Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.09.2014, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 02.09.2014, Qupperneq 46
2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26 „Ég fæ mér oftast hafragraut með kanil og til að fá ekki leiða set ég t.d. banana, epli, bláber, jarðarber og stundum kókosflögur út í.“ Þorgerður Anna Atladóttir handboltakona. MORGUNMATURINN „Ég ákvað að skrá mig bara í stutt nám til að byrja með til að athuga hvort þessi skóli hentar mér. Nám- skeiðið í haust byrjar mánudaginn næsta og því lýkur í nóvember,“ segir sundkonan Ragnheiður Ragn- arsdóttir. Hún flutti í síðustu viku til Los Ang eles þar sem hún hyggst stunda nám við New York Film Academy. Þar ætlar Ragnheiður að taka námskeið í kvikmynda- leik. Aðspurð segist Ragnheiður ætla að byrja á þessu námskeiði og sjá hvernig henni líst á borgina. Hún reiknar með því að koma heim um jólin en fara svo aftur út. Ragn- heiður á að baki glæstan feril sem sundkona en hún var aðeins 19 ára gömul þegar keppti á Ólympíuleik- unum 2004, yngst íslenskra sund- kvenna og keppti svo aftur á leik- unum árið 2008. Ragnheiður fór út ásamt eigin- manni sínum, Atla Bjarnasyni, við- skiptafræðingi og athafnamanni, og syni þeirra, Breka. „Það eru margir spenntir fyrir að koma í heimsókn svo við verð- um líka upptekin í túristaleik með þeim sem ætla að kíkja í heim- sókn, svona þegar ég verð ekki í skólanum,“ segir Ragnheiður spennt fyrir nýjum ævintýrum í fyrirheitna landinu. - asi Stingur sér á bólakaf í leiklistina Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir fl ytur til Los Angeles með fj ölskylduna ➜ Meðal gestakennara í New York Film Academy í ár eru Kevin Spacey, Steven Spielberg og Sir Ben Kingsley. SPENNANDI TÍMAR Ragnheiður slær ekki slöku við. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Tónskáldið Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Public Choice Awards á The World Soundtrack Awards fyrir tónlistina í myndinni the Prisoners sem var frumsýnd við góðar orðstír í fyrra. Um net- kosningu er að ræða þar sem tónlist Jóhanns etur kappi við tónlist úr myndum á borð við Noah, Gravity, American Hustle og Frozen. Það er því í höndum almennings hver hreppir hnossið en hægt er að kjósa inni á síðunni Worldsoundtrack- academy.com til 15. september. Í samtali við Fréttablaðið þegar Prisoners var frumsýnd fyrir einu ári lýsir Jóhann þessu sem drauma- verkefni og segir samstarfið við leikstjóra myndarinnar, Denis Villeneuve, hafa verið sérlega gott. „Ég bjóst eiginlega ekki við að þetta yrði svona áreynslulaust enda hefur maður heyrt alls konar hryllingssögur frá fólki sem vinnur í Hollywood-maskínunni.“ Jóhann er kominn á fullt í Holly- wood og með mörg járn í eldinum. Hann var að ljúka við að semja tónlistina við myndina Theory Is Every thing í leikstjórn James Marsh, sem er þekktur fyrir heim- ildarmyndir á borð við Óskarsverð- launamyndina Man on Wire. Mynd- in fjallar um Stephen Hawking og er með þeim Eddie Redmayne og Felicity Jones í aðalhlutverkum. Myndin verður frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Toronto síðar í mánuðinum. Einnig semur Jóhann tónlistina fyrir myndina Sicario með þeim Emily Blunt, Josh Brol- in og Benicio Del Toro í aðalhlut- verkum og verður hún frumsýnd á næsta ári. - áp Keppir um verðlaun fyrir Prisoners Jóhann Jóhanns tilnefndur til The World Soundtrack Awards fyrir kvikmyndatónlist. „Ég var í fimleikum í tíu ár en hætti fyrir rúmu ári. Frænka mín var í þessu sporti og þann- ig fékk á ég áhugann,“ segir hin sautján ára Sól Stefánsdóttir, sem er yngsti þátttakandi í Pole Sport Championship, eða meistara- mótinu í súlufimi sem fer fram í Prag, höfuðborg Tékklands, í lok september. Þrátt fyrir ungan aldur er þetta annað mótið sem Sól keppir á, en hún sigraði í unglingaflokki hér heima fyrr í vor. „Fimleikarnir eru rosalega góður grunnur fyrir þessa íþrótt, það halda margir að þetta sé bara einfalt að dansa í kringum súluna, en þetta er bara rosalega erfitt. Maður verður að vera mjög sterkur líkamlega og þetta krefst mikillar tækni.“ Aðspurð segist Sól ekki finna fyrir fordómum vegna þess að hún æfir súlufimi enda sé áhersla lögð á að þetta sé alvöru íþrótt. „Foreldrum mínum leist aldrei beint illa á þetta, en núna þegar þau vita hvernig þessi íþrótt er þá styðja þau mig bara heilshug- ar,“ segir Sól, sem stundar nám í Menntaskólanum við Sund á félags- og hagfræðibraut sam- hliða æfingunum. Súlufimi er íþrótt sem hefur vaxið mikið hér á landi síðustu ár. Íþróttin hefur notið síaukinna vinsælda en til marks um það má nefna að Íslendingar koma til með að eiga sjö fulltrúa á þrem- ur stórmótum erlendis sem hald- in verða í september og október. Keppnin í Prag er talin sú erf- iðasta og hún snýst um að gera eins flókin brögð og mögulegt er. Sem fyrr segir er Sól sú yngsta sem keppir en hin 28 ára Eva Dögg er elsti keppandinn. Sól hefur náð miklum árangri á stuttum tíma í íþróttinni en hún hóf að æfa íþróttina í febrú- ar á þessu ári. Fyrir keppni sem þessa æfir hún fimm daga vik- unnar, yfirleitt tvo klukkutíma í senn. Hún tekur sér þó frí um helgar. Keppnisatriðið er heil rútína sem hún semur sjálf. Atriðið hennar er þrjár mínútur og fjöru- tíu sekúndur, en atriðin mega ekki vera lengri en fjórar mínút- ur í heildina. - asi Erfi ð íþrótt sem snýst ekki bara um súluna Sól Stefánsdóttir hefur náð frábærum árangri í súlufi mi þrátt fyrir ungan aldur. ● Hátt í tvö hundruð manns stunda súlufimi á Íslandi ● Sex karlmenn stunda íþróttina núna, en flestir hafa þeir verið sjö í einu. Sá sem hefur verið lengst byrjaði að æfa 2010. ● Erfiðara er fyrir karlmenn að komast að í stóru keppnunum, því sjaldan eru þeir bestu slegnir út. ➜ Um súlufimi KREFST MIKILLAR TÆKNI Sól Stefánsdóttir hefur æft súlufimi í sjö mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Það halda margir að þetta sé bara einfalt að dansa í kringum súluna, en þetta er bara mjög erfitt. Á FULLU Í HOLLYWOOD Jóhann Jóhanns son semur tónlistina fyrir myndina Theory Is Evereything sem fjallar um Stephen Hawking og verður frumsýnd síðar í mánuðinum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.