Fréttablaðið - 13.09.2014, Síða 10
13. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÞRÓUNARSAMVINNA Fjárlagafrum-
varpið gerir ráð fyrir að fram-
lög til alþjóðlegrar þróunarsam-
vinnu skerðist. Það felur í sér að
framlögin eru ekki í samræmi
við þingsályktun um áætlun um
alþjóðlega þróunarsamvinnu sem
samþykkt var í mars 2013.
Alls er áætlað að hlutfall fram-
laganna af vergum þjóðartekjum
verði 0,22 prósent en samkvæmt
þingsályktuninni hefðu þau átt
að vera 0,35 prósent á næsta ári.
Markmið Sameinuðu þjóðanna
kveður á um að iðnríki skuli veita
sem nemur 0,7 prósent af verg-
um þjóðartekjum til þróunarsam-
vinnu. Í þingsályktuninni kemur
fram að markmið Íslendinga skuli
vera að leggja lóð á vogarskál-
arnar gegn fátækt og fyrir bætt-
um lífskjörum í fátækustu hlutum
heims. Þannig verði leitast við að
uppfylla pólitískar og siðferðisleg-
ar skyldur landsins sem ábyrg þjóð
í samfélagi þjóða.
Á sama tíma og framlög til þró-
unarsamvinnu eru skorin niður
eru þau aukin til hernaðartengdrar
samvinnu. Á fjárlögunum er gert
ráð fyrir hækkun á framlögum til
Atlantshafsbandalagsins, NATO,
um rúmlega sjö milljónir. Á fjár-
lögum 2014 voru þau 265 milljónir
króna en verða nú 272,3 milljónir.
Þannig er farið fram á 14,4 millj-
óna króna hækkun á tímabundnu
framlagi vegna byggingar höfuð-
stöðva NATO til viðbótar við 104,2
milljóna framlag í gildandi fjár-
lögum. Áætlað er að heildarkostn-
aður Íslands við bygginguna verði
2.937.185 evrur sem jafngildir
rúmlega 450 milljónum íslenskra
króna á viðmiðunargengi evru í
frumvarpinu. fanney@frettabladid.is
Fé til þróunarsamvinnu enn skert
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2015 eru framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu skert en framlög til hernaðartengdrar starfsemi eru aukin.
„Það eru mikil vonbrigði að nú skuli annað árið í röð vera lögð fram fjár-
lög þar sem að snúið er af leið aukningar á framlögum sem sameinaður
vilji Alþingis sagði fyrir um í þróunarsamvinnuáætlun. Þess utan eru það
auðvitað viðbótarvonbrigði að hlutur Þróunarsamvinnustofnunar skuli
minnka sem hlutfall af heildarþróunarframlögunum. Ég vona auðvitað
að þetta breytist allt saman í meðförum þingsins,“ segir Engilbert Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
„Það er auðvitað mikið umhugsunarefni að á sama tíma eigi að auka
framlög til hernaðartengdrar starfsemi. Það er mitt mat að þróunarsam-
vinna skili svo miklu meiru fyrir frið í heiminum en hernaðarstarf. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa bent á að fátækt og ójöfnuður séu ein helsta orsök
stríðsátaka í heiminum, þess vegna skiptir einmitt svo miklu máli að við
sem erum ríkari reynum að láta okkar af hendi rakna til að styrkja stöðu
fátækari þjóða,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Ekki náðist í Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra.
Ísland er langt á eftir öðrum þjóðum
HJÁLPARSTARFSEMI Þróunarsamvinnustofnun Íslands starfar meðal annars í
Úganda, Malaví og Mósambík. MYND/GUNNI SAL