Fréttablaðið - 13.09.2014, Side 2
13. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
SKIPULAGMÁL „Við erum 100 prósent
sammála slökkviliði og lögreglu um
að húsið sé slysagildra. Við erum búin
að vara Reykjavíkurborg við þessu og
óskuðum síðast eftir því í ágúst að fá
að rífa húsið,“ segir Stefán S. Guðjóns-
son, fulltrúi eigenda húss að Veghúsa-
stíg 1 í Reykjavík.
Húsið, sem Stefán segir ónýtt eftir
að hitaveiturör sprakk í því fyrir fjór-
um árum, hefur staðið autt til margra
ára og er eitt af þeim húsum sem eru
á lista lögreglunnar og slökkviliðs
Reykjavíkur yfir yfirgefin hús og dóp-
greni í borginni. Stefán furðar sig á því
að á meðan slökkviliðið sé markvisst
að vinna að fækkun þessara húsa, fáist
ekki leyfi frá borginni til að rífa það
niður. Að sögn Stefáns hefur fjölskyld-
an ítrekað óskað eftir leyfi til að fá að
rífa húsið en án árangurs.
Stefán segir misræmi vera í fyrir-
mælum slökkviliðs og lögreglu ann-
ars vegar og borgarinnar hins vegar.
„Eftir lekann fór slökkviliðið fram á að
við myndum byrgja alla glugga og loka
húsinu. Nokkru síðar fengum við bréf
frá borginni þar sem við vorum beðin
um að mála húsið og laga gler í glugg-
um sem við gerðum. Nú vill slökkvilið-
ið aftur láta byrgja gluggana og maður
veit bara ekkert hverjum maður á að
taka mark á.“
Stefán gagnrýnir Reykjavíkurborg
fyrir seinagang og segir vanta kjark
og þor til að taka á málinu. Á meðan sé
húsið slysagildra.
„Í fyrstu var ástæðan sú að húsið var
talið friðað en Minjastofnun Íslands
hefur nú staðfest að húsið sé ónýtt og
aflétt friðuninni. Við ítrekuðum því
beiðni okkar um niðurrif, en þrátt fyrir
að þetta liggi fyrir virðist borgin ekki
geta tekið þessa ákvörðun. Ábyrgðin
er því algjörlega hennar. Þetta er stór-
hættulegt og bara tímaspursmál hve-
nær einhver slasar sig þarna.“
Björn Stefán Halldórsson, bygging-
arfulltrúi hjá Reykjavíkurborg, segir
að borgin vilji láta gera annað mat á
húsinu áður en endanleg ákvörðun
verður tekin um niðurrif þess.
„Húsið hefur þótt vera fulltrúi þess-
arar gerðar húsa frá þessum tíma á
þessum stað og hefur þótt gott hús til
þessa. Við viljum fyrst og fremst vera
viss um ástand hússins en ef það reyn-
ist vera ónýtt gæti reynst nauðsynlegt
að rífa það. Við erum í rauninni að láta
athuga hvað réttast sé að gera,“ segir
byggingarfulltrúi. hanna@frettabladid.is
➜ Skúli Mogensen,
forstjóri og eigandi
Wow air, segir fl ug-
félagið ætla að hefj a
áætlunarfl ug til Norð-
ur-Ameríku næsta vor.
Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítala–
háskólasjúkrahúss, segir
spítalann þurfa meira fé.
Spítalinn fái nú um 10
prósentum minna fé
úr ríkissjóði en hann gerði árið 2008
miðað við fast verðlag.
Helga Margrét Reykdal,
framkvæmdastjóri True North, segir
að framleiðendur kvikmyndarinnar
Noah, sem tekin var upp hér á landi
sumarið 2012, hafi ekki enn fengið
þá 20 prósenta endurgreiðslu frá
atvinnuvegaráðuneytinu sem þeim ber.
Bjarni Bjarnason,
forstjóri Orkuveitunnar,
ætlar að láta rífa sumar-
hús fyrirtækisins við
Þingvallavatn. Um er að
ræða svokallaðan for-
stjórabústað í Riðvík í landi Nesjavalla og
verður hann rifi nn næsta sumar.
FRÉTTIR
VIKAN 6.9.➜12.9.2014
Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar,
segir jákvætt að spá Arion
banka geri ráð fyrir að
draga muni úr fj ölgun er-
lendra ferðamanna hér á landi á næstunni.
FIMM Í FRÉTTUM FLÝGUR TIL AMERÍKU OG FORSTJÓRABÚSTAÐUR RIFINN
LAUGARDAGUR Eldur í hvalasýningu Eldur kviknaði í
hvalslíkani á Hvalasýningunni á Fiskislóð. Líkanið var það
síðasta af 23 sem unnið hafði verið að hörðum höndum
undanfarnar vikur að setja upp og átti að opna sýninguna
fimm dögum síðar. Miklar sót- og vatnsskemmdir urðu á
sýningunni og ljóst að tjónið er mikið. Talið er mögulegt að
kviknað hafi í út frá rafsuðu en líkönin eru úr plastefni sem
fuðrar upp.
SUNNUDAGUR Nýr ritstjóri DV Á fundi nýrrar stjórnar
útgáfufélags DV var Hallgrímur Thorsteinsson ráðinn
ritstjóri DV og dv.is. Reynir Traustason var leystur undan
starfsskyldum sínum og hóf Hallgrímur störf á mánudeg-
inum.
MÁNUDAGUR Lögreglan stjórnar ekki internetinu
Erlend spjallsíða þar sem íslenskir karlmenn skiptast á
myndum af fáklæddum íslenskum stúlkum er enn í fullum
gangi. Lögreglan hefur rannsakað málið undanfarið hálft ár
og í samtali við Fréttablaðið sagði Friðrik Smári Björgvins-
son yfirlögregluþjónn lögregluna ekki geta stemmt stigu við
myndum sem deilt er á internetinu.
ÞRIÐJUDAGUR Þing sett Þingsetning hófst með guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni og var nýtt fjárlagafrumvarp
afhent klukkan fjögur. Helstu fréttir úr frumvarpinu voru
að áætlað er að lægra þrep virðisaukaskatts hækki úr sjö
prósentum í tólf og efra þrepið lækki úr 25,5 prósentum í
24 prósent þann 1. janúar á næsta ári.
MIÐVIKUDAGUR Börn haldi sig innan dyra Um-
hverfisstofnun sendi frá sér áríðandi tilkynningu til íbúa
á Reyðarfirði vegna mikils styrks brennisteinstvíildis, SO2.
Um var að ræða efni í lofti sem berast frá gosstöðvunum í
námunda við Bárðarbungu.
FIMMTUDAGUR Málsmeðferð gegn Gálgahraunsmót-
mælendum Aðalmeðferð í máli lögreglustjórans á höfuð-
borgarsvæðinu gegn níu einstaklingum sem handteknir
voru í mótmælunum í Gálgahrauni fór fram í Héraðsdómi
Reykjaness. Salurinn var þéttsetinn fólki og komust færri
að en vildu.
FÖSTUDAGUR Erlendir ferðamenn á Landspítalanum
Komum erlendra ferðamanna á Land-
spítalann hefur fjölgað verulega fyrstu
átta mánuði ársins,. María Heimis-
dóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Landspítalans, segir mikla vinnu á
bak við hvern erlendan sjúkling. „Það
er heilmikil pappírsvinna í kringum
erlenda sjúklinga og mun meiri en
kringum þá innlendu.“
Húsið hefur þótt vera
fulltrúi þessarar gerðar húsa frá
þessum tíma á þessum stað og
hefur þótt gott hús til þessa.
Björn Stefán Halldórsson,
byggingarfulltrúi Reykjavíkur.
Sigur Íslands á Tyrkjum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hóf
undankeppni EM 2016 með látum
á Laugardalsvelli á þriðjudag þegar
Tyrkjum var skellt í fyrsta leik, 3-0.
Jón Daði Böðvarsson, Gylfi Þór
Sigurðsson og Kolbeinn
Sigþórsson skoruðu
mörk Íslands. „Það er
ekkert annað hægt en að
vera hamingjusamur þjálfari
eftir svona leik. Þetta var nánast full-
kominn leikur fyrir okkur þjálfarana,“
sagði Heimir Hallgrímsson, annar lands-
liðsþjálfara Íslands.
GLEÐIFRÉTTIN
Slysahætta af húsi sem
borgin leyfir ekki að rífa
Eigendur hússins að Veghúsastíg 1 hafa ítrekað sótt um leyfi til niðurrifs og segja húsið ónýtt.
Húsið er á lista lögreglu og slökkviliðs um yfirgefin hús og dópgreni. Byggingarfulltrúinn í
Reykjavík segist vilja láta endurmeta ástand hússins áður en örlög þess verða endanlega ráðin.
ÓNÝTT HÚS Stefán S. Guðjónsson, fulltrúi eigenda, vill láta rífa húsið sem hann segir skapa slysa-
hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans, segir Vig-
dísi Hauksdóttur formann fjárlaga-
nefndar Alþingis fara með fleipur
þegar hún haldi því fram að fram-
lög til sjúkrahússins hafi numið 10
milljörðum með fjárlögum ársins
2014 og frumvarpi til ársins 2015.
Þar með hefði niðurskurður verið
jafnaður.
Þetta kemur fram í forstjórapistli
sem Páll ritar á vef Landspítalans í
gær. Í honum vitnar Páll í ummæli
sem Vigdís lét falla í gærmorgun
á Bylgjunni. Páll segir að ef jafna
hefði átt hall-
ann hefðu fram-
lög til sjúkra-
hússins orðið að
nema 16 milljörð-
um króna á tíma-
bilinu. Framlögin
þessi tvö ár hafi
hins vegar numið
6,3 milljörðum
króna.
„Þetta fer nokkuð fjarri þeim
tíu milljörðum sem formaðurinn
nefndi,“ segir forstjórinn og held-
ur áfram. „Staðreyndin er sú að í
ár fær Landspítali um 10 prósent
minna fé til reksturs en hann fékk
árið 2008 miðað
við fast verðlag.“
Að sögn Páls
hefur síðan þá
ekki einungis
verið hagrætt gríðarlega í starf-
seminni, eins og formaður fjárlaga-
nefndar bendir réttilega á heldur
hafi einnig verið bætt við fjölmörg-
um nýjum verkefnum. Þar tiltekur
forstjórinn sérstaklega þjónustu við
eldri borgara. - jme
Forstjóri Landspítalans segir ekki búið að jafna niðurskurð hjá Landspítala:
Segir Vigdísi fara með rangt mál
Stað-
reyndin er sú
að í ár fær
Landspítali
um 10 pró-
sent minna fé
til reksturs en
hann fékk árið 2008
miðað við fast verðlag
Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans.
VIGDÍS HAUKS-
DÓTTIR