Fréttablaðið - 02.09.2014, Síða 22
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 2. september 2014
Nú á haustmánuðum kemur
Cay enne-jeppinn frá Porsche
með breyttan svip og ýmsar
áhugaverðar breytingar frá
fyrri gerð. Ekki er um að ræða
kynslóðarbreytingu á bílnum
en þó er ansi margt nýtt í bíln-
um. Bíllinn breytist nokkuð út-
litslega, fær nýja húddlínu og
stærra grill og mun líkjast mjög
nefinu á nýja Porsche Mac-
an-sportjeppanum. Xenon-ljós
verða staðalbúnaður í öllum út-
færslum Cayenne.
Erfi r ýmislegt frá Macan
Afturljósin verða líka breytt og
önnur breyting að aftan felur
í sér að pústin koma nú út úr
afturstuðaranum. Afturhler-
inn verður auk þess rafdrifinn.
Hliðarsvipur Cayenne mun ekki
breytast að ráði. Að innan má
helst nefna að stýrið verður það
sama og er í Macan. Það er leð-
urklætt aðgerðastýri og mjög
sportlegt. Enn mun bætast við
gríðarmikinn staðalbúnað í bíln-
um og var hann þó ærinn fyrir.
Öflugri dísilvél sem eyðir minna
Ef til vill er stærsta breyting-
in fólgin í betrumbættri dísil-
vél, en þannig búnir hafa flest-
ir Cayenne-bílar selst hérlend-
is. Eldri vélin var 245 hestöfl en
fer nú í 262 hestöfl. Tog hennar
fer frá 550 Nm í 580 Nm. Með
nýju vélinni er Cayenne 7,3 sek-
úndur í hundraðið en var 7,6
sekúndur með þeirri eldri. Þrátt
fyrir aukið afl er eyðsla þess-
arar nýju vélar aðeins 6,6 lítr-
ar en var 7,2 í þeirri eldri. Þetta
eru alveg magnaðar tölur fyrir
svona stóran bíl og hreint óskilj-
anlegt hvernig Porsche tekst
ávallt að auka afl véla sinna og
minnka eyðslu þeirra í leiðinni.
Verð á nýjum Cayenne mun
haldast óbreytt, eða 13.990.000
krónur.
Nýr Cayenne E-Hybrid
Með þessum breytta Cayenne
mun Porsche nú bjóða upp á
enn eina gerð hans, Cayenne
E-Hybrid. Þetta er Plug-In-Hy-
brid-bíll sem stungið er í sam-
band við heimilisrafmagn.
Hleðslustöð fylgir bílnum. Hér
er um að ræða mjög áhuga-
verða og aflmikla útgáfu bíls-
ins. Hann er 416 hestöfl og
koma 333 þeirra frá 3,0 lítra
bensínvél og restin frá rafmót-
orum. Þessi bíll er ekki nema
5,9 sekúndur í hundraðið en
samt er uppgefin eyðsla hans
3,4 lítrar á hverja hundrað
kílómetra. Drægni á rafmagn-
inu er 18-36 kílómetrar og er
hugsað aðallega til borgarakst-
urs. Vélbúnaður þessa bíls er
kunnuglegur en sama drifrás
er í stóra Porsche Panamera-
bílnum. Þessi gerð bílsins
kemur örlítið seinna á markað
en dísilútgáfan.
PORSCHE CAYENNE
UPPFÆRÐUR
Fær öflugri dísilvél og nú kemur hann líka í E-Hybrid útfærslu.
Volkswagen Passat á sér langa
sögu en fyrsta gerð hans var
kynnt árið 1973. Hann hefur
ávallt verið mikilvægur bíll
fyrir Volkswagen og nú er komið
að sjöundu kynslóð hans sem
kynnt verður nú á haustdög-
um. Nýr Passat verður byggður
á MQB-undirvagninum og verð-
ur hann 85 kílóum léttari fyrir
vikið. Að utan er bíllinn örlítið
styttri og lægri en forverinn en
engu að síður er innanrými hans
meira, sem og höfuðrými fyrir
farþega.
Þó svo að Passat hafi í gegnum
tíðina ekki verið lúxusbíll hefur
hann aldrei komist eins nálægt
því og með þessari nýju kynslóð,
en bíllinn verður hlaðinn búnaði
og hægt verður að auka við hann
með valbúnaði. Þar á meðal er
360 gráðu myndavél sem sýnir
allt umhverfi bílsins, sjálfvirka
lagningu í bílastæði, búnað sem
greinir gangandi vegfarendur og
búnað sem varpar helstu upplýs-
ingum upp á framrúðuna. Mikið
val verður um vélbúnað en 240
hestafla dísilvél og 280 hestafla
bensínvél toppa það val.
Einnig verður nú hægt að fá
Passat sem Plug-In-Hybrid-bíl
og er hann 156 hestöfl og kemst
bíllinn fyrstu 50 kílómetrana á
rafmagni eingöngu. Þá er líklegt
að í kjölfarið verði í boði VR6-
útgáfa Passat með 3,0 lítra mjög
öfluga vél. Í Kína verður í boði
lengri útgáfa af Passat, en ein-
göngu þar. Sala nýs Passats hefst
strax í haust en bíllinn verður
kynntur blaðamönnum í október.
Styttist í nýjan Passat
Mun fást með 280 hestafla bensínvél og sem Plug-In-Hybrid.
Porsche Cayenne E-Hybrid er 416 hestafla spyrnukerra sem eyðir eingöngu 3,4 lítrum.
Enn bætist í flóru sportlegra lúxusjeppa með nýjum bíl frá
Land Rover-verksmiðjunum. Nú hefur 550 hestafla sérútgáfa
af Range Rover Sport bæst í hóp Mercedes-Benz ML63 AMG
og Porsche Cayenne Turbo. Land Rover-verksmiðjurnar hafa
náð ótrúlegu afli úr 5,0 lítra V8-vélinni í Range Rover Sport
SVR. Þessi sportlegi jeppi er aðeins 4,5 sekúndur í hundr-
aðið. Hann kemst því í hundraðið um 20 prósentum hraðar
en Mercedes-Benz ML63 AMG og jafn hratt og BMW X5 M
þrátt fyrir að vera í jeppaflokki frekar en í flokki sportjeppa.
Porsche Cayenne Turbo á þó metið í flokki sportjeppa, er 4,1
sekúndu í hundraðið. Þessi útgáfa af Range Rover Sport er
með átta gíra sjálfskiptingu og sama gírkassa og aðrar Sport-
útgáfur bílsins. Gírkassinn hefur verið endurstilltur, og skipt-
ir nú 50 prósent hraðar um gír en áður. Þrátt fyrir lúxus og
afl hefur ekki verið slegið af kröfum um eiginleika bílsins
utan malbiksins. Hann er með tveggja þrepa drif, loftfjöðrun
á öllum fjórum hjólum og tölvustýrt fjöðrunarkerfi sem stillir
virknina eftir aðstæðum hverju sinni.
550 hestafla sérútgáfa af
Range Rover Sport
Það hefur sannarlega ekki verið mikil endurnýjun bíla hjá Volvo á
undanförnum árum. Eina bílgerðin, utan XC90 jeppans sem Volvo
kynnti í síðustu viku, eftir að kínverska fyrirtækið Geeley keypti
Volvo af Ford er V40 bíllinn. Á næstu fjórum árum verður aldeilis
breyting á þessu, þar sem Volvo ætlar að endurnýja allar bílgerðir
sínar. Þessum bílgerðum er hægt að skipta í 3 flokka, þ.e. S40, V40
og XC40, S60, V60 og XC60 og S90, V90 og XC90, sem þegar er
kominn fram. S90-bíllinn á að taka við af núverandi S80-bíl og V90
tekur við af núverandi V70-bíl. Þá er XC40 glæný gerð og bætist í
flokk smárra jepplinga, sem svo vinsælir eru nú um heim allan.
Þessi lína bíla frá Volvo er því ansi skýr og einföld en saman-
stendur aðeins af bílum sem bera stafina 40, 60 og 90. Því hverf-
ur talan 70 úr bílalínu Volvo og með henni XC70-bíllinn sem XC60
mun leysa af hólmi. Volvo mun áfram framleiða R-Design-útgáfur
af bílum sínum og einnig kraftaútgáfur sumra af bílum sínum sem
bera nafnið Polestar. Ekki er ljóst nú hve margar af þessum 9 bíl-
gerðum fá þá meðhöndlun. Polestar-útgáfur bílanna eiga að keppa
við BMW M-bílana, AMG-bíla Mercedes Benz og RS-bíla Audi.
Ekki fer neinum sögum af cuope- eða blæjubílum af ofannefnd-
um bílgerðum Volvo. Einnig fer engum sögum af framtíð Con-
cept Coupe-tilraunabíls Volvo, en margir bíða spenntir eftir fram-
leiðslu hans, enda þykir hann einkar spennandi í útliti.
Volvo seldi innan við 400.000 bíla á síðasta ári en allt stefn-
ir í 450.000 bíla sölu í ár. Á næsta ári ætlar Volvo að selja 500.000
bíla en stefnan á allra næstu árum er að framleiða 800.000 bíla
á hverju ári. Það er brött áætlun en viðtökur undanfarið, sann-
færandi áætlun Volvo og hrifning á nýjum bílum Volvo gæti gert
þessa áætlun að veruleika.
Volvo endurnýjar allan
bílaflotann á næstu 4 árum