Fréttablaðið - 13.09.2014, Side 44
FÓLK|HELGIN
KRAFTA-
VERK
„Ég myndi
kannski ekki
mæla með
því að konur
frestuðu fæð-
ingum fram
yfir fertugt
en því miður
koma börn-
in ekki eftir
pöntun,“ segir
Bryndís sem
er 49 ára.
þær óski að eiga börn sín. „Ég
myndi kannski ekki mæla með því
að konur frestuðu fæðingum fram
yfir fertugt en því miður koma
börnin ekki eftir pöntun. Það er
hins vegar frábær upplifun að
eignast barn á þessum aldri og
þarf ekki að stoppa mann frá því
að lifa lífinu. Við erum til dæmis
búin að bóka sumarfrí til Banda-
ríkjanna næsta sumar með alla
fjölskylduna. Ég verð bara ótrú-
lega töff á sextugsaldri að elta
ungana mína,“ segir hún. „Þau
munu halda mér ungri.“
Bryndís á vinkonu sem er orðin
amma og aðrar sem eru að gifta
börnin sín. „Þær gifta og ég skíri,“
segir hún og hlær. „Hér hefur ver-
ið gott veður í allt sumar og mér
finnst einstaklega skemmtilegt
að labba úti með tvíburavagn-
inn,“ segir þessa stolta móðir og
bætir við: „Börnin veita mér mikla
hamingju.“
Bryndís segir að þeim líði vel í
Ósló. Þau hafa búið sér heimili á
góðum stað nálægt Holmenkollen
þar sem stutt er í náttúruparadís.
„Við ætluðum í fyrstu ekki að setj-
ast hér að í langan tíma en þegar
hrunið varð á Íslandi var ekki
mjög fýsilegt að snúa til baka. Við
erum bæði í góðu starfi og ekki
á heimleið á næstunni hvað sem
síðar gerist.“
FULL LAUN Í FÆÐINGARORLOFI
Fyrst eftir að Bryndís flutti til
Noregs skrifaði hún fyrir íslensk
blöð en síðan langaði hana að
vera meira meðal fólks. „Ég fékk
vinnu hjá Olíufyrirtækinu VNG
Norge og er búin að starfa hjá
þeim í rúm sex ár. Ég starfa á
upplýsingadeild og finnst afar
áhugavert að kynnast olíuiðnað-
inum á þennan hátt. Ég sakna
auðvitað blaðamennskunnar og
þess skemmtilega fólks sem vann
með mér en það er alltaf gaman
að kynnast einhverju nýju,“ segir
hún.
Bryndís hafði aldrei áður búið
í Noregi þótt hún hefði heimsótt
landið. Tveir af þremur bræðrum
hennar hafa búið þar lengi. Þegar
hún er spurð um fæðingarorlof
í Noregi segir hún það betra en
á Íslandi. Foreldrar halda sínum
launum á meðan á orlofinu
stendur en það er 49 vikur miðað
við eitt barn en 54 þegar um tví-
bura eru að ræða. Þar af á pabb-
inn rétt á 14 vikum.
FJÖLSKYLDUVÆNT SAMFÉLAG
Um helgina ætla þau að horfa á
dótturina Selmu keppa í frjáls-
íþróttamóti en hún hefur fetað
í fótspor móður sinnar. Bryndís
keppti lengi í frjálsum íþróttum.
„Hún hefur sérstakt dálæti á
langstökki en það var einmitt
mín grein,“ segir Bryndís ánægð
og bætir síðan við: „Hér er mjög
fjölskylduvænt samfélag og
sjaldgæft að fólk vinni eftirvinnu.
Yfirmaður minn er til dæmis
alltaf kominn í stuttbuxur og
með bakpoka klukkan fjögur. Þá
er farið í hjólaferð eða göngu
með fjölskyldunni. Á veturna eru
skíðin tekin fram. Það er ríkt í
menningunni hér að fjölskyldan
geri eitthvað saman.“
■ elin@365.is
Bryndís flutti til Noregs árið 2006 ásamt norskum eigin-manni sínum, Jan Fredrik
Rosenberg, og dótturinni Selmu,
sem nú er 8 ára. Þau langaði að
prófa að búa í Ósló. Lífið tók
síðan óvænta stefnu í sumar
þegar tvíburar komu í heiminn á
þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17.
júní. „Þetta var róttæk en ánægju-
leg breyting á högum okkar,“
segir Bryndís þegar við slógum
á þráðinn til hennar. „Umönnun
barnanna er vinna allan sólar-
hringinn. Tvíburarnir fæddust
tæpum sjö vikum fyrir tímann og
þetta var auðvitað svolítið erfitt í
fyrstu en núna er komin rútína á
líf þeirra. Edda var 1,9 kg við fæð-
ingu en Erik 1,8 kg. Þau eru að
ná fjórum kílóum svo allt hefur
gengið mjög vel,“ segir hin stolta
móðir. „Þetta er krefjandi verk-
efni en jafnframt afar ánægjulegt.
Það getur stundum reynst erfitt
að komast í sturtu eða fá sér að
borða því börnin þurfa athygli.
Ég vissi auðvitað á meðgöngunni
hvað biði mín og var undir það
búin. Maður gerir sér hins vegar
aldrei alveg grein fyrir hvernig
þetta verður fyrr en á reynir.
Selma er í skýjunum, enda lengi
búin að þrá systkini. Hún er af-
skaplega dugleg að hjálpa til.“
Um síðustu helgi voru litlu
krílin skírð og fengu nöfnin Edda
Hólm Rosenberg og Erik Hólm
Rosenberg. Núna um helgina
munu þau fagna með langömmu
sinni sem verður 90 ára. Það er
sannarlega ánægjulegt fyrir elstu
kynslóðina að kynnast þeirri
nýjustu.
KYNNTUST Á ÍSLANDI
Bryndís og Jan kynntust árið
1999 og giftu sig 2001. Hann starf-
aði hjá Járnblendifélaginu en
hún var þá í fjölmiðlaheiminum.
Fyrsta barnið fæddist árið 2005
og síðan komu litlu krílin níu
árum síðar. Þegar hún er spurð
hvort það hafi verið planlagt á
þessum aldri að stækka fjöl-
skylduna, svarar hún: „Óskin var
mjög heit að eignast fleiri börn
en það var fyrst nú sem hún varð
að veruleika. Edda og Erik eru al-
gjört kraftaverk. Meðgangan gekk
vel en það tók auðvitað á í lokin
að ganga með tvö börn. Þótt tví-
burarnir hafi fæðst fyrir tímann
voru þeir alveg tilbúnir að koma
í heiminn,“ segir Bryndís. „Ekki
var verra að það skyldi vera á
þjóðhátíðardaginn, þetta eru
sannir Íslendingar.“
EKKI EFTIR PÖNTUN
Bryndís segir að það fari auðvitað
eftir aðstæðum kvenna hvenær
VERÐ BARA ÓTRÚLEGA TÖFF MAMMA
KRAFTAVERK Það fjölgaði heldur betur í fjölskyldu Bryndísar Hólm, fyrrverandi fréttamanns á Stöð 2, í sumar þegar tvíburarnir
Edda og Erik komu í heiminn. Bryndís, sem er 49 ára, segir að litlu gleðigjafarnir taki allan hennar tíma þessa dagana.
SKÍRN Bryndís,
Jan og Selma
ásamt Eddu og
Erik á skírnardag-
inn. Skírnin fór
fram í Holmen-
kollen-kirkju 7.
september.
FLOTT Litlu kraftaverkin Edda og Erik
dafna vel.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fræðslu- og
myndakvöld
Í sal FÍ 17. september, kl. 20:00
Vatnavistkerfi á Íslandi
Gísli Már Gíslason prófessor í vatnalíffræði
Aðalvík-Hesteyri-Snæfjallaströnd
Ólöf Sigurðardóttir kennari
Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur
Allir velkomnir!
Vatnavistker
fi á Íslandi
Aðalvík-Hest
eyri-Snæfjall
aströnd
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is