Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 74
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 62 HANDBOLTI Stjarnan, Valur, ÍBV, Fram, FH og ÍR. Öll eiga þau sam- eiginlegt að hafa tapað fyrir spútn- ik liði vetrarins í handboltan- um. Afturelding úr Mosfellsbæ hefur komið eins og stormsveip- ur inn í Olís-deild karla eftir eins vetrar dvöl í 1. deildinni og Guðjón Guðmundsson, hand- boltaspekingur og íþróttafrétta- maður á Stöð 2, er einn af þeim sem hafa hrifist af þessum stór- efnilegu handboltamönnum sem eru nær allir uppaldir í Aftur- eldingu. „Liðið eins og það er uppsett í dag gæti orðið Íslandsmeist- ari en mótið er bara svo hrika- lega langt og liðið er ungt,“ segir Guðjón Guðmundsson sem hefur fylgst vel með íslenska handbolt- anum í meira en þrjá áratugi. „Ég fullyrði það að þetta er betri efniviður en sá sem við sáum í FH þegar Aron (Pálmarsson) og Ólaf- ur (Guðmundsson) voru að koma upp. Þetta er albesti efniviður sem Ísland hefur fengið síðan Valur átti Geir Sveinsson, Dag Sigurðs- son og Ólaf Stefánsson. Þetta er til jafns við það og Víkingana þegar þeir voru upp á sitt besta á árunum 1980 til 1982. Við höfum ekki feng- ið svona hóp á Íslandi síðan,“ segir Guðjón. Víkingarnir unnu titilinn fjögur ár í röð frá 1980 til 1983 og Valsmenn unnu hann fjögur ár í röð frá 1993 til 1996. „Þetta er efnilegasta lið landsins og innan tveggja til þriggja ára þá verður þetta lið meistari ef þeir halda vel á spöðunum og gætu þá unnið þetta eins lengi og þeir vilja,“ segir Guðjón en hér á síð- unni má sjá palladóma hans um helstu leikmenn liðsins. Aftureldingu tókst að halda öllum sínum efnilegustu leik- mönnum þegar liðið féll vorið 2013. „Ég hvet alla sem hafa áhuga á íþróttinni til að fylgjast með þessu því þessi uppbygging þarna er mögnuð sem og það að þeir skyldu hafa haldið öllum mann- skapnum þegar þeir féllu. Þá voru allir að narta í þá, Valur, Haukar og FH. Þeir eru ótrúlega seigir, þessir guttar, og þeir héldu áfram og komu liðinu strax upp aftur,“ segir Guðjón en hann veit þó að þeir vinna ekki alla leiki í vetur. „Þeir munu hlaupa á vegg einhvern tímann í vetur og þá reynir á hópinn, liðið og umfram allt þjálfarateym- ið,“ segir Guðjón. Strákarnir í Aftureld- ingu fagna hverju marki og svo hverjum sigri eins og þeir hafi verið að tryggja sér titilinn. „Það er kostur. Það er gríðarlega góð stemning og það er góð ára í kringum liðið. Nú eru áhorf- endurnir líka farn- ir að mæta og ég held að það verði uppselt í Mosfellsbæ í kvöld, 950 manns, sem er met í nýja húsinu,“ segir Guðjón. Afturelding tekur þá á móti Haukum að Varmá klukkan 19.30. En hvað þarf að gerast til að Afturelding verði meistari í fyrsta sinn í sextán ár? „Nenni þeir að æfa og leggja aukalega á sig þá munu þeir vera kandídatar í meist- ara í vetur en til þess að svo muni verða þá þurfa menn þarna að æfa aukalega, ann- aðhvort á morgn- ana eða í hádeginu,“ sagði Guðjón léttur. ooj@frettabladid.is Efnilegasta handboltalið landsins Nýliðar Aft ureldingar úr Mosfellsbæ hafa unnið sex fyrstu leiki sína í Olís-deildinni og eru með fj ögurra stiga forskot í toppsæti deildarinnar. Fréttablaðið fékk Guðjón Guðmundsson til að segja okkur frá þessum strákum sem eru fl estallir uppaldir í félaginu. EINAR ANDRI EINARSSON ÞJÁLFARI Á FYRSTA ÁRI MEÐ LIÐIÐ „Ég er hrifinn af Einari Andra. Hann er ungur þjálfari og það sem háði honum hjá FH var að hann þekkti alla leikmennina frá því að þeir voru sex til sjö ára. Nú er hann kominn í annað umhverfi og ég sé hann fyrir mér sem alvöruþjálfara í framtíðinni. Hann er búinn að vinna geysilega gott starf en mér finnst samt að líkamlegi þátturinn hjá þeim gæti verið betri.“ PÁLMAR PÉTURSSON 30 ÁRA MARKVÖRÐUR NÝR LEIKMAÐUR „Hann er stemningsmaður dauðans. Það er synd með Pálmar því þegar ég sá hann fyrst 19 ára gamlan í Val þá var ég sannfærður um það að hann yrði landsliðsmarkvörður og kæmist í alþjóðlegan klassa. Ég held því miður að hann hafi verið of latur til þess að komast þangað. Í dag finnst mér hann vera einn af okkar bestu markvörðum. Hann er ótrúlega mikill stemn- ingskarl og hefur hjálpað liðinu í þeim leikjum þegar Davíð hefur klikkað. Hann mun gera það í vetur.“ DAVÍÐ HLÍÐDAL SVANSSON 29 ÁRA MARKVÖRÐUR UPPALINN „Besti markvörður deildarinnar en þó ekki nægilega góður til að vera í landsliðinu. Það sem hann hefur fram yfir marga aðra er að hann les leikinn vel og leggur mikla vinnu í andstæðingana. Hann labbar svolítið í hornin og er alveg ótrúlega góður á góðum degi en vantar stöðugleika,“ segir Guðjón. ➜ Ekki gleyma þessum… 1,8 MÖRK AÐ MEÐALTALI BÖÐVAR PÁLL ÁSGEIRSSON 19 ÁRA VINSTRI SKYTTA UPPALINN 11 MARK Í 6 LEIKJUM „Fyrir þremur árum sá ég í honum Mikkel Hansen. Hann hefur verið gríðarlega mikið meiddur. Þessi leikmaður á að vera kominn lengra en hann hefur ekki æft rétt og ekki verið meðhöndlaður rétt. Það er synd því íslenska landsliðið þarf svona leikmann. Það ræðst á næstu tveimur árum hvort hann nær í gegn en hann gæti orðið heimsklassa,“ segir Guðjón. 2,3 MÖRK AÐ MEÐALTALI ÁRNI BRAGI EYJÓLFSSON 19 ÁRA HÆGRI HORNAMAÐUR UPPALINN 14 MÖRK Í 6 LEIKJUM „Hann er einn af þeim betri af yngri kynslóðinni í hægra horninu. Hann vantar pínulitla hæð og þyrfti að vera betri í vörn en hann er mjög sterkur af teignum og góður hraðaupphlaups- maður. Hann er gríðarlega mikið efni.“ 2,8 MÖRK AÐ MEÐALTALI GUNNAR MALMQUIST ÞÓRSSON 20 ÁRA VINSTRI HORNAMAÐUR NÝR LEIKMAÐUR 17 MÖRK Í 6 LEIKJUM „Ég hef alltaf verið hrifinn af honum og hann er af þessu Malmquist-kyni að norðan. Hann er mikill baráttujaxl og frábær liðsmaður Hann er afburðahornamaður en þarf kannski að hafa aðeins meiri stjórn á sér í leikjum því hann fer svolítið fram úr sér. Hrikalega mikið talent.“ 2,8 MÖRK AÐ MEÐALTALI PÉTUR JÚNÍUSSON 22 ÁRA LÍNUMAÐUR UPPALINN 14 MÖRK Í 5 LEIKJUM „Hann er tveggja metra risi og svona nýr Rússa jeppi. Hann þarf hins vegar að bæta á sig einum tíu kílóum. Hann er án nokkurs vafa framtíðarlandsliðsmaður og er leikmaður sem gæti komist í fremstu röð í heiminum ef hann nennir að æfa. Í dag er hann svona eins og lítill Land- Rover,“ segir Guðjón. 3,0 MÖRK AÐ MEÐALTALI ELVAR ÁSGEIRSSON 20 ÁRA LEIKSTJÓRNANDI UPPALINN 18 MÖRK Í 6 LEIKJUM „Hann er að mínu viti framtíðarleikstjórn- andi íslenska landsliðsins. Ég fullyrði það. Hans helsti galli er að hann þarf að geta skotið af gólfi. Skorar ótrúlega mikilvæg mörk, hann er bara tvítugur og tæpir tveir metrar. Hann þarf að laga varnarleikinn en er gríðarlega mikið efni og eitt mesta efni sem ég hef séð síðustu ár,“ segir Guðjón. 4,0 MÖRK AÐ MEÐALTALI ÖRN INGI BJARKASON 24 ÁRA LEIKSTJÓRNANDI UPPALINN 16 MÖRK Í 4 LEIKJUM „Hann hefur ótrúlega hæfileika en hefur því miður verið alltof mikið meiddur á undangengnum árum því annars væri hann landsliðsmaður. Hann er lykilleikmaður Aftureldingar og stýrir leik þeirra,“ segir Guðjón. 4,2 MÖRK AÐ MEÐALTALI JÓHANN JÓHANNSSON 28 ÁRA VINSTRI SKYTTA UPPALINN 21 MARK Í 5 LEIKJUM „Frábær leikmaður fyrir liðið. Góður skotmaður sem getur leyst inn á línu sem er kostur. Hann er einnig mjög sterkur í vörn,“ segir Guðjón Guðmundsson um hinn leikreynda leikmann Jóhann Jóhannsson. 4,2 MÖRK AÐ MEÐALTALI JÓHANN GUNNAR EINARSSON 29 ÁRA HÆGRI SKYTTA NÝR LEIKMAÐUR 25 MÖRK Í 6 LEIKJUM „Leikmaður sem liðið vantaði. Hann gefur því jafnvægi og styrk þegar mest á reynir. Ég hefði viljað sjá hann í landsliðinu,“ segir Guðjón um Jóhann Gunnar Einarsson sem tók fram skóna á ný eftir ársfrí en hann varð þar á undan Íslandsmeistari með Fram vorið 2013. GUÐJÓN GUÐMUNDSSON BIRKIR BENEDIKTSSON 18 ÁRA HÆGRI SKYTTA UPPALINN 1 MARK Í 6 LEIKJUM „Þetta er tveggja metra strákur sem ég held að geti alveg orðið hrikalega góður. Það eru líka fleiri á leiðinni upp úr yngri flokkum Aftureldingar,“ segir Guðjón.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.