Fréttablaðið - 13.09.2014, Síða 26
13. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
JÓN ÓTTAR ÓLAFSSON UM SÉRSTAKAN SAKSÓKNARA
Er bitur eftir kæruna
Ég neita því ekkert að ég er
bitur út í marga aðila inni í
kerfinu eftir þessa atburðarás,
hvernig þeir tóku á þessu.
Eins og í sælgætisbúð
Stemmingin í kringum þetta
var eins og hjá krökkum í sælgæt-
isbúð; nú vissu menn betur hvern-
ig verjendur sakborninga myndu
stilla vörninni upp.
Allir öskrandi á blóð
Það voru allir öskrandi á blóð og að
það yrðu einhverjir settir í fangelsi. Ég
held að sú pólitíska pressa, fjölmiðlafár og
múgæsing sem var í Guðmundar- og
Geirfinnsmálunum, það gerðist bara aftur.
Sérstakur saksóknari kærði Jón Óttar Ólafsson, fyrr-verandi rannsóknarlög-reglumann hjá embætt-inu, og meðeiganda hans í félaginu Pars Per Pars til
ríkissaksóknara árið 2012. Kæru-
efnið laut að brotum á þagnarskyldu
í starfi þegar þeir létu skiptastjóra
Milestone hafa rannsóknargögn um
Milestone. Ríkissaksóknari taldi
málið ekki nægjanlegt til sakfell-
is og lét það niður falla í febrúar í
fyrra.
Jón Óttar segir að eftir á að
hyggja hafi það verið mistök að
starfa hjá sérstökum saksóknara
á sama tíma og þeir störfuðu fyrir
skiptastjóra Milestone. Hins vegar
sýni gögn málsins að kæra sér-
staks saksóknara hafi verið byggð
á vísvitandi rangfærslum. Jón
Óttar segir það vera eina hræðileg-
ustu tilfinningu sem hann hafi upp-
lifað þegar hann áttaði sig á því að
fyrrverandi vinnufélagar hans til
margra ára hafi vitað að hann væri
saklaus en samt reynt að koma
honum í fangelsi.
Kæran til ríkissaksóknara
Eftir að hafa unnið í fullu starfi hjá
sérstökum saksóknara um nokk-
urt skeið fór Jón Óttar í 50 prósenta
starf hjá embættinu í nóvember
2011. Á móti starfaði hann í hálfu
starfi í verktakavinnu á einkamark-
aði í desember 2011 sem sjálfstætt
starfandi rannsakari undir merkj-
um Pars Per Pars. Hann segir að
þetta fyrirkomulag hafi verið með
fullri vitund og samþykki sérstaks
saksóknara.
Í desember 2011 vann Jón Óttar
fyrir Milestone og segir þá vinnu
hafa verið með vitneskju og sam-
þykki Hólmsteins Gauta Sigurðs-
sonar, saksóknara hjá sérstökum
saksóknara, sem var næsti yfir-
maður hans. Þar liggi meðal ann-
ars fyrir tölvupóstar þar sem sak-
sóknarinn heimili afhendingu
gagna til skiptastjóra Milestone
og biðji skiptastjórann um að vera
í sambandi við Jón Óttar varðandi
afhendingu gagnanna. Frá áramót-
um 2011/2012 var hann alfarið sjálf-
stætt starfandi verktaki, meðal ann-
ars fyrir sérstakan saksóknara.
Jón Óttar segir að verktakasamn-
ingur um vinnu hans fyrir sérstak-
an saksóknara hafi hins vegar ekki
verið gerður fyrr en u.þ.b. þremur
mánuðum síðar, í mars 2012, en þá
hafi starfinu fyrir Milestone verið
lokið. Við undirritun samningsins
hafi hann átt að telja upp vinnu sem
hann vann fyrir aðra en sérstakan
saksóknara. Jón Óttar segist bara
hafa greint frá því að hann ynni
fyrir Glitni, enda hafi það verið eini
aðilinn sem hann vann fyrir á þeim
tíma. Það hafi Ólafur Þór Hauksson
vitað um og lýst því í samningnum
að hann væri samþykkur.
Jón Óttar segir að Ólafur Þór
hafi beðið sig um að dagsetja
samninginn aftur í tímann, til 2.
janúar 2012, til að leysa „ákveðin“
vandamál sem embættið hafi stað-
ið frammi fyrir og hafi Jón Óttar
orðið við því. „Vandamálið var það
að við höfðum í nokkra mánuði
unnið fyrir sérstakan saksóknara
í refsimálum, meðal annars yfir-
heyrt sakborninga, án þess að nokk-
uð væri til á pappír um þessa vinnu
okkar. Eftir að verjendur komust að
þessu og kvörtuðu meðal annars til
ríkissaksóknara út af gagnaflæði
frá sérstökum til skiptastjóra virð-
ast menn innan embættisins hafa
orðið hræddir og allt fór í baklás,“
segir hann. Nokkrum vikum síðar
var Jón Óttar kærður til ríkissak-
sóknara og segir hann að Ólafur
Þór hafi lagt fram fyrrnefndan
Kæran setti lífið úr skorðum
Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá sérstökum saksóknara, segir að viðhorf sín til rannsókna
efnahagsbrotamála séu gerbreytt eftir að hann sjálfur þurfti að svara fyrir kæru frá embættinu vegna brota á trúnaði í starfi.
Á MEÐAL TÍU FYRSTU
Jón Óttar starfaði hjá
embættinu frá stofnun
þess. Hann segir að frá
upphafi hafi menn rætt
að þeir þyrftu að passa
sig á þrýstingnum frá
samfélaginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is