Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 102

Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 102
13. september 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 58 „Ég ákvað að nýta þetta spennandi hús sem útgangspunkt fyrir sýninguna og undirstrika það sem höggmynd. Það var mikil framúrstefna hjá Ásmundi að hafa þetta kúlu- lag á húsinu þegar hann byggði það upp úr 1940. Það var í raun fyrsta húsið í Reykjavík sem var ekki eins og hin,“ segir Yean Fee Quay, stödd í Ásmundarsafni við Sigtún. Undirbúningur undir samsýninguna A posterori: Hús, höggmynd er þar í fullum gangi. Hún verður opnuð á laug- ardaginn klukkan 16 og Yean Fee Quay er sýningarstjóri. Listamennirnir Birgir Snæbjörn Birgisson, Guðjón Ket- ilsson, Hulda Hákon, Kathy Clark, Kristín Reynisdóttir, Stefán Jónsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir munu eiga verk á sýningunni og auk þess verða litlar útgáfur af nokkrum styttum Ásmundar Sveinssonar úr garðinum. Nokkur verk eru þegar komin á sinn stað. Skyldu lista- mennirnir hafa unnið þau sérstaklega fyrir þessa sýn- ingu? „Nei, þeir áttu þau fyrir og ég vissi af þeim,“ svarar Yean Fee Quay brosandi og nefnir sem dæmi að Guðjón Ketilsson hafi unnið mikið með hús í sinni list og búið til höggmyndir út frá formum þeirra. Bendir líka á eitt fín- legt verk á stafni neðri salarins eftir Kathy Clark. „Þetta er í fyrsta sinn sem Kathy sýnir hér á landi,“ segir Yean Fee. „Hún er frá Bandaríkjunum en hefur búið á Íslandi lengi og unnið sín verk í kyrrþey.“ gun@frettabladid.is Byggingarlistin útgangspunktur Á samsýningunni A posterori: Hús, höggmynd sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur, Ásmundarsafni á laugardaginn eru listaverk með nýstárlegar tilvísanir í hinar ýmsu byggingar. Ásmundarsafn sjálft er hluti af sýningunni. Yean Fee Quay er sýningarstjóri. ÆVINTÝRALEGT Kathy Clark hefur ekki sýnt hér á landi áður. HÖFÐI Verk eftir Huldu Hákon. SÝNINGARSTJÓRINN „Það var mikil framúrstefna hjá Ásmundi að hafa þetta kúlulag á húsinu þegar hann byggði það upp úr 1940,“ segir Yean Fee Quay. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MIÐRÝMIÐ Öll þessi verk eru eftir Stefán Jónsson. Bláa húsið heitir Reiði Rafaels. Sýning Frystiklefans í Rifi á Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason, sem hlaut feiknagóð- ar viðtökur jafnt áhorfenda sem gagnrýnenda, hefur nú verið tekin til sýninga í Tjarnarbíói og verður sýnd þar á sunnudögum í september og október. Þeir Skúli og Spæli eru trúðar sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neinn annan starfa, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og úr gosbrunni. Spæli er hins vegar krumpuð og tor- tryggin týpa. Það eru þeir Benedikt Gröndal og Kári Viðarsson sem leika trúðana og leikstjóri er Halldór Gylfason. Sýningin hlaut geysigóðar við- tökur þegar hún var frumsýnd í Frystiklefanum, meðal annars sagði Salka Guðmundsdóttir, gagnrýnandi Víðsjár, að hún væri: „Ein eftirminnilegasta leikhúsupplifun síðustu miss- era.“ Næsta sýning í Tjarnarbíói er á morgun klukkan 14, og síðan verður sýnt þann 21. og 28. sept- ember og 12. október. - fsb Skúli og Spæli komnir í bæinn Trúðleikur eft ir Hallgrím H. Helgason, sem frumsýndur var í Frystiklefanum 2012 við mikla hrifningu, verður sýndur í Tjarnarbíói næstu sunnudaga. Hannah Kent, höfundur skáldsögunnar Náðarstundar, verð- ur sérlegur gestur á baðstofukvöldi Forlagsins á Café Rosen- berg 15. september klukkan 20. Þar mun hún lesa úr bókinni og að upplestri loknum mun Silja Aðalsteinsdóttir stjórna umræðum og Jón St. Kristjánsson ræða um þýðingu sína. Náðarstund fjallar um síðustu mánuðina í lífi Agnes- ar Magnúsdóttur, síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi. Hún var hálshöggvin í Vatnsdalshólum í Húnavatns- sýslu 12. janúar 1830 ásamt Friðriki Sigurðssyni fyrir morð á tveimur mönnum. Náðarstund, sem er fyrsta skáldsaga Kent, hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal áströlsku bókmenntaverð- launin. Í undirbúningi er einnig gerð kvikmyndar eftir sög- unni og mun Jennifer Lawrence fara með hlutverk Agnesar. Hannah Kent á Café Rosenberg Ástralski höfundurinn sérstakur gestur á upplestrarkvöldi. HANNAH KENT Náðar- stund, sem er fyrsta skáldsaga Kent, hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn. MYND/NORDIC- PHOTOSGETTY. HEF FLUTT MIG UM SET Býð alla gamla og nýja viðskiptavini velkomna Gerður Sævarsdóttir hársnyrtimeistari GREIÐAN Háaleitisbraut 58-60 sími 5813090 / 8621323 HÁRNÝ hársnyrtistofa Nýbýlavegi 28, 200 Kópavogur sími: 554 6422 MENNING
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.