Fréttablaðið - 15.08.2014, Qupperneq 24
FÓLK|HELGIN
Miðbær Hafnarfjarðar iðar af lífi um helgina þegar alþjóðlegur götumarkaður verður settur upp
á Thorsplani. Um er að ræða „gourmet“
matarmarkað sem selur einnig handverk
og hönnun frá öllum heimshornum. Það
er skoska fyrirtækið Continental Market
sem skipuleggur markaðinn í samstarfi
við Hafnarfjarðarbæ en fyrirtækið heldur
um 50 markaði víðs vegar um heim á
hverju ári. Á sama tíma mun bærinn slá
upp götuhátíð í Strandgötu þar sem ýmsir
veitingastaðir í bænum munu kynna vörur
sínar og þjónustu.
Að sögn Kristins Sæmundssonar hjá
Menningar- og listafélagi Hafnarfjarðar,
sem kemur að skipulagi götuhátíðarinnar,
leggja Skotarnir mikinn metnað í að bjóða
eingöngu úrvalsvörur til heimamanna
og ferðalanga í þeim tilgangi að kynna
hágæða matvöru og handverk. „Þetta
á eftir að vera litríkur og skemmtilegur
markaður og götuhátíðin sem bætist við
á eftir að framkalla einstaka stemningu
í miðbænum. Einnig verður boðið upp á
tónlistaratriði þar sem meðal annars götu-
tónlistarmenn og plötusnúðar troða upp,
auk þess sem Reggíbíllinn mun örugglega
mæta. Auk þess verður frítt í bíó í hinu
rómaða Bæjarbíói og skottsala verður við
verslunarmiðstöðina Fjörðinn.“
Meðal þess sem verður á boðstólum á
markaðnum um helgina eru grískar ólífur,
handverk frá Afríku og Indónesíu, hand-
töskur og skartgripir frá Ítalíu og ljúffengir
réttir frá ýmsum löndum eins og Tyrk-
landi, Spáni og Þýskalandi. „Auk þess
munu nokkrir veitingastaðir frá Hafnarfirði
kynna vörur sínar. Þar verður meðal ann-
ars boðið upp á sjávarréttasúpu, vefjur,
gúllassúpu, hamborgara og vöfflur.“
Að sögn aðstandenda markaðarins
er lögð áhersla á fjölbreytta og vandaða
sölubása sem selja einungis gæðavörur
víðs vegar að úr heiminum. Markmiðið er
að höfða bæði til heimamanna og ferða-
langa enda mikil fjölbreytni í boði og líflegt
andrúmsloft sem fylgir slíkum farandmörk-
uðum. „Ég á ekki von á öðru en frábærri
stemningu hér um helgina,“ segir Kristinn.
Markaðurinn færir sig svo um set og
verður á Ingólfstorgi í Reykjavík dagana
18.-31. ágúst og í Kópavogi 2.-7. september.
Markaðurinn í Hafnarfirði hefst í dag
kl. 14 og stendur yfir til kl. 19. Á morgun
og sunnudag verður hann opinn milli kl.
12-19. Nánari upplýsingar og dagskrá má
finna á vef Hafnarfjarðarbæjar, www.hafn-
arfjordur.is.
ALÞJÓÐLEGUR GÖTUMARKAÐUR
LITRÍK BLANDA Fjölbreytt úrval veitinga og handverks verður á boðstólum á alþjóðlegum götumarkaði sem haldinn er í Hafnarfirði
um helgina. Hafnfirskir veitingastaðir munu einnig kynna vörur sínar. Markaðurinn verður í Reykjavík og Kópavogi næstu vikurnar.
SPENNANDI BRAGÐ Boðið verður upp á rétti frá
Þýskalandi, Tyrklandi og Spáni auk rétta frá veitinga-
stöðum bæjarins.
FALLEGT HANDVERK Ýmiss konar handverk
verður til sölu á markaðinum.
MIKIL FJÖLBREYTNI Girnilegar veitingar og fjöl-
breytt úrval handverks frá ýmsum heimsálfum er selt
á fjölda bása.
UNDIR BERU LOFTI Markaðurinn ferðast víða um heim og verður í miðbæ Hafnarfjarðar um helgina.
MYNDIR/R EINKASAFNI
1 1/4 bolli sykur
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
2 bollar hveiti
2 egg (hrærð)
1 bolli sýrður rjómi
3 bollar niðurskorinn rabarbari
1 bolli sykur
1/4 bolli smjör, mjúkt
1/4 bolli hveiti
Kanill
AÐFERÐ
Hitið ofninn í 175 °C. Smyrjið
eldfast mót.
Hrærið saman í stórri
skál 1 1/4 bolla sykur,
matarsóda, salt og
2 bolla hveiti. Hrærið
eggjum og sýrðum rjóma
saman við þangað til blandan
er mjúk, bætið síðan rabar-
baranum við. Hellið í mótið
og dreifið úr deiginu. Hrærið
saman í minni skál 1 bolla af
sykri og smjöri þar til það er
mjúkt. Hrærið 1/4 bolla hveiti
saman við þar til blandan er
mylsnukennd. Stráið
blöndunni ofan á
kökudeigið í eldfasta
mótinu og stráið svo kanil
létt yfir allt saman.
Bakið í heitum ofni í um
það bil 45 mínútur eða þar
til kakan er bökuð í gegn.
Gott er að bera kökuna
fram með þeyttum rjóma
eða ís.
EINFÖLD OG GÓÐ
RABARBARAKAKA
Nú er uppskerutími og einhverjir sem eiga nóg af
rabarbara sem þeir vita ekki alveg hvað þeir eiga
að gera við. Fyrir þá er tilvalið að skella í þessa
einföldu og gómsætu rabarbaraköku.
GÓMSÆT Rabar-
barakaka sem er
ekki bara góð heldur
líka einföld.
Færri kíló – Minna ummál
með spínat extrakt
Fæst í 14 og 28 daga skömmtum. Útsölustaðir flest apótek og heilsu búðir.
Aptiless fæst eingöngu í Noregi, Svíþjóð og nú á Íslandi. Hungurtilfinning minnkar
strax frá fyrstu notkun. Inniheldur yfir 100 mismunandi próteinefni. Einn skamm-
tur jafngildir fimm bollum af fersku spínati en Thylakoids dregur úr hungri Eykur
mettun - Minnkar sykurlöngun - Jafnar blóðsykur - Lækkar blóðfitu, kólesterol og
blóðþrýsting - Minnkar ummál - Fækkar aukakílóum - Eykur orku - Bætir þarmaflóru.
100% náttúrulegt
Vísindaleg sönnun á virkni
Rannsóknir gerðar af Karólínska Háskólanum í Lundi
í Svíþjóð ásamt fleiri virtum rannsóknarstofnunum.
Dr. Charlotte Erlanson- Albertsson,
Prófessor við Karólínska
Háskólanum í Lundi í Svíþjóð
mynd:Kennet Ruona
U
m
bo
ð:
w
w
w
.v
ite
x.
is
Merkasta nýja uppgötvunin í heiminum í dag
Eitt skot = 6 af r auð ra ðu rófur eða 1 líter rófusafa
Örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Allt að 20% meiri vöðvasnerpa, orka, þrek, úthald
allt að 30% meiri súrefnisupptaka, 20% meiri árangur við æfingar og í keppnum.
Betra blóðflæði - allt að 30% æðaútvíkkun. Hunter Kemper 4 Time U.S. Olympic Triathlete
Try it once, and you’ll never compete the same.”
WE BEET THE COMPETITION