Fréttablaðið - 16.10.2014, Side 60
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
FIMMTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR
16. OKTÓBER 2014
Tónleikar
20.00 Útgáfutónleikar og -hóf fyrir nýju
plötu Ragnheiðar Gröndal, Svefnljóð, á
Café Flora í Laugardalnum í kvöld.
21.00 Bergmál spilar post-rokk fyrir
stúdentana í Stúdentakjallaranum í
kvöld.
21.00 Hljómsveitirnar Hide Your Kids,
Vio og Himbrimi troða upp á Húrra í
kvöld. 1.500 krónur inn.
21.00 Árstíðir troða upp á Café Rosen-
berg í kvöld.
21.00 Kippi Kanínus spilar í Mengi í
kvöld en hann er þekktur fyrir raftónlist
sína. Á eftir honum kemur Tom Manoury
fram. 2.000 krónur inn og mælt er með
að menn komi með eigin veigar.
22.00 Loftið kynnir í samstarfi við
Heineken BÍT kvöld kl. 22.00 alla
fimmtudaga. Ljósvaki og Krystal Carma
koma fram. BÍT er vikulegt kvöld alla
fimmtudaga á Loftinu í samstarfi
við Heineken. Að kvöldunum kemur
fjöldi þekktra tónlistarmanna þar sem
áherslan er á Fönk, Soul, Jazz, Latin,
Calypso, Afrobeat og Reggae tóna í
ýmsum formum.
22.00 Magnús R. Einarsson heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8
í kvöld. Aðgangur er ókeypis.
Leiklist
17.00 Áheyrnarprufur fyrir leikrit NMK
verða haldnar í dag í MK. Þetta árið er
verið að setja upp leikritið Fame sem
einkennist af leik, söng og dansi, þess
vegna er leitað af leikurum, söngvurum
og dönsurum.
19.30 Aðalæfingin á Karitas eftir Krist-
ínu Marju Baldursdóttur fer fram á
Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
2.000 krónur inn.
Íþróttir
16.00 Evrópumeistaramótið í hópfim-
leikum 2014 verður haldið í Reykjavík
15. - 18. október, þar sem 42 lið
frá 14 þjóðlöndum koma saman í
Laugardalnum og keppa um hina eftir-
sóttu Evrópumeistaratitla. Í dag verða
undanúrslit fullorðinna.
Umræður
09.50 Mannauðsdagur Flóru, félagi
mannauðsstjóra á Íslandi, var fyrst
haldinn árið 2011 og hefur vaxið og
dafnað með hverju árinu. Mannauðs-
dagurinn er vettvangur fyrir þá sem
láta sig nútímalega stjórnun mannauðs
varða. Fyrirkomulagið í ár verður, líkt og
áður, blanda af fræðilegri og hagnýtri
umræðu um mannauðsmál. Yfirskrift
mannauðsdagsins 2014 er Stjórnun
mannauðs í uppsveiflu. Almennt
miðaverð er 26.000 kr. en félagsmenn í
Flóru fá einn miða á 18.000 krónur.
20.00 Listamannsspjall við Ásdísi
Sif Gunnarsdóttur í Hafnarhúsinu í
kvöld. Ásdís Sif vinnur með gjörninga í
vídeóverkum sínum sem fara fram með
mismunandi hætti á ólíkum stöðum
í tíma og rúmi. Um er að ræða stóra
vídeóinnsetningu sem byggist m.a. á
eldra verki hennar frá sýningunni Pakk-
húsi postulanna (2006). Léttar veitingar
í boði.
20.00 Til að efla líf í félagsheimili rit-
höfunda, Gunnarshúsi, og til að lyfta
jólabókavertíðinni á ögn hærra plan
verður nú blásið til kvöldraðarinnar
Höfundakvöld í Gunnarshúsi. Á hverju
fimmtudagskvöldi fram að jólum mæta
tveir höfundar og spjalla um nýjar eða
væntanlegar bækur sínar. Höfunda-
kvöldunum verður ýtt úr hlaði í kvöld
en þá munu þau Guðrún Eva Mínervu-
dóttir og Ármann Jakobsson fjalla um
glæný verk sín. Spyrjandi verður Arndís
Þórarinsdóttir.
Uppákomur
19.00 David Wolfe, súperstjarna í
heimi grænkera, mun deila fróðleik
um súperfæði og heilsulífsstíl á Grand
Hóteli í kvöld. Með honum verða
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, menntaður
næringarþerapisti, Ólafur Stefánsson
handboltagoðsögn Sólveig Eiríksdóttir í
Gló og Grænum kosti og Tolli Morthens
sem leiðir núvitundarhugleiðslu.
Pub Quiz
20.00 Fyrsta kvikmyndakviss vetrarins
í Bíó Paradís verður haldið í kvöld þar
sem þemað verður almennt. Höfundar
spurninga og spyrlar eru Davíð Roach
Gunnarsson og Helgi Valur Ásgeirsson.
Efstu þrjú liðin fá bjór og bíómiða í
verðlaun auk þess sem veitt verða verð-
laun fyrir besta liðsnafnið og fyrir rétt
svar við svokallaðri bjórspurningu. Svo
verður að sjálfsögðu tilboð á ísköldum
Pilnser Urquell og smá kynning í byrjun
kvöldsins þannig að enginn fer þyrstur
heim auk þess sem brakandi ferskt bíó-
popp verður á boðstólnum í sjoppunni.
20.00 Fyrsta pub-quiz Menningar-
félagsins verður haldið á Loft hosteli
í kvöld. Það eru menningarkettirnir
Kristín Svava Tómasdóttir og Elín Björk
Jóhannsdóttir sem stjórna kvöldinu
og því er til mikils að hlakka. Sigurlið
kvöldisins fer heim með raunhæf en
jafnframt ánægjuleg verðlaun. Tilboð á
barnum fyrir þátttakendur.
Málþing
12.00 Í dag fer fram málstofan Lætur
ekkert stöðva sig, um hetjurnar, krúttin
og fleiri birtingarmyndir fatlaðs fólk í
ríkjandi fjölmiðlaorðræðu. Þar munu
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Freyja
Haraldsdóttir fjalla um sýninguna
Lætur ekkert stöðva sig í ljósi ableisma
og valdastöðu ólíkra hópa samfélagsins.
Málstofan á vegum Tabú í samráði við
ráð um málefni fatlaðs fólks. Viðburð-
urinn fer fram á Háskólatorgi í stofu
104 og er öllum opin. Táknmálstúlkun
verður á staðnum.
Ljósmyndasýningar
12.00 Ljósmyndarinn Beth Yarnelle
Edwards frá San Francisco sýnir
ljósmyndir sem hún tók yfir einn
sumarmánuð á Íslandi. Sýningin
heitir Iceland og er í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur.
Tónlist
21.00 DJ SimSimma þeytir skífum á
Frederiksen Ale House í kvöld.
21.00 DJ Herr Gott spilar á Boston í kvöld.
21.00 DJ Danni Deluxxe sem gert
hefur skoppurum hátt undir höfði
spilar skopparatónlist á Prikinu í kvöld,
húsi skoppara.
21.00 TechSoul spilar vel valin lög á
Bravó í kvöld.
21.00 Lagaffe Tales þeytir skífunum á
Kaffibarnum í kvöld.
21.00 DJ Art of Listening spilar á Brikk
í kvöld.
21.00 Trúbadorarnir Hjálmar og Dagur
spila á English Pub í kvöld.
21.00 DJ Harry Knuckles spilar stór-
undarlega og skemmtilega tónlist á
Paloma Bar í kvöld.
Fyrirlestrar
12.00 Opinn fundur um Norður-Kóreu
í dag í Lögbergi 101. Geir Helgesen,
forstöðumaður Norrænu Asíumála-
stofnunarinnar, mun fjalla um kynni
sín af samfélagi N-Kóreu og lýsa
reynslu sinni af samskiptum við full-
trúa ríkisins. Hann mun fjalla um
hvaða leiðir væru skynsamlegastar til
að nálgast og skilja landið ef mark-
miðið er að auka samskiptin við það
og gera það að virkum hluta af alþjóð-
samfélaginu.
Myndlist
10.00 Vasulka Chamber eða Vasulka-
stofa verður formlega opnuð sem
ný deild í Listsafni Íslands. Sýnir
vídeóverk eftir frumkvöðlana Steinu
og Woody Vasulka. Í tilefni af 130 ára
afmæli safnsins er allri þjóðinni boð-
inn ókeypis aðgangur í safnið dagana
16. til 19. október.
11.00 Þriðja sólósýningin í i8 Galleríi
eftir einn af stofnendum síðminimal-
isma, Lawrence Weiner, er opnuð í dag.
17.00 Í dag mun listamaðurinn og
hönnuðurinn Sigga Rún opna sýningu
sína Flögr í Eiðisskeri í Bókasafni Sel-
tjarnarness þar sem hún teflir saman
munum úr Náttúrugripasafni Seltjarn-
arness við eigin verk. Allir velkomnir
og aðgangur er ókeypis. Eiðissker er
sýningarsalur Seltirninga og er stað-
settur inn af Bókasafni Seltjarnarness
á Eiðistorgi.
Samkoma
20.00 Rangæingar í Reykjavík athugið!
Félagsvist í samvinnu við Skaftfellinga
í Skaftfellingabúð í Reykjavík í kvöld
kl. 20.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
„Við erum mjög stemmdir fyrir
þessu,“ segir Páll Cecil Sævars-
son, söngvari og gítarleikari
hljómsveitarinnar Vio en hún
kemur fram á tónleikum rokk-
sveitarinnar Hide Your Kids á
Húrra í kvöld. Einnig mun raf-
poppsveitin Himbrimi troða upp.
„Það er mikil spenna í mönnum
fyrir þessu,“ segir Páll en Vio
mun spila í gegn plötu sína Dive
In, sem verður gefin út fyrir jól.
Vio bar sigur af hólmi í Músík-
tilraunum í ár og hefur lagið You
lost it setið á topplistum útvarps-
stöðvanna síðan þá.
Himbrimi er „hljómsveit sem
hefur komið eins og hressandi
vatnsgusa í þurri eyðimerkur-
göngu inn í íslenska tónlistar-
bransann“ en Hide Your Kids
hefur komið víða við á sínum
líftíma, meðal annars hitað upp
fyrir Of Monsters and Men.
Lagið þeirra Mia situr nú sem
fastast á Pepsi Max-listanum.
Allar þessar hljómsveitir
munu spila á Iceland Airwaves
í ár og því er tilvalið að koma og
hita upp fyrir þá veislu.
Tónleikarnir hefjast stund-
víslega klukkan 21.00 og kostar
aðeins 500 krónur inn.
- þij
Ungir tónlistarmenn
hita upp fyrir Airwaves
Sveitirnar Hide Your Kids, Vio og Himbrimi munu
allar troða upp á skemmtistaðnum Húrra í kvöld.
HLJÓMSVEITIN VIO Treður upp á Húrra kvöld
➜ Tónleikarnir hefjast stund-
víslega klukkan 21.00 og kostar
aðeins 500 krónur inn.
Save the Children á Íslandi