Fréttablaðið - 16.10.2014, Síða 74
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 62
HANDBOLTI Stjarnan, Valur, ÍBV,
Fram, FH og ÍR. Öll eiga þau sam-
eiginlegt að hafa tapað fyrir spútn-
ik liði vetrarins í handboltan-
um. Afturelding úr Mosfellsbæ
hefur komið eins og stormsveip-
ur inn í Olís-deild karla eftir
eins vetrar dvöl í 1. deildinni
og Guðjón Guðmundsson, hand-
boltaspekingur og íþróttafrétta-
maður á Stöð 2, er einn af þeim
sem hafa hrifist af þessum stór-
efnilegu handboltamönnum sem
eru nær allir uppaldir í Aftur-
eldingu.
„Liðið eins og það er uppsett
í dag gæti orðið Íslandsmeist-
ari en mótið er bara svo hrika-
lega langt og liðið er ungt,“ segir
Guðjón Guðmundsson sem hefur
fylgst vel með íslenska handbolt-
anum í meira en þrjá áratugi.
„Ég fullyrði það að þetta er betri
efniviður en sá sem við sáum í FH
þegar Aron (Pálmarsson) og Ólaf-
ur (Guðmundsson) voru að koma
upp. Þetta er albesti efniviður sem
Ísland hefur fengið síðan Valur
átti Geir Sveinsson, Dag Sigurðs-
son og Ólaf Stefánsson. Þetta er til
jafns við það og Víkingana þegar
þeir voru upp á sitt besta á árunum
1980 til 1982. Við höfum ekki feng-
ið svona hóp á Íslandi síðan,“ segir
Guðjón. Víkingarnir unnu titilinn
fjögur ár í röð frá 1980 til 1983 og
Valsmenn unnu hann fjögur ár í röð
frá 1993 til 1996.
„Þetta er efnilegasta lið landsins
og innan tveggja til þriggja ára þá
verður þetta lið meistari ef þeir
halda vel á spöðunum og gætu
þá unnið þetta eins lengi og þeir
vilja,“ segir Guðjón en hér á síð-
unni má sjá palladóma hans um
helstu leikmenn liðsins.
Aftureldingu tókst að halda
öllum sínum efnilegustu leik-
mönnum þegar liðið féll vorið
2013.
„Ég hvet alla sem hafa áhuga
á íþróttinni til að fylgjast með
þessu því þessi uppbygging þarna
er mögnuð sem og það að þeir
skyldu hafa haldið öllum mann-
skapnum þegar þeir féllu. Þá voru
allir að narta í þá, Valur, Haukar
og FH. Þeir eru ótrúlega seigir,
þessir guttar, og þeir héldu áfram
og komu liðinu strax upp aftur,“
segir Guðjón en hann veit þó að
þeir vinna ekki alla leiki í vetur.
„Þeir munu hlaupa á vegg
einhvern tímann í vetur og
þá reynir á hópinn, liðið og
umfram allt þjálfarateym-
ið,“ segir Guðjón.
Strákarnir í Aftureld-
ingu fagna hverju marki og
svo hverjum sigri eins
og þeir hafi verið að
tryggja sér titilinn.
„Það er kostur. Það
er gríðarlega góð
stemning og það er
góð ára í kringum
liðið. Nú eru áhorf-
endurnir líka farn-
ir að mæta og ég
held að það verði
uppselt í Mosfellsbæ í kvöld, 950
manns, sem er met í nýja húsinu,“
segir Guðjón. Afturelding tekur
þá á móti Haukum að Varmá
klukkan 19.30.
En hvað þarf að gerast til að
Afturelding verði meistari í
fyrsta sinn í sextán ár?
„Nenni þeir að æfa og
leggja aukalega á sig
þá munu þeir vera
kandídatar í meist-
ara í vetur en til þess
að svo muni verða þá
þurfa menn þarna að
æfa aukalega, ann-
aðhvort á morgn-
ana eða í hádeginu,“
sagði Guðjón léttur.
ooj@frettabladid.is
Efnilegasta handboltalið landsins
Nýliðar Aft ureldingar úr Mosfellsbæ hafa unnið sex fyrstu leiki sína í Olís-deildinni og eru með fj ögurra stiga forskot í toppsæti
deildarinnar. Fréttablaðið fékk Guðjón Guðmundsson til að segja okkur frá þessum strákum sem eru fl estallir uppaldir í félaginu.
EINAR ANDRI EINARSSON
ÞJÁLFARI
Á FYRSTA ÁRI MEÐ LIÐIÐ
„Ég er hrifinn af Einari Andra. Hann er ungur
þjálfari og það sem háði honum hjá FH var
að hann þekkti alla leikmennina frá því að
þeir voru sex til sjö ára. Nú er hann kominn í
annað umhverfi og ég sé hann fyrir mér sem
alvöruþjálfara í framtíðinni. Hann er búinn að
vinna geysilega gott starf en mér finnst samt að
líkamlegi þátturinn hjá þeim gæti verið betri.“
PÁLMAR PÉTURSSON
30 ÁRA MARKVÖRÐUR
NÝR LEIKMAÐUR
„Hann er stemningsmaður dauðans. Það er
synd með Pálmar því þegar ég sá hann fyrst 19
ára gamlan í Val þá var ég sannfærður um það
að hann yrði landsliðsmarkvörður og kæmist í
alþjóðlegan klassa. Ég held því miður að hann
hafi verið of latur til þess að komast þangað. Í
dag finnst mér hann vera einn af okkar bestu
markvörðum. Hann er ótrúlega mikill stemn-
ingskarl og hefur hjálpað liðinu í þeim leikjum
þegar Davíð hefur klikkað. Hann mun gera það
í vetur.“
DAVÍÐ HLÍÐDAL SVANSSON
29 ÁRA MARKVÖRÐUR
UPPALINN
„Besti markvörður deildarinnar en þó ekki
nægilega góður til að vera í landsliðinu. Það
sem hann hefur fram yfir marga aðra er að
hann les leikinn vel og leggur mikla vinnu í
andstæðingana. Hann labbar svolítið í hornin og
er alveg ótrúlega góður á góðum degi en vantar
stöðugleika,“ segir Guðjón.
➜ Ekki gleyma þessum…
1,8 MÖRK AÐ MEÐALTALI
BÖÐVAR PÁLL ÁSGEIRSSON
19 ÁRA VINSTRI SKYTTA
UPPALINN
11 MARK Í 6 LEIKJUM
„Fyrir þremur árum sá ég í honum Mikkel
Hansen. Hann hefur verið gríðarlega mikið
meiddur. Þessi leikmaður á að vera kominn
lengra en hann hefur ekki æft rétt og ekki verið
meðhöndlaður rétt. Það er synd því íslenska
landsliðið þarf svona leikmann. Það ræðst á
næstu tveimur árum hvort hann nær í gegn en
hann gæti orðið heimsklassa,“ segir Guðjón.
2,3 MÖRK AÐ MEÐALTALI
ÁRNI BRAGI EYJÓLFSSON
19 ÁRA HÆGRI HORNAMAÐUR
UPPALINN
14 MÖRK Í 6 LEIKJUM
„Hann er einn af þeim betri af yngri
kynslóðinni í hægra horninu. Hann
vantar pínulitla hæð og þyrfti að vera
betri í vörn en hann er mjög sterkur
af teignum og góður hraðaupphlaups-
maður. Hann er gríðarlega mikið efni.“
2,8 MÖRK AÐ MEÐALTALI
GUNNAR MALMQUIST ÞÓRSSON
20 ÁRA VINSTRI HORNAMAÐUR
NÝR LEIKMAÐUR
17 MÖRK Í 6 LEIKJUM
„Ég hef alltaf verið hrifinn af honum og hann
er af þessu Malmquist-kyni að norðan. Hann er
mikill baráttujaxl og frábær liðsmaður Hann er
afburðahornamaður en þarf kannski að hafa
aðeins meiri stjórn á sér í leikjum því hann fer
svolítið fram úr sér. Hrikalega mikið talent.“
2,8 MÖRK AÐ MEÐALTALI
PÉTUR JÚNÍUSSON
22 ÁRA LÍNUMAÐUR
UPPALINN
14 MÖRK Í 5 LEIKJUM
„Hann er tveggja metra risi og svona
nýr Rússa jeppi. Hann þarf hins vegar að
bæta á sig einum tíu kílóum. Hann er án
nokkurs vafa framtíðarlandsliðsmaður og
er leikmaður sem gæti komist í fremstu
röð í heiminum ef hann nennir að æfa.
Í dag er hann svona eins og lítill Land-
Rover,“ segir Guðjón.
3,0 MÖRK AÐ MEÐALTALI
ELVAR ÁSGEIRSSON
20 ÁRA LEIKSTJÓRNANDI
UPPALINN
18 MÖRK Í 6 LEIKJUM
„Hann er að mínu viti framtíðarleikstjórn-
andi íslenska landsliðsins. Ég fullyrði það.
Hans helsti galli er að hann þarf að geta
skotið af gólfi. Skorar ótrúlega mikilvæg
mörk, hann er bara tvítugur og tæpir tveir
metrar. Hann þarf að laga varnarleikinn en
er gríðarlega mikið efni og eitt mesta efni
sem ég hef séð síðustu ár,“ segir Guðjón.
4,0 MÖRK AÐ MEÐALTALI
ÖRN INGI BJARKASON
24 ÁRA LEIKSTJÓRNANDI
UPPALINN
16 MÖRK Í 4 LEIKJUM
„Hann hefur ótrúlega hæfileika en
hefur því miður verið alltof mikið
meiddur á undangengnum árum því
annars væri hann landsliðsmaður.
Hann er lykilleikmaður Aftureldingar
og stýrir leik þeirra,“ segir Guðjón.
4,2 MÖRK AÐ MEÐALTALI
JÓHANN JÓHANNSSON
28 ÁRA VINSTRI SKYTTA
UPPALINN
21 MARK Í 5 LEIKJUM
„Frábær leikmaður fyrir liðið. Góður
skotmaður sem getur leyst inn á línu sem
er kostur. Hann er einnig mjög sterkur
í vörn,“ segir Guðjón Guðmundsson
um hinn leikreynda leikmann Jóhann
Jóhannsson.
4,2 MÖRK AÐ MEÐALTALI
JÓHANN GUNNAR EINARSSON
29 ÁRA HÆGRI SKYTTA
NÝR LEIKMAÐUR
25 MÖRK Í 6 LEIKJUM
„Leikmaður sem liðið vantaði. Hann
gefur því jafnvægi og styrk þegar
mest á reynir. Ég hefði viljað sjá
hann í landsliðinu,“ segir Guðjón um
Jóhann Gunnar Einarsson sem tók
fram skóna á ný eftir ársfrí en hann
varð þar á undan Íslandsmeistari með
Fram vorið 2013.
GUÐJÓN
GUÐMUNDSSON
BIRKIR BENEDIKTSSON
18 ÁRA HÆGRI SKYTTA
UPPALINN
1 MARK Í 6 LEIKJUM
„Þetta er tveggja metra strákur sem
ég held að geti alveg orðið hrikalega
góður. Það eru líka fleiri á leiðinni upp
úr yngri flokkum Aftureldingar,“ segir
Guðjón.