Fréttablaðið - 02.09.2014, Síða 40
2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Söru
McMahon
Mér finnst
bara svo sorg-
legt að fólk sé
að búa til músík
bara fyrir
peninga. Það
er allt í lagi en
það er einfald-
lega svo létt.
Frímann Ísleifur.
Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust,
horfin sumarblíða.
ÞANNIG hefst ljóð Kristjáns Jónssonar
„Haust“. Ólíkt skáldinu, sem síðar í ljóð-
inu segir allt kalt og dautt, er haustið
mín uppáhaldsárstíð; litadýrðin, fersk-
ur andblærinn og bláleitt rökkrið
sem einkennir síðkvöldin fylla mig
notalegri tilfinningu ár hvert.
Burtu er kæruleysið sem einkenn-
ir íslenskt sumar og við er tekin
alvara lífsins.
ÉG er í flokki þeirra sem hafa
aldrei vanist því að setja sér
áramótaheit, heldur eru mín
heit sett 1. september ár
hvert, einmitt þegar lífið
kemst aftur í fastar skorð-
ur. Nú hætti ég að missa úr
í ræktinni vegna ferðalaga
eða veisluhalda, mataræðið
verður tekið í gegn, áfenginu
úthýst tímabundið og loks ætla
ég að læra að prjóna. Og ykkur
að segja, þá hlakka ég brjálæðislega til!
ÉG átta mig á því að það eru ekki allir
sem deila þessu dálæti mínu á haustinu –
margir kveðja sumarið með miklum trega
og kvíða kuldanum og skammdeginu sem
bíða hlakkandi handan við hornið. En við
ykkur segi ég: Óttist ekki, því það er svo
margt sem haustið (og veturinn) hefur upp
á að bjóða.
TIL að mynda verður brátt nógu kalt til að
klæðast uppáhaldsprjónapeysu sinni aftur
og notalegt kertaljós mun lýsa upp dimm
haustkvöld. Löngunin í matarmiklar og
gómsætar súpur sem ylja manni niður í tær
kemur einnig með haustinu – sér í lagi eftir
frískandi göngutúr þar sem allra dásamlegu
haustlitanna er notið. Haustið er einnig tími
uppskerunnar – ímyndið ykkur bara nýupp-
tekið smælki löðrandi í (íslensku) smjöri og
með svolitlu fersku dilli ofan á! Svo er orðið
sjálft líka svo afskaplega fallegt og róman-
tískt. Segið það með mér: „Haust.“ Já, haust-
ið er svo sannarlega tíminn!
SVO skemmir ekki fyrir að ég á afmæli að
hausti.
Horfi n sumarblíða
Lady Boy Records er sjálfstæð
íslensk plötuútgáfa sem stofnuð var
árið 2012 af Reykvíkingunum Frí-
manni Ísleifi Frímannssyni og Nic-
olas Kunysz. Yfirlýst markmið Lady
Boy Records er að bjóða upp á tón-
listarútgáfu sem „byggir frekar á
listrænum markmiðum heldur en
markaðsvænum.“ Tónlistin er nefni-
lega gefin út á kassettum.
„Við föttuðum að það er miklu
nánara að hlusta á kassettur og
vínyl. Ég hlusta ekki á geisladiska
– ég keypti fullt af þeim í gamla
daga og maður setur þá bara inn á
tölvuna og hlustar ekki aftur á disk-
inn,“ segir Frímann Ísleifur. „Þegar
þú færir geisladisk inn á tölvuna þá
geturðu bara ýtt á „play“ og farið að
vaska upp en ef þú hlustar á vínyl
eða kassettu þá er það athöfn, eins
og að lesa bók eða horfa á mynd –
miklu nánari upplifun. Þá er tónlist-
in ekki lengur eins og bakgrunns-
tónlist heldur einhver hlutur sem þú
vilt gera.“
Að sögn Frímanns snýst fyrir-
tækið fyrst og fremst um listina.
„Þetta snýst ekki um peninga,“
segir hann. „Fyrir fyrstu útgáf-
una höfðum við bara efni á fimm-
tíu kassettum. Að koma út á sléttu
er miklu frekar markmiðið heldur
en að koma út í gróða. Ef við fáum
að gefa út plötu með góðri músík og
endum í gróða líka, þá er það bara
bónus en ekki markmiðið sjálft. Mér
finnst bara svo sorglegt að fólk sé
að búa til músík bara fyrir peninga.
Það er allt í lagi en það er einfald-
lega svo létt.“
Um helgina hélt útgáfan utan um
tónleika Pink Street Boys, „hávær-
ustu hljómsveitar Íslands“, til að
fagna nýrri kassettu þeirra, Trash
from the Boys. „Fimm hljómsveit-
ir komu fram á tónleikunum og það
kostaði einungis 500 krónur inn. Mér
finnst að allir eigi rétt á að njóta list-
ar, ekki bara fólk með peninga.
Þetta á líka að veita öðrum inn-
blástur til að gera hið sama. „Ef
þeir geta gert það, þá get ég það.“
Það eru ekki nógu margir að gefa
út tónlist reglulega, þótt íslensk
plötufyrirtæki séu mörg. Hvað eru
til dæmis 12 Tónar eða Smekkleysa
að gefa út? Markmiðið okkar er að
gefa út tónlist einu sinni á mánuði.“
- þij
Snýst ekki um að græða peninga
Listræn en ekki markaðsvæn plötuútgáfa gefur út kassettur. Markmiðið er að gefa út tónlist mánaðarlega.
HUGSJÓNAMENN
Frímann og Nicolas
standa á bak við Lady
Boy Records.
MYND/ANTON BRINK
Þegar Lady Boy Records fær tónlist upp í hendurnar þá er hún send til
verksmiðju í Bretlandi til að framleiða kassetturnar. Þegar þær koma til
landsins eru umslögin framleidd og kassetturnar skreyttar með leiser,
stimpli eða prenti.
Hægt er að kaupa kassettuútgáfurnar í plötubúðum svo sem Lucky
Records, Smekkleysu, 12 Tónum og einnig í Mengi. Hægt er að senda póst
á ladyboyrecords@gmail.com til að fá niðurhalskóða.
Kassettutæki eru ekki framleidd lengur. Hægt er að finna þau notuð
en margir gamlir bílar eru til dæmis enn með kassettutæki. Ef þú átt
gamlan geisladiska- eða vínylspilara er líklegt að hann spili einnig kass-
ettur. Blaðamaður athugaði á Bland.is og komst að því að þar fást tæki á
verðbilinu 2.500-20.000 krónur.
Hvernig virkar þetta?
Ricky Gervais
@rickygervais
1. september
Það er mikilvægara
að eyða orku í að reyna að
stöðva slæma hluti en að reyna
að stöðva skrýtlur um slæma
hluti.
STJÖRNURNAR Á
TWITTER
Lena Dunham
@lenadunham
1. september
Rökin „Ekki taka
nektarmyndir ef þú vilt ekki
hafa þær á netinu“ eru jafnvíg
„Hún var í stuttu pilsi“. Oj.
Basshunter
@basshunt
1. september
Gaman í Liverpool
í gærkvöldi, fer til Íslands á
miðvikudag á risatónleika sem
er uppselt á!!!
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
NEW YORK DAILY NEWS HITFIX
TMNT 2D KL. 3.30 - 5.45 -
TMNT 3D KL. 8 - 10.15
TMNT 3D LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8
THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER LÚXUS KL. 10.15
LET́S BE COPS KL. 5.40 - 8 - 10.20
EXPENDABLES KL. 8 - 10.40
FLUGVÉLAR ÍSL. TAL 2D KL. 3.40 - 5.50
FLUGVÉLAR ÍSL. TAL 3D KL. 3.40
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15
ARE YOU HERE KL. 8 - 10.30
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8
NIKULÁS Í FRÍI KL. 5.45
SEX TAPE KL. 8
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 10.15
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 10.15
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
MIÐASALA Á
TMNT 3D 5:50, 8
ARE YOU HERE 10:10
LET’S BE COPS 5:45, 8, 10:15
THE EXPENDABLES 10
LUCY 8
AÐ TEMJA DREKAN SINN 2D 5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Save the Children á Íslandi