Fréttablaðið - 15.08.2014, Side 58
15. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 38
PEPSI DEILD
KVENNA 2014
STAÐAN
Stjarnan 13 12 0 1 48-8 36
Breiðablik 13 9 1 3 38-10 28
Selfoss 13 7 2 4 28-19 23
Fylkir 13 7 2 4 13-12 23
Valur 13 6 3 4 25-19 21
Þór/KA 12 6 3 3 16-16 21
ÍBV 13 5 0 8 23-24 15
FH 13 2 3 8 11-46 9
Afturelding 12 2 1 9 9-32 7
ÍA 13 0 1 12 8-33 1
ÚRSLIT
FYLKIR - ÍBV 3-0
1-0 Ruth Þórðar Þórðardóttir (12.), 2-0 Anna
Björg Björnsdóttir (76.), 3-0 Anna Björg Björns-
dóttir (80.).
BREIÐABLIK - VALUR 1-0
1-0 Fanndís Friðriksdóttir (84.).
STJARNAN - FH 6-0
1-0 Lára Kristín Pedersen (7.), 2-0 Sigrún
Ella Einarsdóttir (28.), 3-0 Harpa Þorsteins-
dóttir (33.), 4-0 Harpa Þorsteinsdóttir (40.), 5-0
Harpa Þorsteinsdóttir (61.), 6-0 Írunn Þorbjörg
Aradóttir (76.).
ÍA - SELFOSS 0-1
0-1 Guðmunda Brynja Óladóttir (55.).
FÓTBOLTI Stjörnumönnum líður
ekki illa tíu á móti ellefu ef marka
má magnaða tölfræði liðsins í
slíkri stöðu í Pepsi-deildinni und-
anfarin tvö sumur. Garðbæingar
hafa hreinlega bætt í við þannig
aðstæður og landað mörgum mik-
ilvægum sigrum fyrir vikið.
Leikmenn Stjörnunnar hafa
fengið sjö rauð spjöld í Pepsi-deild-
inni síðustu tvö sumur og alls spil-
að í 183 mínútur tíu á móti ellefu.
Stjörnumenn hafa nú unnið fimm
síðustu leiki sína þar sem þeir hafa
misst mann af velli, tvo á þessu
sumri og þá þrjá síðustu í fyrra
þegar rauða spjaldið fór á loft.
Í þremur leikjanna hafa Stjörnu-
menn ekki aðeins misst mann af
velli heldur einnig verið undir
þegar áfallið dundi á liðinu.
Þrír endurkomusigrar
Í tveimur af þessum þremur end-
urkomusigrum Stjörnunnar var
Atli Jóhannsson sendur í sturtu
í leik á móti Fram. Í fyrra skipt-
ið var Framliðið 2-1 yfir á móti
Stjörnunni í ágúst í fyrra þegar
Atli fékk sitt annað gula spjald
á 66. mínútu leiksins. Stjarnan
vann síðustu 24 mínúturnar 2-0
og tryggði sér sigur. Fyrr í sumar
fékk Atli beint rautt spjald á móti
Fram strax á 36. mínútu en Fram-
arar voru þá búnir að vera 1-0 yfir
síðan á þriðju mínútu leiksins.
Stjarnan vann 54 síðustu mínútur
leiksins 2-0 og tryggði sér enn á ný
þrjú stig tíu á móti ellefu.
Stjörnuliðinu tókst einnig að
skora þrjú mörk manni færri í
fyrra þegar Martin Rauschenberg
var rekinn af velli á 35. mínútu í
leik á móti Þór.
Stjörnumenn misstu síðast mann
af velli í sigri á ÍBV á dögunum.
Stjarnan var 1-0 yfir þegar rauða
spjaldið fór á loft en Stjörnumenn
bættu við einu marki í uppbótar-
tíma sem innsiglaði sigurinn.
Stjarnan er á tímabilunum 2013
og 2014 búin að spila manni færri
í alls 183 mínútur í Pepsi-deildinni
og státar liðið af markatölunni 8-0
við þær kringumstæður.
Mark á 23 mínútna fresti
Stjarnan hefur sem sagt ekki feng-
ið á sig mark manni færri og það
sem meira er, liðið er búið að skora
á 23 mínútna fresti tíu á móti ell-
efu. Á sama tíma hefur Stjörnu-
liðið skorað á 59 mínútna fresti
með fullskipað lið. Tölfræði sýnir
það því og sannar að Stjörnumenn
séu aldrei betri en þegar þeir eru
manni færri.
Stjarnan heimsækir Val á Voda-
fone-völlinn klukkan 18.30 kvöld
í fyrsta leik 16. umferðar en leik-
urinn var færður fram vegna Evr-
ópuleiksins við Internazionale frá
Mílanó í næstu viku. ooj@frettabladid.is
Aldrei betri en
manni færri
Stjörnumenn eru með frábæra tölfræði síðustu tvö
sumur í Pepsi-deildinni þegar þeir spila tíu á móti ellefu.
BÚNIR AÐ REDDA ATLA TVISVAR Stjarnan er búin að vinna báða leikina þegar
Atli Jóhannsson var sendur snemma í sturtu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
22. ágúst 2013 SIGUR
ATLI JÓHANNSSON GEGN FRAM
FÆRRI Í 24 MÍNÚTUR +2 (2-0)
26. ágúst 2013 SIGUR
VEIGAR PÁLL GUNNARSSON GEGN ÍA
17 MÍNÚTUR 0 (0-0)
12. september 2013 SIGUR
MARTIN RAUSCHENBERG GEGN ÞÓR
55 MÍNÚTUR +3 (3-0)
27. júní 2014 SIGUR
ATLI JÓHANNSSON GEGN FRAM
54 MÍNÚTUR +2 (2-0)
27. júlí 2014 SIGUR
MICHAEL PRÆST GEGN ÍBV
54 MÍNÚTUR +1 (1-0)
Síðustu 5 rauðu spjöld
Stjörnumanna
STJÖRNUMENN MANNI FLEIRI
183 MÍNÚTUR
MARKATALAN:
SKORA Á 22,9 MÍNÚTNA FRESTI
STJÖRNUMENN MEÐ FULLT LIÐ
3.057 MÍNÚTUR
MARKATALAN:
SKORA Á 58,8 MÍNÚTNA FRESTI
STJARNAN OG RAUÐU SPJÖLDIN 2013-14
+8 (8-0) +12 (52-40)
CESC FÁBR-
EGAS
➜ Kom frá
Barcelona
27 ára
miðjumaður
DIDIER DROGBA
➜ Kom frá Galatasaray
36 ára sóknarmaður
FILIPE LUÍS
➜ Kom frá Atlético
Madrid
29 ára vinstri bakvörður
DIEGO COSTA sló í gegn með
Atlético Madrid á síðustu leiktíð.
Costa, sem er fæddur í Brasilíu,
skoraði 36 mörk í 52 leikjum og átti
stóran þátt í frábæru gengi Atlético
sem varð Spánarmeistari og komst
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Eiginleikar hans ættu að nýtast
Chelsea-liðinu vel; hann er fljótur
og sterkur og þegar hann kemst á
ferðina er fátt sem stoppar hann.
Hann ætti allavega að valda varnar-
mönnum ensku úrvalsdeildarinnar
meiri vandræðum en framherjar
Chelsea gerðu á síðasta tímabili.
Fréttablaðið hefur að undanförnu birt spá sína fyrir
ensku úrvalsdeildina í fótbolta og meistaraefnin okkar
í vetur spila fyrir José Mourinho hjá Cheslea.
Venjan er að lið undir stjórn Mourinhos séu betri á
öðru tímabili en þau eru á því fyrsta. Og það er margt
sem bendir til þess að sú verði raunin í ár. Portúgalinn
hefur keypt góða leikmenn í þær stöður sem þurfti að
styrkja og heildarbragurinn á liðinu virðist vera góður.
Chelsea var með bestu vörnina í fyrra og skyndisóknir
liðsins eru jafnan baneitraðar með Eden Hazard
fremstan í flokki. Það er þó spurning hvernig hann
leysir markvarðarmálin, en Thibaut Courtois og Petr
Čech gera báðir tilkall til þess að vera markvörður
númer eitt. Þá fór mikil reynsla úr Chelsea-liðinu þegar
Frank Lampard og Ashley Cole yfirgáfu félagið í vor.
Enskur meistari í vetur verður Chelsea
ENSKA
ÚRVALS-
DEILDIN
HEFST
Á MORGUN
SPÁ FRÉTTABLAÐSINS
Englandsmeistari Chelsea
2. Man. City 3. Arsenal
4. Man. United 5. Liverpool
6. Everton 7. Tottenham
8. Stoke 9. Swansea
10. Newcastle 11.Southampton
12. Aston Villa 13. C. Palace
14. Sunderland 15. West Ham
16. Hull 17. QPR
Þessi lið falla
18. WBA 19. Leicester
20. Burnley
Stjörnuleikmaðurinn
Finna má
meira um Ensku
úrvalsdeildina
á Vísi
visir.is
NÝJU ANDLITIN
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
FRJÁLSAR Aníta Hinriksdóttir
komst ekki í úrslitin í 800 metra
hlaupi kvenna á Evrópumeist-
aramótinu í frjálsum íþróttum í
Zürich í Sviss. Aníta lenti í sjötta
sæti í undanúrslitariðlinum sínum
er hún kom í mark á 2:02.45 mínút-
um, tæplega hálfri sekúndu seinna
en deginum áður.
Aníta byrjaði hlaupið vel annan
daginn í röð en gaf eftir á loka-
sprettinum. Lenti hún fyrir aftan
fremsta hóp og horfði á forystuhóp-
inn koma í mark fyrir framan sig.
„Mér fannst hún standa sig mjög
vel. Hún var að keppa við allar þær
bestu í þessari grein og við viss-
um að þetta yrði gríðarlega erf-
itt,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson,
þjálfari Anítu, þegar Fréttablaðið
heyrði í honum í gær.
„Við stefndum að því að kom-
ast í úrslitin en ég er mjög sáttur
með hana þótt hún hafi ekki kom-
ist áfram í dag. Að ná
ellefta sæti er frá-
bært.“
Hafdís Sigurð-
ardóttir jafn-
aði besta tíma
si n n í 2 0 0
metra hlaupi
á mótinu en
það dugði
henni ekki
í gær. Haf-
dís lenti í
28. sæti í
undanrásunum og
hefur lokið keppni
á mótinu.
Þá hefur Guð-
mundur Sverr-
isson einnig lokið
keppni en öll þrjú
köst hans í spjótkast-
inu í gær voru ógild.
- kpt
Aníta lauk keppni í gær
Þjálfarinn stoltur af frammistöðu hennar á mótinu.
SPORT