Fréttablaðið - 13.09.2014, Side 104
13. september 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
19.30 Hljómsveitin Nýdönsk heldur
sína árlegu Hörputónleika í Eldborg
í kvöld. Þeir sem kaupa miða á tón-
leikana munu eignast rafræna útgáfu
hljómplötunnar Diskó Berlín, fyrri hluti
sem kemur út í heild sinni í haust.
Tengill á lögin verður sendur með stað-
festingarpósti í kjölfar miðakaupanna
og tengill fylgir með þeim miðum sem
keyptir eru í miðasölunni.
21.00 Soffía Björg Band mun spila í
Mengi laugardagskvöldið 13. septem-
ber næstkomandi kl. 21. Hljómsveitina
skipa Soffía Björg, Örn Eldjárn, Ingi-
björg Elsa Turchi, Þorvaldur Ingveldar-
son og Tómas Jónsson. Aðgangseyrir
2.000 krónur.
21.00 Á laugardaginn er röðin komin
að hljómsveitinni Ponyrom að koma
fram á Bar 11. Húsið opnað klukkan 21
og aðgangur ókeypis.
22.00 Hljómsveitin Hjaltalín kemur
fram á tónleikum á Húrra, laugardags-
kvöldið 13. september. Á tónleikunum
hyggst hljómsveitin frumflytja ný lög
í bland við eldra efni. Eftir tónleikana
hyggst sveitin jafnframt taka sér smá
hlé frá tónleikahaldi. Miðaverð: 2.000
kr. Eingöngu selt við hurð.
22.00 Ljótu hálfvitarnir verða með
hefðbundna söngskemmtun á Café
Rosenberg við Klapparstíginn í kvöld.
Þetta verða síðustu tónleikar hljóm-
sveitarinnar í Reykjavík á árinu svo það
er ætlun meðlima að gefa allt sem þeir
eiga í spilamennskuna, fíflaganginn
og stuðið. Engin forsala er í boði, en
klókir gestir koma snemma og tryggja
sér sæti.
23.00 Bandaríski tónlistarmaðurinn
Roland Hartwell leikur og syngur á
Obladi Oblada á Frakkastíg 8 í kvöld kl.
23. Aðgangur er ókeypis.
Sýningar
14.00 Hvað á barnið að heita? er sýn-
ing á skírnar- og nafnakjólum Berglind-
ar Birgisdóttur í Menningarmiðstöðinni
Gerðuberg. Opnuð í dag kl. 14.
Bókmenntir
15.00 Bókin Dagar og nætur í Buenos
Aires eftir Ólöfu Ingólfsdóttur kemur
út hjá Nikku forlagi laugardaginn 13.
september og verður henni fagnað með
útgáfukaffi í Iðnó klukkan 15. Þeir sem
vilja geta tekið dansskóna með sér, því
kl. 16 tekur tangóinn völdin og verður
dansað til kl. 18.
Dansleikir
22.00 Hljómsveitin Góðir lands-
menn spilar fyrir dansi á réttarballi í
Aratungu.
Ljósmyndasýningar
15.00 Stelpumenning varpar ljósi á
hverfandi skil á milli raunveruleika
stúlkna og gildishlaðinnar birtingar-
myndar kvenna í bandarískri dægur-
menningu. Sýningin samanstendur
af portrettmyndum og viðtölum sem
bregða birtu á upplifanir og athafnir
kvenna. Opnuð á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í dag kl. 15.
15.00 Norski ljósmyndarinn Rune Mol-
nes opnar ljósmyndasýningu í Galleríi
Fold í dag. Á sýningunni eru ljósmyndir
sem Rune hefur tekið á ferðalögum
sínum um Ísland en hann kom fyrst til
landsins 2007. Ljósmyndir Rune eru
ljóðrænar túlkanir hans á Íslandi þar
sem hann fæst við einsemdina, auðn-
ina og mikilfengleik náttúrunnar.
Tónlist
23.00 Drum & Bass klúbbakvöldið RVK
DNB verður á Lavabarnum laugardags-
kvöldið 13. september. Plötusnúðar
kvöldsins eru: SINISTARR, AGZILLA, DJ
ANDRE, PLASMIC og DJ ELVAR. Frítt
inn.
Leiðsögn
14.00 Í dag verður ókeypis leiðsögn um
sýninguna Silfur Íslands í Þjóðminja-
safninu. Sýningin hlaut einróma lof
gagnrýnenda og lýkur um áramót.
Myndlist
14.00 Bjarnarkonan Karin Leening
opnar myndlistarsýninguna „Undra-
verðar, Bjarnakonur, litrík blóm og aðrar
verur“ í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á
Akureyri í dag. Sýning Bjarnarkonunnar
stendur til 28. september.
15.00 Ladies, Beautiful Ladies er heiti
sýningar Birgis Snæbjarnar Birgis-
sonar sem verður opnuð í Listasafni
ASÍ á Freyjugötu í dag klukkan 15.
Ladies, Beautiful Ladies er heiti tveggja
sýninga myndlistarmannsins Birgis
Snæbjarnar Birgissonar. Þær eru fram-
hald rannsókna hans á spurningum um
samfélagslegt og pólitískt samhengi
táknmynda sem hann spyr með því að
skoða ímynd ljóskunnar í menningar-
heimi okkar.
16.00 Glæsileg samsýning að nafni
A posterori: Hús, höggmynd opnuð í
Ásmundarsafni í dag, laugardag, kl. 16.
Listamennirnir Birgir Snæbjörn Birgis-
son, Guðjón Ketilsson, Hulda Hákon,
Kathy Clark, Kristín Reynisdóttir, Stefán
Jónsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir sýna
þar verk sín ásamt verkum Ásmundar
Sveinssonar. Á sýningunni eru listaverk
með nýstárlegar tilvísanir í hinar ýmsu
byggingar og hús.
Markaðir
13.00 Sagafilm auglýsir eftir nýjum
eigendum að leikmunum, fatnaði,
tækjabúnaði og fleiru sem safnast
hefur upp í farsælli og fjölbreyttri 36
ára sögu Sagafilm. Frá kl. 13-17 á Saga-
film, Laugavegi 176.
Samkoma
23.00 Októberfest verður í fullu fjöri
í kvöld í Vatnsmýrinni. Svæðið opnað
kl. 22 og fyrsta hljómsveit byrjar kl.
23. Páll Óskar, Steindi og Bent, Friðrik
Dór og Amabadama troða upp en í
Nova-tjaldi verða DJ Margeir og Högni
að spila.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
DON
CARLO
eftir
Giuseppe Verdiwww.opera.is
Frumsýning
18. október kl. 20
25. október kl. 20
1. nóvember kl. 20
8. nóvember kl. 20
Sýnt í Eldborg í Hörpu
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
J-Dilla er einn áhrifamesti tón-
listarmaður seinni ára en hann
er eins konar hálfguð innan raða
taktsmiða og pródúsenta. Dilla lést
árið 2006 eftir langvinn veikindi.
Í kvöld verða tónleikar í Lucky
Records honum til heiðurs. Tón-
list eftir J-Dilla verður í flutn-
ingi hljómsveitar sem skipuð
er Benna B-Ruff sem sér um
„sömpl“ og „skröts“, Ara Braga
Kárasyni á trompet, Steingrími
Teague á hljómborð, hljóðgervil
og effekta og Magnúsi Trygva-
syni Elíassen á trommur og
áslátt. Tónleikarnir verða teknir
upp og gefnir út seinna meir ef
vel tekst til.
„Við erum búnir að vera að æfa
og það er ótrúlega gaman,“ segir
Benni. „Hann Jay Dee gaf út svo
rosalega mikið efni og þetta er
samtíningur úr því. Þetta verður
bræðingur.“
Miðinn kostar 2.000 krónur
og er miðafjöldi takmarkaður. Á
staðnum verður pop up-bar frá
Marina og verða fríir drykkir frá
21.00 til 00.00 í boði Beefeater og
Marina. - þij
Taktakóngurinn
heiðraður
Spila bræðing af tónlist J-Dilla í Lucky Records.
HEIÐRUN J-Dilla verður heiðraður í
Lucky Records.
MYND/GEOFFREY HUNTINGDON WILLIAMS
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER
Tónleikar
22.00 Krystal Carma, einnig þekktur
sem Ljótur Sigur, einnig þekktur sem
Arnljótur Sigurðsson mun spila á Húrra
í kvöld klukkan tíu.
Leiklist
17.00 Ævintýri í Latabæ eftir Magnús
Scheving, Ólaf S. K. Þorvaldz og Mána
Svavarsson er frumsýnt í dag kl. 5. Það
er enginn latur í Latabæ og íbúarnir
kappkosta að leggja rækt við það góða
í sjálfum sér og lífinu. Í þetta skiptið
lenda Íþróttaálfurinn, Solla stirða og
vinir þeirra í ótrúlegum ævintýrum því
nú hefur Glanna glæp tekist að marg-
falda sjálfan sig.
Síðustu Forvöð
10.00 Þremur sýningum lýkur á Kjar-
valsstöðum í dag; Reykjavík, bær bygg-
ing, sýningin Hliðstæður og Árstíðirnar
í verkum Kjarvals.
Umræður
15.00 Helga Þórsdóttir sýningarstjóri
ræðir við gesti um sýninguna Rás í
Hafnarborg sunnudaginn 14. septem-
ber kl. 15. Helga Þórsdóttir er menn-
ingarfræðingur auk þess sem hún er
menntuð í myndlist og innanhúss-
arkitektúr.
Uppákomur
11.00 Sirkus Íslands kemur í heimsókn
í fjölskylduguðsþjónustu í Árbæjar-
kirkju, sunnudaginn 14. september kl.
11. Sunnudagaskólasöngvar, grín og
frábær sirkusbrögð. Allir hjartanlega
velkomnir.
Dansleikir
20.00 Dansað verður Félagsheimili
eldri borgara í Reykjavík í Stangarhyl 4
á sunnudagskvöld frá kl 20:00 til 23:00.
Hljómsveitin Klassik leikur fyrir dansi.
Félagar taki með sér gesti. Aðgangseyrir
er kr 1.800 en kr 1.500 gegn framvísun
félagsskírteinis.
Leiðsögn
14.00 Í dag verður ókeypis leiðsögn
um sýninguna Silfur Íslands. Á sýn-
ingunni eru yfir 2000 silfurgripir en
leitast var við að beina sjónum að
hinum mismunandi aðferðum
við silfursmíð en um leið
setja búningasilfur, borð-
búnað ,silfurskildi og
kaleika fram á nýstár-
legan hátt. Sýningunni
lýkur um áramótin.
14.00 Æsa Sigurjóns-
dóttir, listfræðingur
og sýningarstjóri
verður með
leiðsögn um
sýninguna SPOR Í
SANDI, sunnudaginn 14. september kl.
14:00, í Listasafni Íslands Fríkirkjuveg 7.
Á sýningunni gefur að líta ólíkar hliðar
listamannsins Sigurjóns Ólafssonar í 90
mikilvægustu verkum hans.
15.00 Netleiðsögn með Ásdísi Sif
Gunnarsdóttur um sýninguna Skipbrot
úr framtíðinni / Sjónvarp úr fortíðinni
fer fram í Hafnarhúsi í dag. Leiðsögn-
in hefst kl. 15 að íslenskum tíma og
fer fram í gegnum vefslóðina http://
www.listasafnreykjavikur.is/asdis-sif.
Fyrirlestrar
16.00 Sigurðar Nordals fyrirlestur verð-
ur haldinn í Norræna húsinu 14. sept-
ember kl. 16. Fyrirlesari að þessu sinni
verður Helga Kress, prófessor emeritus,
með erindi sem hún nefnir Um Njálu:
Leikhús líkamans. Fyrirlesturinn er
í boði Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum. Allir eru velkomnir.
Tónlist
17.00 Andrea Jónsdottir leikur
og kynnir lög af hljómplötum á
Obladi Oblada í dag
kl. 17. Aðgangur er
ókeypis!
23.00 Bó og Bubbi spila saman í Hofi menningarhúsi í kvöld. Ekki láta þennan
stórviðburð fram hjá ykkur fara. Miðasala er á www.menningarhus.is og www.
midi.is. Með Bó og Bubba á sviðinu verður sérvalin hljómsveit af þessu tilefni.