Fréttablaðið - 16.10.2014, Page 40
FÓLK|TÍSKA
Ég flutti til Íslands fyrir rúmu ári og vinn sem jógakennari í líkams-ræktarstöðinni Átaki á Akureyri.
Ég er frá Austur-Síberíu, bjó nokkur
ár í Kína, í nokkra mánuði á Indlandi
og nokkur ár í Póllandi áður en ég út-
skrifaðist úr grafískri hönnun í Rúss-
landi árið 2010,“ segir listakonan Ania
Litvintseva, en hún hefur vakið athygli
fyrir teikningar sínar og myndlistar-
verk.
Á Akureyri má gjarnan sjá Aniu
sitja á kaffihúsum og teikna en hún
segist nýta sér
kaffihúsin til að
vinna og eldhús-
borðið heima.
„Ég á alveg
eftir að koma
mér upp vinnu-
stofu,“ segir
hún.
Sýning á
verkum Aniu, 50
shades of red,
stendur nú í
Bergi, menning-
arhúsi á Dalvík
þar sem umfjöll-
unarefni Aniu er
rauðhært fólk.
„Þetta er port-
rettsýning en
ég hef líka verið að prenta teikningar
á póstkort og á textíl. Mér finnst það
mjög skemmtilegt og mín fyrsta textíl-
lína er töskur með teikningum af Akur-
eyri. Síðar er von á fleiri útgáfum,“
segir Ania.
Hvaðan færðu innblástur?
„Frá umhverfinu í kringum mig og
öllu sem ber fyrir augu hér á Akur-
eyri.“
Sýning Aniu í Bergi stendur til 28.
október.
Nánar má forvitnast um myndlist
Aniu á: www.behance.net/ania_akur-
eyri og á Facebook.
■ heida@365.is
TEIKNAR Á TÖSKUR
HÖNNUN Grafíski hönnuðurinn og myndlistarmaðurinn Ania Litvintseva sýnir
um þessar mundir í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Línuteikningar hennar
hafa vakið athygli en hún hefur útfært þær á töskur.
KAFFIHÚS Ania nýtir sér kaffihúsin til að vinna og teiknar þá gjarnan það sem fyrir
augu ber. MYND/ANIA
AKUREYRI Ania segist fá innblástur frá umhverfinu og því sem ber fyrir augu á
Akureyri. MYND/ANIA
GILIÐ Línuteikningar Aniu gefa skemmtilega mynd af bænum. MYND/ANIA FYRSTU TÖSKURNAR Ania Litvintseva flutti til Íslands fyrir rúmu ári og hefur vakið
athygli fyrir teikningar sýnar. Sýning stendur yfir á verkum hennar í Menningarhúsinu
Bergi á Dalvík. Ania hefur útfært teikningarnar á töskur og von er á fleiri útgáfum.
MYND/AUÐUNN
AKUREYRI
„Þetta er portrett-
sýning en ég hef
líka verið að prenta
teikningar á póst-
kort og á textíl.
Mér finnst það
mjög skemmti-
legt og mín fyrsta
text íl lína er tösk-
ur með teikningum
af Akur eyri. Síðar
er von á fleiri út-
gáfum.“
16 – 18. október
Skólavörðustíg 7 sími:551-5814 www.th.is
Opnunartími / Mánud.-föstud. 10 - 18 Laugard. 10 - 16
20%
Peter Copping, sem áður starfaði sem
listrænn stjórnandi Ninu Ricci, hefur verið
skipaður nýr listrænn stjórnandi tískumerk-
isins Oscar de la Renta. Frá þessu er greint
á vef Vogue-tímaritsins.
Þar með er ljóst að hinn aldni hönnuður
Oscar de la Renta lætur sjálfur af listrænni
stjórnun á sínu eigin merki en hann mun
áfram skipta sér af stefnu og fagurfræði
merkisins.
Fyrsta línan undir stjórn Coppings verð-
ur sýnd á tískuvikunni í New York í febrúar
þegar kynnt verður tískulína Oscar de la
Renta fyrir haustið og veturinn 2015.
„Eftir tuttugu ár í París er þetta mikilvægt
skref fyrir mig. Oscar de la Renta hefur
mótað bandarískan glæsileika fyrir nokkrar
kynslóðir kvenna og þetta tækifæri að vinna
með honum að framtíð merkisins er spenn-
andi,“ sagði Copping þegar tilkynnt var um
breytinguna.
OSCAR DE LA RENTA
RÆÐUR ARFTAKA
PETER COPPING
OSCAR DE LA RENTA Á tískuviku í New York.