Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2014, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 13.09.2014, Qupperneq 84
13. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40 Kristinn er að koma úr kennslu í Listaháskól- anum en gefur sér tíma í viðtal áður en æfing hefst í Hörpu á Don Carlo eftir Verdi. „Það er óralangt síðan ég hef tekið þátt í æfingaferli með Íslensku óperunni, líklega ekki síðan 1989 í brúðkaupi Fígarós,“ segir hann. „Síðan hef ég sungið sem gestur í tveimur sýningum, Rigol- etto á Listahátíð 1992 og Rakaranum í Sevilla 2002. Það eru sem sagt 12 ár frá því Kristinn söng síðast í óperu hér. Nú er hann í hlutverki Phil- ippusar konungs, föður Don Carlosar, sem óperan heitir eftir, og er valdamikill. „Þetta er söguleg ópera og óskaplega dramatísk,“ segir Kristinn. „Philippus II var aðalmaður- inn í heiminum á sextándu öld, hann átti lönd um allan heim og var í eilífum erjum. Það flétt- ast svo margt inn í söguna. Þetta er Spánn á tímum rannsóknarréttarins, saga um átök hjóna, átök föður og sonar og það eru líka átök milli kóngsins og kirkjuvaldsins. Drottningin var áður heitbundin Don Carlo, syni konungs- ins, sem ber enn heitar tilfinningar til hennar og kónginn grunar að þau eigi í ástarsambandi. Svo þetta er samansúrrað og flott drama og sagan safarík auk þess sem músíkin er alger- lega stórkostleg. Það er líka góður hópur sem er að vinna hér saman.“ Guðmundur Jóns góður kennari Kristinn hefur sungið þrjú hlutverk í Don Carlo áður, þar á meðal hlutverk Philippusar konungs. En skyldi hann hafa tölu á þeim hlut- verkum sem hann hefur þurft að lifa sig inn í um ævina? „Nei, en ég giska á að þau séu 60 til 70. Ég hef líka lengi verið að. Átti 30 ára sviðs- afmæli í hittifyrra.“ Hann kveðst hafa byrjað að læra söng hjá Guðmundi Jónssyni óperusöngvara. „Guð- mundur var svakalega góður kennari og hafði mikil áhrif á mig. Mér finnst alltaf eins og hann hafi kennt mér að minnsta kosti 80 til 85% af því sem ég kann. Svo fór ég til Vínar- borgar og lærði hjá konu sem heitir Helene Karusso og síðasti kennari minn var John Bullock í Bandaríkjunum. Ég var heppinn með kennara og líka hvaða röð var á þeim.“ Kristinn lærði líffræði í háskólanum og kveðst hafa orðið söngvari smátt og smátt, án þess að ákveða það beint. „Einn góðan veður- dag var ég bara orðinn söngvari,“ segir hann. „Var mikið í kórum og söng sóló í þeim og fór svo til Guðmundar og þannig vatt þetta upp á sig.“ Fyrsta óperuhlutverkið var í Sígaunabar- óninum 1982. „Eftir það fór ég til Vínar, kom svo heim, var í fleiri óperusýningum, söng við jarðarfarir og kenndi og fór svo til Bandaríkj- anna í frekara nám,“ rifjar hann upp. Óspennandi líf í augum margra Þótt Kristinn hafi búið á Íslandi að nafninu til frá árinu 1994 hefur megnið af vinnu hans farið fram erlendis. „Þetta er fyrsta haustið sem ég er heima í 20 til 30 ár,“ segir hann og maður hugsar ósjálfrátt til eiginkonu hans, Ásgerðar Þórisdóttur hjúkrunarfræðings. Svo næsta spurning er: Hvernig gengur svona hjónaband upp? „Það gengur ágætlega. Við Ásgerður giftum okkur 1973 og höfum átt farsælt hjónaband. Hún kemur oft og heimsækir mig ef ég er úti lengur en hálfan mánuð og svo reyni ég að vera alltaf heima á sumrin. Hægt og rólega er ég svo að minnka þessa vinnu úti, mig er farið að langa að vera meira heima. Ásgerður hefur verið eins og sjómannskona sem á mann í sigl- ingum. Sá mikið um uppeldi sonanna tveggja sem nú eru uppkomnir.“ Spurningu um hvort villtar meyjar í erlend- um borgum reyni að tæla myndarlega söngv- ara svarar hann rólega. „Menn geta auðvitað komið sér í klandur ef þeir vilja en glamúr- lífið kringum óperur er miklu minna en fólk heldur. Að minnsta kosti hjá mér. Ég lifi mjög óspennandi lífi í augum margra. Þetta er hörð vinna sem gerir kröfur til fullrar einbeitingar. Ég fer hægt og rólega að geta sagt að ferillinn sé búinn að vera langur og farsæll og ég þakka það vinnusemi númer eitt, tvö og þrjú.“ Kristinn kveðst yfirleitt hafa íbúð og bíl þar sem hann dvelur hverju sinni. En hvernig ver hann tómstundum sínum? „Ég tek mikið af myndum og leik mér með þær í tölvunni. Svo er ég forfallinn fluguveiðimaður og á veturna hnýti ég flugur. Hlusta líka á tónlist og þá ekk- ert endilega óperutónlist, heldur sinfóníska tónlist og líka djass.“ Dálítið dreifður Mest kveðst Kristinn starfa í Bandaríkjun- um. „Ég er reyndar dálítið dreifður. Ef ég tek bara síðasta ár þá var ég í Tókýó fyrst, svo í Strassbourg í Frakklandi, í Peking var ég líka og í Toulouse í Frakklandi. Síðan var ég í San Francisco í fyrrahaust og á þessu ári aftur í Frakklandi, Houston í Texas, og síðast í Chic- ago. Svo fer ég héðan eftir áramót til Los Ange- les og verð þar fram á vor.“ Greinilega nóg að gera hjá stórsöngvaranum og gráa hárið spillir síður en svo fyrir, að hans sögn. En ef hann væri gráhærð kona, gengi það upp í óperunni? Hann viðurkennir að hafa ekki séð þær margar. „Þetta er miklu erfiðari bransi fyrir konur en karla. Færri hlutverk fyrir eldri dömur og svo endast þær ekki eins lengi í þessu, raddlega. Bassasöngröddin er svo nálægt talröddinni að hún helst lengst en að syngja tenór er eins og hástökk eða sprett- hlaup,“ útskýrir Kristinn og telur sig standa vel raddlega séð. „Ég má bara ekki syngja ef ég er þreyttur og eftir því sem ég eldist er ég aðeins lengur að læra hlutverkin. Það er það eina.“ En getur hann valið sjálfur það sem hann syngur? „Já, óperustjórar og agentar sem ég vinn með vita nákvæmlega hvað passar mér og velja mig í hlutverk sem henta. Ef þeir gerðu það ekki þá liðu allir fyrir það, ekki bara ég heldur líka sýningin og húsið.“ Kristinn hefur frábæran frásagnarmáta og er í lokin rukkaður um skemmtisögu úr óper- unni. „Það er oft voða gaman í óperunni en ég man enga virkilega fyndna sögu, bara einhver smáatvik,“ segir hann afsakandi. „Ég man eftir sýningu á Rakaranum í Sevilla í Gamla bíói. Þetta er farsi og stundum var svo mikið hlegið í salnum að það smitaðist upp á svið. Karvel Pálmason þingmaður var einu sinni meðal áhorfenda og hló svo smitandi hlátri að þegar við vorum ekki að syngja snerum við okkur við í hláturskasti og lékum helminginn af senunni með bakhlutann í áhorfendur.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Menn geta auðvitað komið sér í klandur ef þeir vilja en glamúrlífið kringum óperur er miklu minna en fólk heldur. Að minnsta kosti hjá mér. Söngvari einn góðan veðurdag Kristinn Sigmundsson óperusöngvari er orðinn þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Söngferill hans spannar yfir þrjátíu ár og enn þeytist hann milli heimsálfa og syngur í virtustu óperuhúsum veraldar. Hann æfir nú eitt magnaðasta bassahlutverk tónbókmenntanna í Hörpu í óperunni Don Carlo. Gunnþóra Gunnarsdóttir tyllti sér niður hjá Kristni í tónlistarhúsinu. HEIMA „Hægt og rólega er ég að minnka þessa vinnu úti. Bæði er að koma yngra fólk inn og svo er mig farið að langa að vera meira heima. Ásgerður hefur verið eins og sjómannskona sem á mann í siglingum. Sá að mestu um uppeldi sonanna tveggja sem nú eru uppkomnir,“ segir Kristinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.