Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2014, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 16.10.2014, Qupperneq 62
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 50 Leikkonan og Óskarsverðlauna- hafinn Reese Witherspoon segir að hlutverk hennar í kvikmyndinni Wild hafi verið mesta áskorunin á ferli hennar hingað til. Myndin fjallar um unga konu sem fer í 2.000 kílómetra gönguferð yfir Pacific Crest-gönguleiðina í Banda- ríkjunum. „Þetta er það erfiðasta sem ég hef nokkurn tíma gert út af ýmsum ástæðum,“ sagði Wither- spoon við fréttamenn BBC eftir Evrópufrumsýninguna á myndinni. Witherspoon sagði upptökurn- ar hafa verið afar líkamlega og andlega erfiðar. „Kynlífsatriðin voru það erfiðasta fyrir mig. Ég hef aldrei þurft að gera neitt slíkt á ævinni minni. Ég þurfti að gera allt það sem þú sérð í myndinni sjálf, líka það sem mér leið óþægi- lega með, af því að myndin fjallar um tilfinningalega einlægni,“ segir Witherspoon, sem var einnig með- framleiðandi myndarinnar. Hún hefur verið orðuð við Óskarstil- nefningu fyrir leik sinn en hún hlaut verðlaunin árið 2006 fyrir hlutverk June Carter Cash, eiginkonu Johnny Cash í Walk The Line. Wild, sem byggð er á sjálfsævi- sögu Cheryl Strayed, Wild: From Lost to Found on the Pacific Crest Trail, fjallar um ungan rithöfund sem ákveður að ganga veginn Paci- fic Crest einn á báti til að komast yfir skilnað, dauða móður sinnar og margra ára heróínneyslu. Witherspoon segir að það hafi hjálpað mikið að hin raunverulega Cheryl Strayed hafi verið viðstödd upptökurnar. „Á margan hátt var ég dálítið hrædd við að hún væri að fylgjast með og dæma mig. En það hjálpaði mér á endanum að komast inn í hlutverkið,“ segir hún. Strayed segir að samtölin sem hún átti við Witherspoon hafi ekki fjallað mikið um myndina sjálfa. „Við töluðum um líf okkar, æskuna og sambönd- in okkar, það að vera móðir – allt frá því hversdagslega yfir í hið háleita,“ segir hún. „Það var eitthvað talað um hvernig væri best að binda bak- pokann en það var mikilvægara að við opnuðum okkur hvor fyrir ann- arri.“ Witherspoon segir að bakpoki hennar hafi verið verulega þungur og þar af leiðandi voru hreyfingar hennar raunverulegri. Breski rithöfundurinn Nick Hornby, sem skrifaði handritið, segir að Wild sé ekki týpísk „chick flick“ eins og þær kallast. „Hún fjallar um sorg, heróínfíkn, lauslæti og það að vera mjög sterk/ur líkamlega og andlega,“ segir Hornby, sem skrifaði meðal annars bækurnar High Fidel- ity og Fever Pitch. „Þannig að hún er ekki eins og nokkur „chick flick“- mynd sem ég hef nokkurn tímann séð.“ thorduringi@frettabladid.is Danny Boyle, einn frægasti leik- stjóri Breta, hefur fært sig upp á skaftið á seinustu árum og byrj- að að vinna í leikhúsi. Bíó Para- dís sýnir í kvöld upptökur af uppfærslu National Theatre Live London á hinni ódauðlegu hryll- ingssögu Frankenstein frá árinu 2011 í leikstjórn Boyle. Boyle, sem er þekktur fyrir myndir eins og Trainspotting og 28 Days Later, tekur höndum saman á ný með stórleikaran- um Johnny Lee Miller sem gerði garðinn frægan í Trainspotting á sínum tíma. Nú leikur hann vísindamanninn Frankenstein í þessari frumlegu uppfærslu á sögu Mary Shelley. Benedikt Cumberbatch leikur skrímsli Frankensteins en þess má geta að bæði Benedict og Lee Miller hafa gert það gott undanfarið við að leika spæjarann Sherlock Holmes. Í fyrri útgáfunni sem er sýnd í kvöld og um helgina fer Bene- dikt Cumberbatch með hlutverk skrímslisins og Lee Miller hlut- verk Frankensteins. Í seinni útgáfunni sem sýnd er 25., 30. október og 2. nóvember munu þeir hins vegar skipta um hlut- verk. Cumberbatch tekur þá að sér hlutverk Frankensteins og Miller mun leika óskapnaðinn. Frankenstein er ein umtal- aðasta uppfærsla af Frankenstein allra tíma enda er hún í leikstjórn eins frumlegasta leikstjóra okkar daga. thorduringi@frettabladid.is ➜ Witherspoon segir að bakpoki hennar hafi verið fylltur af þungu efni til að gera hreyfingar hennar raunverulegri. ➜ Skáldsagan Frankenstein kom fyrst út í London árið 1818. Þá var Mary Shelley aðeins tvítug. 45 ára Dominic West leikari Þekktastur fyrir: The Wire. Fær góða dóma Benedikt Cumberbatch hefur fengið góða dóma fyrir leik sinn í The Imitation Game sem vísindamað- urinn Alan Turing, einn af upphafs- mönnum tölvunarfræði, sem leysti dulmál þýska hersins í seinni heimsstyrjöldinni. Turing var samkynhneigður á þeim tíma sem það var ólöglegt í Bretlandi. Leikur illmennið Einn af uppá- halds „vondu körlum“ Holly- wood, Javier Bardem, hefur verið orðaður við hlutverk illmennisins í Pirates of the Caribbean 5. Johnny Depp mun snúa aftur sem Jack Sparrow. Myndin á að koma út sumarið 2017. Joachim Ronning og Espen Sandberg, sem vöktu lukku með Kon-Tiki, munu leikstýra. . Frankenstein hrellir Bíó Paradís sýnir afar sérstaka uppfærslu eft ir Danni Boyle á hryllingssögunni Frankenstein. ÓFRESKJAN Frankenstein er ein frægasta hryllingssaga allra tíma. FRUMSÝNINGAR Orðuð við Óskarinn Reese Witherspoon segir hlutverkið í Wild hafa verið það erfi ðasta sem hún hafi tekist á við. LEIKUR Í WILD Leikkonan Reese With- erspoon í hlutverki sínu í myndinni Wild. Kassatröllin Fjölskyldumynd Aðalhlutverk: Ben Kingsley, Jared Harris & Nick Frost. 7,2/10 6,3/10 Fuera Carta Grínmynd Aðalhlutverk: Javier Cámara, Lola Dueñas, Fernando Tejero. BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.