sigurður Geirsson
Jóhanna Elka Geirsdóttir
Ingibjörg Guðrún Geirsdóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SIGRÚN
JÓHANNESDÓTTIR
sjúkraliði,
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GEIR RUNÓLFSSON
bankastarfsmaður,
lést á Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð mánudaginn
28. júlí.
lést á Landakotsspítala
laugardaginn 2. ágúst.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
ANNA BJÖRNSDÓTTIR
frá Siglunesi við Siglufjörð,
sem andaðist á LSH Fossvogi 8. ágúst
sl. verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 16. ágúst klukkan 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björn S. Ólafsson María Jóhannsdóttir
Kjartan Ólafsson Þóra Sigurgeirsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir Guðbrandur Ólafsson
Sóley Ólafsdóttir Björn Z. Ásgrímsson
Ólafur Á. Ólafsson Pamela Collins Ólafsson
Charlotte Böving fagnar fimmtugsaf-
mæli sínu í dag. Hún verður í miðri
hestaferð á Rangárvallaafrétti á
afmælisdeginum en býst við veislu-
höldum af einhverju tagi.
„Það verður kannski eitthvað
óvænt á leiðinni, kannski kampa-
vín,“ segir leikkonan hress. Hún er
þegar búin að halda upp á afmælið
úti í Danmörku með dönsku fjölskyld-
unni sinni og vinum þar sem haldin
var stórveisla með heilgrilluðu lambi.
Hestaferðin er sú fyrsta sem Charl-
otte skellir sér í í tíu ár og stendur
hún yfir í fjóra daga. Fyrst þegar
hún kom til Íslands fór hún einmitt
í hestaferð hjá Eldhestum, eða árið
1996. „Ég varð svo hrifin af landinu
og hestunum að ég ákvað að koma
aftur til Íslands hálfu ári seinna. Það
var svo mikill kraftur í náttúrunni og
hestunum að ég var forvitin að sjá
hvernig þessi kraftur rataði í leikhús-
ið,“ segir hún. Þá kynntist hún ein-
mitt eiginmanni sínum, leikaranum
og leikstjóranum Benedikt Erlings-
syni.
Aðspurð segir hún það mjög
skrítna tilfinningu að verða fimmtug.
„Það er svo skrítið með þessar tölur.
Allt í einu er fortíðin orðin miklu
stærri en framtíðin, að minnsta kosti
í árafjölda. Svo er spurning hvernig
maður mælir tímann, hvort maður
mælir hann í árum eða gæðum.“
Fram undan í leiklistinni hjá Charl-
otte er leikur í nýjustu mynd Gríms
Hákonarsonar, Hrútar, þar sem hún
fer með hlutverk dýralæknis. Fyrr á
árinu lék hún í sannsögulegri Holly-
wood-mynd Baltasars Kormáks,
Ever est, sem verður frumsýnd á
næsta ári. Þar lék hún danska konu
sem fór upp á Everest en sjálf kleif
Charlotte Himalajafjöll árið 1995,
eða einu ári áður en atburðirnir í
myndinni áttu sér stað.
freyr@frettabladid.is
Fimmtug á hestbaki
Danska leikkonan Charlotte Böving heldur upp á fi mmtugsafmælið sitt í dag. Hún er í
hestaferð á Rangárvallaafrétti en býst við einhvers konar veisluhöldum.
AFMÆLISBARN Leikkonan segir það skrítna
tilfinningu að verða fimmtug.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tónlistarhátíðin kennd við Woodstock var
fyrst haldin 15. ágúst árið 1969, eða fyrir
45 árum, og stóð í þrjá daga. Hátíðin var
skipulögð af félögunum Michael Lang,
John Roberts, Joel Rosenman og Artie
Kornfeld og fór fram á túni við mjólkurbú
í hinum afskekkta bæ Bethel í New York-
fylki í Bandaríkjunum.
Á hátíðinni komu fram helstu tón-
listarmenn kenndir við sjötta áratuginn
og hippahreyfinguna. Meðal þeirra sem
komu fram eru indverski tónlistargúrúinn
Ravi Shankar, sem er faðir Noru Jones,
Arlo Guthrie, Joan Baez, Grateful Dead,
Janis Joplin, Jimi Hendrix, Creedence
Clearwater Revival, The Who, Jefferson
Airplane og Joe Cocker.
Mörgum þykir Woodstock-hátíðin hippa-
tímabilið í hnotskurn og er hátíðin talin
einn af hápunktum tónlistarsögunnar.
Um hálf milljón blómabarna heimsótti
hátíðina þar sem tónlist, frjálsar ástir
og fíkniefnaneysla var í hávegum höfð.
Heimildir eru um að tvö börn hafi fæðst
á hátíðinni en skuggahliðarnar eru dauðs-
föll á hátíðinni sem rekja má til neyslu
fíkniefna.
Upprunalega kostaði inn á hátíðina
sem nemur um 7.000 íslenskum krónum
en þegar hún byrjaði flykktist fólk að
svæðinu og skipuleggjendur misstu
fljótlega tökin. Margar tilraunir hafa verið
gerðar í gegnum tíðina til að endurskapa
hátíðina án árangurs.
ÞETTA GERÐIST: 15. ÁGÚST 1969
Woodstock-hátíðin sett
WOODSTOCK Blómabörnin flykktust að
svæðinu og hlustuðu á góða tónlist.
NORDICPHOTOS/AFP