Fréttablaðið - 16.10.2014, Síða 68
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 56
„Það er mjög góð stemning fyrir
þessu,“ segir Dögg Mósesdóttir,
stofnandi kvikmyndahátíðarinnar
Northern Wave sem haldin verður
í sjöunda sinn á Grundarfirði um
næstu helgi.
„Við höfum vanalega verið með
hátíðina á þyngsta vetrartímanum,
þar sem er svo snjóþungt og hvasst
að gestir hafa jafnvel séð dauða
fugla á veginum. En í ár verður
betra og léttara veður.“
Northern Wave er alþjóðleg
stuttmynda- og tónlistarmynd-
bandahátíð sem leggur áherslu á
kynslóð nýrra leikstjóra og nýjar
raddir í kvikmyndagerð.
Dögg segir að svo virðist sem
það hafi verið mikil fjölgun á kven-
leikstjórum undanfarið. „Stutt-
myndir hafa oft gefið vísbendingar
um það sem koma skal í bransan-
um því þetta eru oft framtíðarleik-
stjórarnir. Við höfum tekið eftir
mikilli fjölgun kvenleik stjóra í
grasrótinni. Kvenraddirnar eru
svolítið nýjar raddir í bransanum
því þær hafa heyrst mjög lítið. Við
tökum því fagnandi.“
Að sögn Daggar er lögð áhersla
á að sýna rjómann af því sem er að
gerast í stuttmyndum úti í heimi.
„Við sýnum líka nýjar uppgötv-
anir sem okkur fannst frábærar
en hafa kannski ekki verið mikið
á hátíðum ennþá, ásamt íslensk-
um stuttmyndum sem eru allt-
af vinsælastar á hátíðinni,“ segir
Dögg. Keppt er um verðlaun fyrir
bestu íslensku stuttmyndina, besta
íslenska tónlistarmyndbandið og
bestu alþjóðlegu stuttmyndina.“
„Ég held að vinsældir stutt-
mynda og tónlistarmyndbanda
séu að aukast. Þegar við vorum
að byrja héldu allir að tónlistar-
myndbönd væru að deyja út. Þau
hafa aftur á móti aldeilis sótt í sig
veðrið. Ég held að það sama geti
gerst með stuttmyndirnar. Við
erum orðin svo YouTube-vædd að
við erum farin að fíla miklu betur
styttri snið. Ég held að stuttmynda-
formið eigi framtíðina fyrir sér,“
segir Dögg.
Boðið er upp á fleiri viðburði á
hátíðinni svo sem fiskréttakeppni
og tónleika. thorduringi@frettabladid.is
Fleiri konur leikstýra
í íslensku grasrótinni
Kvikmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í sjöunda sinn á Grundarfi rði.
Lögð verður áhersla á það helsta sem er að gerast í stuttmyndum úti í heimi.
STYTTRA SNIÐ SÆKIR Í SIG VEÐRIÐ Dögg Mósesdóttir, stofnandi hátíðarinnar, lítur björtum augum á framtíð stuttmyndanna.
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5.
Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson,
12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is
LAGALISTINN TÓNLISTINN
09.10.2014 ➜ 15.10.2014
1 Meghan Trainor All About That Bass
2 Kaleo All The Pretty Girls
3 Sam Smith I’m Not The Only One
4 Prins Póló París norðursins
5 Lilly Wood and The Prick Prayer in C
6 Tove Lo Habits (Stay High)
7 Nýdönsk Nýr maður
8 Milky Chance Stolen Dance
9 Calvin Harris Blame
10 The Script Superheroes
1 Raggi Bjarna 80 ára
2 Hjálmar Skýjaborgin
3 Nýdönsk Diskó Berlín
4 Ýmsir Jólin alls staðar
5 Kaleo Kaleo
6 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music Vol. 2
7 Sólstafir Ótta
8 Mammút Komdu til mín svarta systir
9 Ýmsir SG hljómplötur
10 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
Marina Ginn, fyrrverandi eigin-
kona Gregs Ginn eins stofnenda
bandarísku pönksveitarinnar
Black Flag, hefur ásakað hann um
að misnota dætur þeirra.
Í október fór Marina með for-
ræðismál fyrir dómstóla og krafð-
ist fulls forræðis yfir dætrum
þeirra, Isadoru, sem er 10 ára, og
Karis, sem er sjö ára.
Í eiðfestri yfirlýsingu segir
að Greg hafi verið „óútreiknan-
legur og hrottalegur“ og að hann
hafi „stefnt lífi og andlegri heilsu
barnanna í hættu“. Í skjalinu segir
að börnin hafi „kvartað undan því
að hegðun hans yrði óútreiknan-
legri með hverjum degi“ en þar
segir að Greg hafi neitað að gefa
þeim að borða og haft í hótunum
við þær. Að hann misnoti áfengi
og vímuefni í viðurvist þeirra og
að þær hafi orðið vitni að áflogum
og líkamlegu ofbeldi í húsinu sem
þær búi í.
Í skjalinu segir að Greg hafi
neytt dæturnar til að taka til á
heimilinu langt fram á nótt, læst
þær inni í herbergi tímunum
saman og skvett vatni framan í
þær. Þá segir að Greg hafi áreitt
dætur sínar með því að blístra á
þær, segja þeim að fara í megrun
og segja við þær „þú ert heit“.
Black Flag var stofnuð árið 1976
og hefur verið kölluð „fyrsta harð-
kjarnasveit Bandaríkjanna“. - þij
Stofnandi Black Flag sakaður um níð
Fyrrverandi eiginkona Gregs Ginn segir hann hafa misnotað dætur þeirra grófl ega.
GREG GINN Gítarleikari og einn
stofnenda Black Flag.
50” risi á frábæru verði
50” LED 3D SJÓNVARP - KDL50W828
• Full HD 1920 x1080 punktar
• Motionflow XR 800Hz myndvinnslukerfi
Tilboð 224.990.- Verð áður 249.990.-
Einstök gæði
49” LED 3D SJÓNVARP - KD49X850
• 4K (3840x2160) Ultra HD upplausn
• Motionflow XR 200Hz, Triluminos skjár og þrívíddarafspilun
Tilboð 382.490.- Verð áður 449.990.-
Örþunnt og flott
40” LED SJÓNVARP - KDL40W605
• Full HD 1920 x1080 punktar
• Motionflow 200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Tilboð 127.990.- Verð áður 159.990.-
Magnað verð
48” LED SJÓNVARP - KDL48W605
• Full HD 1920 x1080 punktar
• Motionflow 200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Tilboð 175.990.- Verð áður 199.990.-
Sony Center / Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700
Sony Center / Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
5 ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
Tilboð
48” 175.990.-
Tilboð
40” 127.990.-
Tilboð
49” 382.490.-
Húrra!
Sony lækkar verð
➜ Kvenraddirnar eru svolítið
nýjar raddir í bransanum því
þær hafa heyrst mjög lítið.