Fréttablaðið - 02.09.2014, Síða 20

Fréttablaðið - 02.09.2014, Síða 20
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 2 2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR www.visir.is/bilar BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Sími 512 5457 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Á undanförnum árum hefur talsvert áunn- ist í notkun innlendr- ar orku í samgöngum. Að undanförnu hefur verið talsverð upp- bygging innviða og þar má sérstaklega nefna opnun nýrra metan- og hraðhleðslu- stöðva. Lengi hefur því verið haldið fram að erfitt verði að fá almenning og fyrirtæki til að kaupa metan- og rafmagnsbíla þegar það skorti innviði. Þó að grettistaki hafi verið lyft að und- anförnu er ekki þar með sagt að björninn sé unninn. Úthald hins opinbera Um miðbik ársins 2012 náðist mikilvægur árangur þegar virð- isaukaskattur var að mestu felld- ur niður af útblásturslausum bílum. Áður höfðu metanbílar fengið ívilnanir og ljóst er að sá árangur sem náðst hefur í notkun metanbíla, á annað þúsund bíla á landinu í dag, hefði aldrei náðst nema með stuðningi hins opin- bera. Þegar ný tækni er innleidd í jafn rótgróið kerfi og nútíma- samgöngur eru getur verið erfitt að finna fyrstu viðskiptavinina. Óvissa ríkir um gæði, innviðir ekki sambærilegir við núverandi kerfi og tæknin yfirleitt dýrari í byrjun enda að keppa við yfir 100 ára gamla þróun brunahreyf- ilsins. Ef markmiðið er að auka notkun á vistvænni innlendri orku í samgöngum er nauðsyn- legt að veita nýrri tækni íviln- anir fyrstu árin. Stefna stjórn- valda virðist nokkuð skýr sam- kvæmt stjórnarsáttmálanum en það er að auka veg vistvænnar orku í samgöngum. Hins vegar er mikill skortur á langtímastefnu í þessum málum. Eins og staðan er í dag munu allar ívilnanir falla úr gildi um næstu áramót og ef þær verða ekki framlengdar er nokkuð ljóst að sala á vistvænum bílum mun heyra sögunni til! Nú til dags eru slíkir bílar nokkuð dýrari en bensín- eða dísilknún- ir bílar í sama stærðarflokki. Ef virðisaukaskattur leggst að fullu á slíka bíla mun verð þeirra hækka um 1-2 milljónir og salan hrynja. Árangur Norðmanna Þegar rætt er um innleiðingu raf- magnsbíla er oft horft til Noregs og rætt um þann frá- bæra árangur sem þar hefur náðst. Menn furða sig á því hvers vegna Ís- land nær ekki svip- uðum árangri enda raforka enn ódýrari hér en þar. Í þessu samhengi gleyma menn oft að stjórn- völd í Noregi lögðu til svipaðar íviln- anir og gert hefur verið hér. Hins vegar voru ívilnan- irnar lagðar fram til framtíðar og gátu menn því treyst því að stuðning- ur stjórnvalda yrði til staðar. Norsk stjórnvöld hafa einnig lagt verulegt fjármagn í uppbyggingu innviða. Þau hafa komið að byggingu og rekstri hleðslustaura og hraðhleðslu- stöðva og kosta nú rekstur fjölda vetnisstöðva. Að auki er sérstak- ur sjóður sem fjármagnar rann- sóknar- og þróunarverkefni tengd vistvænum samgöngum (hefur um tvo milljarða til úthlutunar á ári). Af þessum ástæðum er því erfitt að bera saman Ísland og Noreg þegar allt er tekið saman. Næstu skref Það væri mikil synd ef allt það sem áunnist hefur á síðustu árum væri unnið fyrir gýg vegna út- haldsleysis stjórnmálamanna. Í stefnuskjali, „Orkuskipti í samgöngum“, sem samþykkt var á Alþingi 2012 var talað um 10% vistvænt eldsneyti fyrir árið 2020. Nú eru sölu- aðilar eldsneytis skyldað- ir til að selja ákveðna hlut- deild eldsneytisins vist- vænt og hefur það haft veruleg jákvæð áhrif. Það er því mögu- leiki að fylgja því átaki eftir og ná 10% mark- miðinu. Nú hefur fjöldi aðila lagt í fjárfesting- ar til að auka aðgengi að vistvænni orku. Það er því búið að undir- búa jarðveginn og Ný- orka skorar á stjórn- völd að marka stefnu til lengri tíma þar sem ívilnanir verða enn í gildi svo hin nýja vist- væna tækni verði sam- keppnishæf við hefð- bundna brunahreyfils- bíla. VISTVÆNAR SAMGÖNGUR – VEGUR EÐA VEGLEYSA Það væri mikil synd ef allt það sem áunnist hefur á síðustu árum væri unnið fyrir gýg vegna úthaldsleysis stjórnmálamanna. Andlitslyfting á Toyota Yaris Einn alvinsælasti bíll undanfarinna ára er Toyota Yaris og mjög stór hópur bílkaupenda eru sem áskrifendur að þessum endingar- góða og áreiðanlega bíl. Því telst það til frétta þegar ný gerð hans kemur til landsins. Ekki er um að ræða kynslóðarbreytingu bíls- ins, en engu að síður hefur talsvert breyst nú í Yaris. Gerbreyttur og fallegur framendi Útlitslega er stærsta breytingin á framenda bílsins og er það veru- lega vel heppnuð breyting, hann er allur sportlegri og grimm- ari. Reyndar svipar framenda hans mjög til gerbreytts framenda Toyota Aygo-bílsins sem kemur brátt af nýrri kynslóð. Framendi beggja bílanna er með X-laga formi sem reyndar er enn meira af- gerandi á Aygo og umfram allt mjög laglegt á þeim báðum. Aðal- ljós Yaris hafa breyst, hliðarspeglar, afturljós og afturstuðari. Þá er nú komið í Yaris Touch 2 margmiðlunarkerfi með 7 tommu skjá. Margt nýtt að innanverðu Einnig hafa verið gerðir jákvæðar breytingar á innréttingunni og er hún sem fyrr einkar snyrtileg og stílhrein án íburðar. Hvern- ig mætti annað vera fyrir ódýran bíl? Yaris-eigendur munu ekki þekkja hið nýja mælaborð sem í nýjum Yaris er og fer þar einnig góð breyting með stórum mælum. Toyota hefur einnig breytt aft- urfjöðrun bílsins til góðs og er hann fyrir vikið sportlegri í akstri. Hann stendur ögn lægra á vegi og bæði framendinn og afturstuð- arinn eru lægri en í forveranum og fyrir það verður hann sport- legri útlits en það gæti komið niður á akstri hans í snjó. Engin breyting er þó í vélbúnaði bílsins en áfram um heilmikið úrval véla að ræða. Skoda mun kynna nýja gerð Fabia-smábílsins á bílasýningunni í París í október næstkomandi. Skoda hefur engu að síður birt fyrstu myndir af bílnum. Er hér um að ræða þriðju kynslóð þessa vin- sæla bíls. Fabia er nú 30 mm lægri á vegi og 90 mm breiðari en nú- verandi Fabia. Nýi bíllinn fær ytri línur að láni frá keppnisbílum Skoda, enda er hann allur sportlegri á að líta. Mikið ríður á að vel takist til hjá Skoda þar sem Fabia er næstvinsælasti framleiðslubíll fyrirtækisins á eftir Octavia. Skoda framleiddi 939.200 bíla á síðasta ári og ætlar á skömmum tíma að ná að framleiða 1,5 milljón bíla. Í ljósi þess að sala á Fabia féll um 12% á fyrstu sex mánuðum þessa árs í Evrópu eru vænting- ar Skoda-manna að sala hans muni aftur ná nýjum hæðum, en þess- ar sölutölur sýna hversu mikilvægt er að honum verði vel tekið. Nýr Fabia mun erfa margt frá nýjum Volkswagen Polo, en eins og kunn- ugt er fellur Skoda undir Volkswagen-bílafjölskylduna. Sami undirvagn verður í Fabia og í Polo og er hann að sjálfsögðu af MQB-gerð, eins og svo margir nýir bílar Volkswagen-fjölskyld- unnar. Sama fjöðrun verður undir bílnum, sem og bremsur og af- þreyingarkerfið verður einnig það sama. Vélaúrvalið verður einnig það sama og minnsta vélin aðeins þriggja strokka. Verð nýs Fabia hefur ekki verið gefið upp en núverandi Fabia kostar frá 11.640 evrum í Þýskalandi, eða 1,8 milljónum króna. Ódýrasta gerð Fabia í dag hjá Heklu kostar 2.320.000 krónur, svo ekki munar miklu. Fyrstu myndir af næsta Skoda Fabia Nissan Leaf í hleðslu. AÐSEND GREIN Jón Björn Skúlason Íslensk NýOrka

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.