Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 39
GLUGGAR OG GLER
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2014 Kynningarblað Gluggar ehf, Kjarnagluggar og steindir gluggar
Steindir gluggar voru upp-haflega notaðir til að upp-lýsa ólæsan almenning um
guðspjöllin en sýna margir í dag
óhlutbundna og huglæga tjáningu
þar sem einblínt er á túlkun hins
æðra með formum, litum og birtu,“
segir Gígja um steinda glugga sem
gegndu stóru hlutverki í trúboði
kirkjunnar.
„Birta glugganna þótti svo mátt-
ug að hún hefur verið talin geta
gefið fólki tilfinningu fyrir því
hvernig væri að vera undir náðar-
birtu Guðs.“
Dulrænt andrúmsloft
Gígja valdi í námi sínu í listfræði að
skoða samband byggingarlistar og
steindra glugga í Kópavogskirkju og
Bústaðakirkju.
„Ég valdi þessar tvær kirkjur
vegna þess að þær eru mjög ólík-
ar og sömuleiðis steindu gluggarn-
ir sem skreyta þær. Þau Gerður og
Leifur eru ólíkir listamenn, störf-
uðu á mismunandi tíma og sóttu í
ólíkar hefðir,“ segir Gígja og vísar til
Gerðar Helgadóttur myndhöggvara
sem skapaði steinda glugga Kópa-
vogskirkju og myndlistarmanns-
ins Leifs Breiðfjörð sem hannaði
steinda glugga Bústaðakirkju.
„Margt er ólíkt í nálgun og út-
færslu listafólksins. Þannig notaði
Gerður mun dekkri liti og er birtan í
kirkjunni þar af leiðindi minni. Hún
skapar dulrænt andrúmsloft með
bláum og rauðum tónum í anda
gömlu gotnesku kirknanna í Frakk-
landi. Verk Leifs er mun ljósara og
notar hann að mestu hvítt gler en
einnig gráan, svartan og rauðan lit.
Formin eru líka ólík. Blýlínur glers-
ins í Kópavogskirkju mynda flæð-
andi hvöss og mjúk form en gler Bú-
staðakirkju er skreytt með sterkum
línum og kröftugum formum,“ segir
Gígja.
Vinnuferli Gerðar og Leifs voru
einnig ólík.
„Mikið er til af heimildum þar
sem Leifur fjallar um mikilvægi
sambands listamanns og arkitekts
og hvernig vinna eigi steindan
glugga svo vel til takist, en í viðtöl-
um sem tekin voru við Gerði fjallaði
hún frekar um glerlistaverk sín sem
sjálfstæð listaverk og ekki í sam-
hengi við arkitektúrinn.“
Hluti af heildararkitektúr
Saga steindra glugga á Íslandi hófst
um miðja 20. öld þegar farið var að
byggja módernískar kirkjur.
„Stærri kirkjur kölluðu á stærri
myndverk og um leið varð hlutverk
listamannsins stærra og færðist
meira í það horf að skapa umhverfi
kirkjunnar.“
Gígja segir glerlistaverk Gerðar
og Leifs bæði mjög stór og vera hluta
af arkitektúr kirkjunnar.
„Bæði eru óhefðbundin abstrakt-
verk sem falla ekki endilega undir
flokk kirkjulistar. Listamennirnir
leggja bæði áherslu á form og línur,
að litir skapi sinn eigin heim og
að ekki þurfi að réttlæta listaverk-
ið á annan hátt en að vera trúverð-
ug list.“
Samvinnan mikilvæg
Að sögn Gígju þurfa listamenn og
arkitektar að hefja samvinnu um
leið og frumdrög að kirkju eru gerð
og fá nauðsynlegar upplýsingar
hvor hjá öðrum.
„Í námi Leifs var lögð mikil
áhersla á samspil glermynda og
bygginga og honum kennt að vinna
forvinnuna vel með því að kynna
sér aðstæður og skoða birtu á mis-
munandi tímum. Athuga þarf
hversu mikla birtu steindir gluggar
eiga að gefa og hvort þeir eigi að
móta umhverfi kirkjunnar með lita-
vali. Birtan á Íslandi er mun kald-
ari en á suðlægri slóðum og Leifur
notar því heitari liti í glugga hér á
landi. Ef glugginn er í sólarátt getur
hann hins vegar notað kalda liti og
ef það er fallegt útsýni notar Leifur
glært gler með því litaða svo að út-
sýnið njóti sín betur.“
Heilagur ljómi og náðarbirta
BA-ritgerð Gígju Rósar Þórarinsdóttur í listfræði við Háskóla Íslands fjallar um samband byggingarlistar og steindra glugga
í Kópavogskirkju og Bústaðakirkju. Hún segir samvinnu listamanna og arkitekta mikilvæga við gluggagerðina.
1. Leifur Breiðfjörð notar
að mestu hvítt gler með
gráum, svörtum og
rauðum litum í Bústaða-
kirkju. 2. Steindir gluggar
Gerðar Helgadóttur skapa
dulrænt andrúmsloft með
bláum og rauðum lita-
tónum í Kópavogskirkju.
3. Börn í Kárnsesskóla hafa
unnið falleg myndverk úr
steindum gluggum Gerðar
Helgadóttur sem nú
hanga uppi í Kópavogs-
kirkju. MYNDIR/GVA
Gígja Rós Þórarinsdóttir.1 2
3