Fréttablaðið - 16.10.2014, Side 12
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
MENNTAMÁL „Fjöldatakmarkanir
í framhaldsskóla skerða aðgengi
fólks að menntun og koma harðast
niður á ungu fólki á landsbyggð-
inni,“ sagði Oddný Harðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar, á
Alþingi í gær, í sérstakri umræðu
um framhaldsskólann.
Samkvæmt áformum mennta-
málaráðherra fá þeir sem orðnir
eru 25 ára og eldri ekki aðgang að
bóknámsbrautum í framhaldsskól-
um á næsta ári. Við það fækkar
heilsársnemendum framhaldsskól-
anna um 916, sem þýðir tæplega
fimm prósenta fækkun.
Mest fækkun nemenda verður
í Fjölbrautaskólanum á Snæfells-
nesi, 18 prósent, og Fjölbrautaskól-
anum á Tröllaskaga en þar fækkar
nemendum um 17 prósent.
Oddný telur stjórnvöld skamm-
sýn. Metnaðarleysi einkenni
vinnubrögðin, alla framtíðarsýn
skorti í mennta- og byggðamálum.
Hún benti á að störfum úti á landi
myndi fækka um leið og nemend-
um skólanna fækkar.
„Við þetta sparast fjármagn sem
á að nota til að mæta karasamning-
um kennara,“ sagði Oddný.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra neitaði því að það væri
verið að skera niður til framhalds-
skólans í fjárlögum næsta árs.
Þvert á móti væri verið að auka
framlögin til framhaldsskólans.
Illugi sagði að hann teldi skyn-
samlegast til lengri tíma litið að
horfa á framhaldsskólana sem
ungmennaskóla og hafa önnur
úrræði fyrir þá sem væru eldri. Þá
þyrftu þeir ekki að setjast á skóla-
bekk með 16 ára unglingum.
Það væri hægt að fara aðrar
leiðir til þess að komast í háskóla
en fara í framhaldsskóla.
Þá ítrekaði Illugi að þeir sem
væru 25 ára gætu komist í verk-
nám enda væri meðalaldur verk-
námsnemenda 25 ár. - jme
Mun fækka
um 5 prósent
Möguleikar ungs fólks á landsbyggðinni til náms eru
skertir, segir þingmaður. Ráðherra segir að í fjárlög-
um fái framhaldsskólar landsins aukið fé á næsta ári.
ILLUGI
GUNNARSSON
ODDNÝ
HARÐARDÓTTIR
NEMENDUM FÆKKAR Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að framhaldsskólarnir
hætti að taka við nemendum sem eru orðnir 25 ára. Við það fækkar nemendum
skólanna um fimm prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI GáF, samstarfsverkefni
sveitarfélaga á NA-landi með það
markmið að kaupa Grímsstaði
á Fjöllum, skuldar um tíu millj-
ónir króna. Engin starfsemi er í
félaginu. Markmið félagsins er
að leigja kínverska auðjöfrinum
Huang Nubo jörðina. Tvö sveitarfé-
lög, Akureyri og Norðurþing, íhuga
stöðu sína í félaginu.
Oddur Helgi Halldórsson, stjórn-
armaður í GáF, segir að engin
starfsemi sé í félaginu og stjórnar-
seta í félaginu sé launalaus. Þær
skuldir sem félagið býr við í dag
séu vegna ákveðinna verkefna sem
voru unnin í upphafi.
Kristján Þór Magnússon, sveit-
arstjóri Norðurþings, telur sveit-
arfélagið þurfa að kanna stöðu
sína í félaginu. „Við verðum að
svara þeirri spurningu hvort
þetta sé eitt af hlutverkum sveit-
arfélaga að kaupa jarðir til þess
að leigja þær út. Þetta verður
skoðað með nýrri stjórn þegar
hún tekur við,“ segir Kristján
Þór.
Undir þetta tekur Logi Einars-
son, oddviti Samfylkingarinnar á
Akureyri. „Það er mín skoðun að
Akureyri eigi alvarlega að íhuga
stöðu sína í þessu tilviki.“
- sa
Skuldsett félag í eigu norðlenskra sveitarfélaga:
Markmiðið félagsins
að leigja Nubo jörð
GRÍMSSTAÐIR
Á FJÖLLUM
Líklegt þykir
að ekkert verði
úr kaupum
sveitarfélaga á
jörðinni.