Fréttablaðið - 16.10.2014, Qupperneq 64
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
Kommóða Kalígarís, áhugafólk
um hrollvekjur, hefur safnað
saman sex manna liði til að taka
þátt í lestrarkeppninni Allir lesa
en hópurinn fer sístækkandi með
degi hverjum.
Hrollvekjuáhugamenn hafa
skráð sig í liðakeppni sem snýst
um hversu miklum tíma er varið
í lestur á meðan keppni stendur.
„Við erum með hóp á Facebook
þar sem við spjöllum aðallega
um kvikmyndir en núna ætlum
við að breyta til og lesa,“ segir
Nína Snorradóttir, einn liðs-
manna. „Planið er að hittast einu
sinni í viku meðan á keppninni
stendur og spjalla um bækurnar
en þess á milli mun hver og einn
sitja í sínu horni og lesa eins og
vindurinn.“
Nína segir áhugafélagið vera
frábæran vettvang til að kynnast
nýju fólki með sama áhugamál.
„Þetta er alls konar fólk frá sex-
tán ára til níræðs sem hefur áhuga
á hrollvekjum. Enginn í mínu
nánasta umhverfi hefur gaman
af hryllingsmyndum þannig að
það er æðislegt að fá að tala um
þær og einhver nennir að hlusta
á mann. Svo skapast áhugaverðar
samræður á vefnum og við höfum
líka talað um að hittast og horfa
saman á myndir enda er ekki allt-
af gott að vera einn að horfa á
hryllingsmynd.“
Nína er komin með þéttan bóka-
lista fyrir keppnina. Þar á meðal
Drakúla, Frankenstein, The Shin-
ing og fleiri klassískar hrollvekj-
ur. Hún ætlar þó ekki eingöngu að
lesa um hrylling enda er það ekki
skilyrði fyrir þátttöku í liðinu.
En af hverju svona mikill
áhugi á hrollvekjum? „Það er
misjafnt eftir fólki. Sumir spá
mikið í myndatöku, hljóð og
brellur. Aðrir eru meira í klass-
ísku myndunum. Ég persónulega
vil bara fá hjartað til að pumpa
og verða skíthrædd,“ segir Nína
hlæjandi að lokum.
Allir lesa hefst á miðnætti á
morgun og stendur til 16. nóvem-
ber sem er dagur íslenskrar
tungu.
erla@frettabladid.is
Keppast við hrollvekjulestur
Á þriðja hundrað liða hafa skráð sig í landskeppni í lestri sem hefst á miðnætti á morgun. Áhugafólk um
hrollvekjur stofnaði lið í keppninni og undirbýr hryllingslestur næsta mánuðinn með hjartað í buxunum.
Alls kyns vinnustaðir, vinahópar, félög og fjölskyldur hafa skráð sig til
leiks í liðakeppninni sem hefst á miðnætti á morgun.
Meðal þátttakenda:
Eignastýringarsvið Íslandsbanka
Kvenréttindafélag Íslands
Ungir fjárfestar
Fágun– félag áhugamanna um gerjun
Starfsmenn bókasafna og lánþegar mynda saman lið
Akureyrarstofa– sem hefur skorað á önnur sveitarfélög en sjá má saman-
burð eftir búsetu á síðu leiksins allirlesa.is
ALLIR LESA– KEPPNI UM MESTAN LESTUR
Lady Gaga segir að karlmenn
hafi reynt að nota hana kynferð-
islega þegar hún var að byrja í
tónlistarbransanum.
Hin 28 ára poppstjarna þurfti
að ýta frá sér karlmönnum sem
hún vann með þegar hún var að
byrja í bransanum. Núna vill hún
deila reynslu sinni með ungum
söngkonum sem eru í sömu spor-
um og hún var í á sínum tíma.
„Ég hef mjög slæma reynslu af
karlmönnum í hljóðverinu. Mér
fannst mjög óþægilegt að vera í
kringum þá. Mér leið ekki eins
og ég væri þarna út af söngrödd-
inni minni heldur meira vegna
þess að þeir vildu notfæra sér
mig,“ sagði hún í viðtali við The
Times. „Þegar konur sem eru í
þessum bransa lesa þessa grein
vonast ég til að þær láti ekki fara
illa með sig. Ég vona að ég geti
verið dæmi um það að ef þú ert
nógu hæfileikarík þá geturðu
lagt hart að þér og látið drauma
þína rætast.“
Gaga, sem er þessa dagana á
tónleikaferðinni Artpop Ball,
segir að poppbransinn sé fullur
af „hákörlum“ og að maður megi
ekki láta vaða yfir sig. „Ég er
svona hreinskilin vegna þess að
ég vil sýna gott fordæmi.“ - fb
Hefur slæma reynslu af körlum í bransanum
Poppsöngkonan Lady Gaga segir að margir karlmenn hafi reynt að nota hana í kynferðislegum tilgangi.
Tónlistarmaðurinn Pharrell
Williams spókaði sig um í París,
höfuðborg Frakklands, í fyrradag
málaður um augun. Var Pharrell
með augnblýant, eða „eyeliner“
eins og það heitir á ensku. Þegar
karlmenn bera augnblýant er það
hins vegar kallað „guyliner“.
Pharrell er sá tónlistarmað-
ur sem hefur hvað mest áhrif í
tónlistarheiminum og spurning
hvort fleiri karlmenn taki hann
sér til fyrirmyndar og setji á sig
augnblýant. Söngvarinn var líka
með augnblýant á mánudaginn
þegar hann birti mynd af sér og
rapparanum Jay-Z á Instagram
eftir tónleika sína í París.
Pharrell með
„guyliner“
LADY GAGA Poppdívan vill vera ungum
söngkonum sem eru að stíga sín fyrstu
skref gott fordæmi.
PHARRELL WILLIAMS Popparinn á
tónleikum. Hann spókaði sig um í París
málaður um augun. NORDICPHOTOS/GETTY
Ég hef mjög slæma
reynslu af karlmönnum í
hljóðverinu. Mér fannst
mjög óþægilegt að vera í
kringum þá.
Eðlisfræðingurinn Stephen
Hawking mun ljá rokksveitinni
goðsagnakenndu Pink Floyd rödd
sína á næstu plötu hennar, The
Endless River. Platan kemur út
í nóvember og er fyrsta útgáfa
sveitarinnar í tvo áratugi.
Á plötunni, sem er að mestu án
söngs, verður lagið Talkin’ Hawk-
in’ þar sem Hawking mun beita
sinni vélrænu röddu. Þetta er
ekki í fyrsta skiptið sem Hawk-
ing kemur fram með sveitinni en
hann er sögumaður lagsins Keep
Talkin’ af plötunni The Division
Bell sem kom út árið 1994.
Hawking er enginn nýgræð-
ingur í vestrænum poppkúltúr og
hefur meðal annars komið fram í
sjónvarpsþáttunum The Simp-
sons, Big Bang Theory og Star
Trek. - þij
Syngur með
Pink Floyd
STEVEN HAWKING Ljær rokksveitinni
Pink Floyd rödd sína. NORDICPHOTOS/GETTY
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/STEFÁN
HRYLLINGSBÓKAORMAR
Nína Snorra dóttir og Elín Ýr
Arnardóttir eru meðal liðs-
manna Komm óðu Kalígarís.
David Wolfe, sem talinn er helsti
sérfræðingur heims í hráfæði og
svokölluðu ofurfæði, mun halda
þriggja tíma fyrirlestur og sýni-
kennslu á Grand Hóteli í dag.
„Hann er ástfanginn af Íslandi
og reynir að koma hingað árlega,“
segir Sólveig Eiríksdóttir í Gló og
Grænum kosti. „Núna ætlar hann
að vera með mjög skemmtilegan
fyrirlestur en hann er svolítið á
undan sinni samtíð.“
Sólveig mun einnig halda erindi
um ofurfæði ásamt Ólafi Stefáns-
syni handboltamanni og Þorbjörgu
Hafsteinsdóttur næringarþerap-
ista.
Wolfe er einn stofnenda The-
BestDayEver.com, heilsutímarits
á vefnum, og er forstjóri The Fruit
Tree Planting Foundation, sam-
taka sem hafa það markmið að
gróðursetja 18 milljarða ávaxta-
trjáa.
Að sögn Sólveigar mætti kalla
Wolfe „rokkstjörnu“ í heimi græn-
kera. „Margar stjörnur leita til
hans af því að hann er bæði mjög
fróður og vel tengdur. Hann er
meðal annars gúrú leikarans
Woody Harrelson, sem er líka
heilsunörd.“
Wolfe heldur ráðstefnu í Los
Angeles árlega og hefur boðið
Sólveigu að kenna þar. „Á síð-
ustu uppákomu hans mættu tug-
þúsundir manna og það lá við að
David kæmist aldrei út úr salnum,
því aðdáendurnir ætluðu bókstaf-
lega að éta hann upp til agna.“
- þij
„Rokkstjarna“ í heimi grænkera til Íslands
David Wolfe, gúrú leikarans Woody Harrelson og sérfræðingur í hráfæði, heldur fyrirlestur á Grand Hóteli.
FLYTUR BOÐSKAP HINS ÓHEFÐ-
BUNDNA David er gúrú í hráfæðis-
heiminum.
Hann er ástfanginn
af Íslandi og reynir að
koma hingað árlega.
Sólveig Eiríksdóttir
LÍFIÐ