Fréttablaðið - 15.08.2014, Page 50
15. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
VAR VISS UM AÐ
ÞAÐ KÆMI EKKERT FYRIR SIG
Bjarnheiður Hannesdóttir lenti í hjartastoppi í tuttugu
mínútur fyrir tæpum tveimur árum. Henni var vart hugað
líf en barðist fyrir tilvist sinni á þessari jörð. Hjartastoppið
olli miklum heilaskaða og safnar Heiða, eins og hún er
kölluð, fyrir stofnfrumumeðferð á Indlandi. Aðdragandi
hjartastoppsins var langur en Heiða hafði glímt við át-
röskun um árabil. Hún segir sögu sína í von um að hjálpa
öðrum sem glíma við sjúkdóminn.
Skurður á tímamótum
Panamaskurðurinn er hundrað ára um þessar
mundir. Hann þykir orðinn of lítill og þröngur fyrir
síaukna umferð og æ stærri flutningaskip. Vinna er
hafin við stækkun hans og áform eru um að reisa
fleiri mannvirki af svipuðu tagi.
„Við erum stór vinkvennahópur
sem langar að láta gott af okkur
leiða. Í ljósi aðstæðna í Palestínu
og þeirrar miklu neyðar sem þar
ríkir ákváðum við að taka okkur
saman og halda söfnun,“ segir
Svava Gunnarsdóttir, ein vin-
konan úr vinkvennahópnum Fugla-
bjarginu sem stendur fyrir degi til
styrktar börnum í Palestínu á Kexi
Hosteli á sunnudaginn.
Um er að ræða dag sem helgað-
ur er því að safna fé fyrir börn í
Palestínu en ástandið þar er ansi
slæmt sökum stríðsátaka og því
ákaflega verðugt að styrkja bless-
uð börnin.
Svava og vinkonur hennar ætla
að gera ýmislegt til að afla fjár
fyrir börnin. „Við höfðum sam-
band við starfsmenn Rauða kross-
ins sem töldu að best væri að
safna peningum sem myndu renna
óskiptir í hjálparstarf þeirra á
svæðinu og þá helst til barnanna
sem eiga um sárt að binda á þess-
um erfiðu tímum. Við verðum
með markað þar sem föt og fleira
spennandi verður til sölu fyrir lít-
inn pening,“ útskýrir Svava.
Þær hafa fengið ýmsar vörur
frítt frá ýmsum fyrirtækjum
sem þær ætla selja og það fé sem
safnast rennur beint í sjóð Rauða
krossins. „Nú þegar höfum við
fengið frábær viðbrögð frá þeim
fyrirtækjum sem við höfum haft
samband við. Við erum því mjög
bjartsýnar á að vel muni takast
til og fjölmargir muni láta sjá sig,
eiga skemmtilegan dag og styrkja
gott málefni í leiðinni.“ Pylsur,
vöfflur og sælgæti verður til sölu
og andlitsmálning fyrir börnin
verður á staðnum. Einnig verður
happdrætti þar sem fjölmargir
frábærir vinningar verða í boði.
„Við verðum með fatamarkað –
erum að selja föt af okkur sjálfum,
af börnum þeirra sem eiga börn í
hópnum og karlaföt einnig,“ bætir
Svava við.
Þá verður einnig lifandi tónlist
á staðnum og hvetur Svava alla
þá sem vilja r´tta hjálparhönd að
leggja leið sína á Kex á sunnudag.
„Margt smátt gerir eitt stórt.“
Viðburðurinn hefst klukkan
14.00 á sunnudaginn.
gunnarleo@frettabladid.is
Börn í Palestínu styrkt
Vinkvennahópurinn Fuglabjargið úr Breiðholtinu ætlar í samstarfi við Rauða
krossinn að standa fyrir söfnun á Kexi Hosteli um helgina fyrir börn í Palestínu.
GÓÐAR
VINKONUR
Vinkvennahópur-
inn Fuglabjargið
stendur fyrir
söfnun fyrir börn
í Palestínu á Kexi
Hosteli á sunnu dag.
MYND/EINKASAFN
Enski boltinn
rúllar aftur af stað
Nýtt tímabil í ensku úrvalsdeild-
inni hefst um helgina. Gylfi Þór
Sigurðsson og félagar hefja leik
á Old Trafford gegn lærisveinum
Louis van Gaal. Tólf síðna auka-
blað/sérblað fylgir helgarblaði
Fréttablaðsins.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2014
Tónleikar
17.00 Jazzhátíð Reykjavíkur er í
fullum gangi. Kvöldið hefst með Samúel
Jóni Samúelssyni fyrir utan Hörpu og
götumat jazzins í boði Kolabrautarinnar.
Raddir þjóðar hita upp fyrir rithöfundinn
Einar Kárason. Einnig koma fram Ari
Hoenig, Jim Black, Óskar Guðjónsson,
Hilmar Jensson, Ingebrigt Haaker Flaten
en kvöldinu lýkur á Davíð Þór Jónssyni.
Dagpassi er á 3.900 krónur.
20.00 Tónlistarhátíðin KEFLAVÍKUR-
NÆTUR 2014 hefst með pomp og prakt. Í
kvöld koma fram sveitir á borð við Kaleo,
Skítamóral, Rottweilerhunda, Leoncie og
Friðrik Dór. Hátíðararmband kostar 4.900
krónur.
20.00 Í tilefni af útgáfu hljómdisks mun
Halla Bóa, eða Halla Norðfjörð Guð-
mundsdóttir, halda útgáfutónleika í sam-
starfi við Flygilvini í Snartarstaðakirkju.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
21.00 Hljómsveitin Ylja hefur vakið
mikla athygli fyrir grípandi, fjölbreyttar
og spennandi lagasmíðar og frábæran
flutning en sveitin kemur fram í Hvera-
gerðiskirkju í Hverahlíð í kvöld. Miðaverð
er 1.500 krónur.
21.00 Hljómsveitin Prins Póló kemur
fram á skemmtistaðnum Húrra við Naust-
in. Langt er síðan sveitin lék í höfuð-
borginni. Hljómsveitin Eva kemur fram á
undan. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
21.00 Hljómsveitin Low Roar fagnar um
þessar mundir útgáfu annarrar skífu
sinnar sem ber titilinn 0. Blásið verður til
veglegra útgáfuhljómleika vegna útgáf-
unnar í Tjarnarbíói. Um upphitun sér Mr.
Silla en miðaverð er 2.000 krónur.
22.00 Hljómsveitin Dimma er ein
magnaðasta rokkhljómsveit landsins en
hún kemur fram á Græna hattinum á
Akureyri. Með henni í för er hljómsveitin
Nykur. Miðaverð er 2.800 krónur.
22.00 Hljómsveitin Gæðablóð heldur
tónleika á Café Rosenberg. Á tónleik-
unum verður kynntur nýr geisladiskur
hljómsveitarinnar, Með sorg í hjarta.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
22.00 Arnar Friðriks kemur fram vopn-
aður kassagítar á Bar 11, á eftir honum
mætir hljómsveitin Dorian Grey. Aðgang-
ur er ókeypis.
Sýningar
12.00 Sýning Þórdís Jóhannesdóttir,
Ummyndun, er í Listasal Mosfellsbæjar.
12.00 Gunnar Marel Hinriksson ræðir
sýningu sína #innkaupakerrur á hádegis-
fyrirlestri í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Undanfarið eitt og hálft ár hefur Gunnar
Marel myndað yfirgefnar innkaupakerrur
sem hann hefur rekist á víðs vegar um
borgina.
12.00 Myndir sænska ljósmyndarans
Lisen Stibeck sem hún tók á ferð sinni
um landið sumarið 2013 verða sýndar
í Þjóðminjasafni Íslands. Með myndum
sínum vill Stibeck sýna einstakt samspil
íslenskrar náttúru, menningararfs og
tísku.
16.00 Myndasögusýning Bjarna Hinriks-
sonar verður opnuð í aðalsafni Borgar-
bókasafns Reykjavíkur. Á sýningunni
verða myndasögur eftir Bjarna frá síðustu
tveimur árum.
Kvikmyndir
20.00 Sambíóin frumsýna myndina
Step Up: All In. Er þetta fimmta Step
Up-myndin en í henni koma margar af
stjörnum fyrri myndanna saman á ný til
að taka þátt í danskeppni í Las Vegas.
20.00 Disney myndin Planes: Fire and
Rescue er frumsýnd hjá Samfilm. Í
myndinni kynnumst við aftur áburðar-
flugvélinni Dusty sem átti við þann
vanda að stríða að vera óskaplega loft-
hræddur í fyrri myndinni Flugvélar.
Uppákomur
14.00 Götuhátíð og farandmarkaður
í Hafnarfirði. Skoskur götumarkaður
kemur í heimsókn og verður settur
upp alvöru götumarkaður á Thorsplani.
Matartilboð og götulistamenn á hverju
horni, búskarar, plötusnúðar og lista-
menn. Einnig verður skottsala við Fjörð.
22.00 Hljómsveitin Kaleo hefur sent frá
sér nýtt lag af annarri plötu sveitarinnar
sem væntanleg er á næsta ári. Lagið ber
nafnið All The Pretty Girls en hljóm-
sveitin frumsýnir tónlistarmyndband við
lagið á Laundromat Café. Tuborg býður
veitingar á meðan birgðir endast.
23.00 Skemmtistaðurinn Dolly er
tveggja ára í dag og er blásið til heljar-
innar veislu á staðnum í tilefni þess.
Í kvöld koma fram Dolly Staff DJ Set
Special og Sonur Sæll B2B NonniMal.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.