Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 106
13. september 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62
TÍST
VIKUNNAR
Hallgrímur Helgason
@HalgrimHelgason
10. september
Horfði á litla konu ræða stóra
samhengið, Piketty og Svejk. Og
á stóran mann ræða um ABT-
mjólk. Stórmennskan er víst
ekki mæld í sentímetrum.
Sunna Ben
@SunnaBen
8. september
Er hárið á Rod Stewart ekki átt-
unda undur veraldar? Ég held
það.
Ólafur Arnalds
@OlafurArnalds
8. september
Ok. This is a heated argument
amongst my apartment moving
helpers so we are turning to
Twitter. Bean bags: Lame or
kinda cool?
Birgitta Jónsdóttir
@birgittaj
10. september
As a token of support for
the #battleforthenet i have
put forward a net neutrality
proposal in the #icelandic
parliament today. yaaarrr!
María Lilja
Þrastardóttir
@marialiljath
10. september
„Bætum árangur í lestri og
styrkjum menningartengda
uppbyggingu“ #youcantmaket-
hisshitup #sdg #stefnuræða
#ruv
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör fulltrúa Verkalýðsfélagsins Hlífar á 41. þing Alþýðu-
sambands Íslands, sem haldinn verður á Nordica Hotel
í Reykjavík dagana 22.-24. október 2014.
Tillögum með nöfnum 5 aðalfulltrúa og 5 varafulltrúa
ber að skila á skrifstofu Hlífar fyrir kl. 16:00,
mánudaginn 22. september n.k.
Tillögunum ber að fylgja meðmæli
minnst 60 félagsmanna.
Kjörstjórn Hlífar
„Þetta er bara búið að vera geðveikislega gaman,“
segir Gríma Valsdóttir sem deilir með Mikael Köll
Guðmundssyni hlutverki apans Herra Níels í leikritinu
um Línu Langsokk. Leikritið verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu um helgina. Þau Gríma, 10 ára, og Mik-
ael, 6 ára, skipta með sér sýningum en þau eru á svið-
inu nánast allan tímann meðan á sýningunni stendur.
Þau segja það lítið mál. „Það er ekkert erfitt,“ segir
Gríma og Mikael tekur undir. „Það eina sem er erfitt
er að það er dálítið heitt í búningnum en þetta er alveg
rosalega skemmtilegt.“
Gríma hefur áður leikið í leikhúsinu en hún lék í
Óvitum sem sýndir voru í Borgarleikhúsinu á síðasta
leikári.
Þeim finnst báðum afar gaman í leikhúsinu og segja
leikarahópinn vera náinn. „Það er mjög gaman að
vinna með þessu fólki og við erum búin að æfa mjög
mikið,“ segir Mikael.
Aðspurð hvað sé skemmtilegasta senan í leikhúsinu
segir Gríma: „Mér finnst þjófasenan skemmtilegust,“
og vísar þá í atriði þar sem þjófar reyna að ræna gull-
peningum af Línu.
„Annars finnst mér mest gaman bara að klifra og
apast,“ segir Mikael hlæjandi.
Þau segjast bæði geta hugsað sér að verða leikarar
þegar þau verða eldri. „Já, það kæmi alveg til greina,“
segir Gríma. viktoria@frettabladid.is
„Alveg rosalega skemmtilegt“
Gríma og Mikael fara með hlutverk Herra Níels í leikritinu um Línu Langsokk.
HEITT Í BÚNINGNUM Þau Gríma og Mikael segja lítið mál
að leika Herra Níels nema að það geti orðið dálítið heitt í
búningnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Þessi markaður í dag verður nátt-
úrulega sjúklega stór. Við erum að
selja alla leikmuni, föt, tækjabúnað
og hina ótrúlegustu hluti sem Saga-
film hefur sankað að sér í gegnum
þessi 36 ár sem við höfum starf-
að,“ segir Alda Karen Hjaltalín,
sem starfar hjá fyrirtækinu, en hið
íslenska kvikmyndaframleiðslu-
fyrirtæki heldur flóamarkað í dag
í húsnæði sínu á Laugavegi 176.
„Þetta er rosalega mikið magn
af skemmtilegu dóti. Svona að
gamni má nefna sánabaðið sem
Georg Bjarn-
freðarson not-
aði í Dagvakt-
inni, málverk
af Jóhönnu
Sigurðardótt-
ur sem var
notað í leik-
myndina í
Spaugstof-
unni á árum
áður, mál-
verk af Davíð
Oddssyni í hempu og
svo mætti lengi telja,“
heldur Alda Karen
áfram.
Sagafilm hefur
tekið upp margar
vinsælustu innlendu
sjónvarps þátta-
raðir sem gerðar
hafa verið, svo sem
Ástríði, Stelpurnar,
Pressu, Rétt, Spaug-
stofuna, Svínasúpuna
og Heimsenda svo eitt-
hvað sé nefnt. „Við verð-
um líka með tæki úr
tækjaleigunni okkar,
Luxor,“ heldur Alda
Karen áfram og hvet-
ur tækjanörda til að
sækja markaðinn.
Markaðurinn
stendur frá eitt
til fimm í dag.
„Þetta verð-
ur allt selt
á kostakjör-
um. Við eigum
svo mikið af dóti að
við verðum að losna
við þetta,“ segir hún
og hlær. „Við erum
með tvær stórar
geymslur sem hafa
verið undirlagðar
af öllu þessu dóti.
Við ætlum að nota
geymslurnar til
að stækka stúdíó-
ið okkar, þannig
að við verðum
að selja úr
þeim.“ - ósk
Sagafi lm selur sánabað Georgs
Sagafi lm heldur fl óamarkað í dag frá eitt til fi mm til að losa geymslur sínar. Fyrirtækið hefur sankað að sér
ótrúlegustu hlutum á 36 ára sögu sinni og hefur framleitt marga af vinsælustu íslensku sjónvarpsþáttunum.
HAFA FRAMLEITT SUMA VINSÆLUSTU ÞÆTTINA Spaugstofuna þekkja allir Íslendingar. MYND/SKJÁSKOT
MARGT LEYNIST Í
GEYMSLUNUM Meðal
þess sem verður til
sölu eru leikmunir úr
gömlum þáttaröðum.
JONAH HILL Einn hressasti leikarinn
í Hollywood kom sér í gott form fyrir
myndina 22 Jump Street og er nú
mikið sjarmatröll.
LÍFIÐ
13. september 2014 LAUGARDAGUR
Stjörnur
sem skína
enn skærar
Hér eru nokkrar stjörnur
sem hafa létt sig hvort
sem er vegna vinnu eða
til bættrar heilsu.
JAKE GYLLENHAAL Leikarinn
geðþekki losaði sig við nokkur kíló
fyrir kvikmyndina Nightcrawler. Er
hann orðinn of grannur?
CHRISTINA AGUILERA Söngkonan
glæsilega tók sig til og losaði sig við
rúm 20 kíló og lítur glæsilega út í
dag.
JENNIFER HUDSON Söng- og leik-
konan hefur losað sig við nær 40 kíló
og hefur aldrei litið betur út.