Fréttablaðið - 15.08.2014, Qupperneq 23
DANSKIR DAGAR Í STYKKISHÓLMI
Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi um helgina
í tuttugasta sinn. Á dagskrá er meðal annars brekku-
söngur, flugeldasýning, skottmarkaður, kökuáts-
keppni og bryggjuball.
KUNG
PAOKJÚKLINGUR KUNG PAO MEÐ GRÆNMETICHILLI, JARÐHNETUM, FERSKUM ENGIFER, HVÍTLAUK OG HRÍSGRJÓN
ÞÚ VERÐUR AÐ SMAKKA
Hringdu nú
na!
Sæktu eða f
áðu
matinn send
an heim
588 9899
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 17. aprílNæs a námskeið hefst 12. júníNÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 0. ÁGUST
Nýjar haustvörur
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Nýjar
haustvörur
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
ll dVerslunin Be a onna
r 38tærð 5S i - 2
St rð r 38-58æ i
Hér er á ferðinni dæmigerð núðlu-súpa með taílensku yfirbragði nema ég nota íslenska grænmet-
ið í staðinn fyrir núðlurnar. Fyrir íhalds-
sama má auðvitað bara bæta núðlum
út í áður en súpan er borin fram,“
útskýrir Oddrún Helga Símonardóttir,
en hún skellti í rjúkandi kjúklingasúpu
með glænýju íslensku grænmeti fyrir
Fólk. Oddrún heldur úti matarblogginu
heilsumamman.com þar sem hún deilir
hollum og girnilegum uppskriftum.
Þessa súpu segir hún afar þægilega í
kvöldmat fjölskyldunnar.
„Súpan er mjög fljótleg og getur verið
komin á borðið 20 mínútum eftir að
undirbúningur hefst, ef kjúklingurinn er
tilbúinn, en hún verður samt enn betri
ef hún fær að standa aðeins eftir að hún
er tilbúin.“
SWEET CHILI-KJÚKLINGASÚPA ÚR
GLÆNÝJU ÍSLENSKU GRÆNMETI
1 tsk. kókosolía
3-4 gulrætur
½ hvítkálshaus
½ rauð paprika
½-1 haus spergilkál
(eftir stærð og smekk)
2 cm bútur af engifer eða
u.þ.b. 1 msk. rifinn engifer
3 msk. kjúklingakraftur
1 msk. fiskisósa
1 msk. sweet chili sósa
Salt og pipar
2 kjúklingabringur eða magn
eftir smekk.
Aðferð:
1. Skerið bringurnar í bita. Steikið á
pönnu og kryddið eftir smekk eða
grillið þær heilar. Þessi súpa er til-
valin fyrir afganga.
2. Hitið kókosolíu í potti og léttsteikið
gulrætur og papriku.
3. Rífið engiferið út í pottinn. (Ef þið
rífið það með rifjárni losnið þið við
„hárin“.
4. Bætið við vatni, kjúklingakrafti,
fiskisósu og sweet chili-sósu. Reynið
að velja sósu með litlu sykurmagni en
hér má líka nota 1 msk. af hlynsírópi
eða 1 msk. af kókospálmasykri og
krydda með smá chili-kryddi.
5. Bætið hvítkálinu og spergilkálinu út
í og leyfið súpunni að malla í 10 mín.
6. Bragðbætið með salti og pipar.
Það er gott að bera súpuna fram
með smátt söxuðum vorlauk, fersku
kóríanderi og jafnvel salthnetum eða
kasjúhnetum.
UPPSKERAN Í POTTINN
MATUR Kálmeti og gulrætur koma upp úr görðum landsmanna þessa dagana.
Fólk fékk Oddrúnu Helgu Símonardóttur til að gefa lesendum uppskrift að
rjúkandi kjúklingasúpu með íslensku grænmeti.
MATGÆÐINGUR
Oddrún Helga heldur úti
matarblogginu heilsu-
mamman.com.
GIRNILEG SÚPA Uppskeruna úr garðinum má nota í staðinn fyrir núðlurnar í hefðbundinni núðlusúpu með kjúklingi.
MYND/HEILSUMAMMAN.COM