Fréttablaðið - 16.10.2014, Qupperneq 78
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 66
FIMMTUDAGSLAGIÐ
„Þetta er svolítið eins og píslar-
ganga Krists, þessi veikindasaga
hans,“ segir Kolfinna Nikulás-
dóttir, ein af Reykjavíkurdætrum,
sem er eigandi kattarins Krists, en
hann þjáist af áfallastreituröskun
á háu stigi.
„Ég held að fyrsta áfallið hans
hafi verið þegar hann fæddist, en
það voru átta aðrir kettlingar í
gotinu, sem er mjög mikið,“ segir
Kolfinna og bætir við að hann hafi
einnig verið lengi hjá móður sinni
og þess vegna hafi það verið annað
áfall fyrir hann þegar hann var
tekinn frá henni. Síðan þá hefur
sjúkrasaga Krists bara lengst.
„Hann hefur oft verið lagður inn
á dýraspítala vegna líkamlegra og
andlegra áfalla. Nú síðast var það
vegna sára á hálsi sem hann fékk,
en hann er smá vandræðaungling-
ur núna,“ segir Kolfinna.
Við þessi áföll segir hún að
Kristur sé lengi að jafna sig
og sé hræddur. Kolfinna segist
hafa reynt allt til þess að hjálpa
honum, en ekkert virkað. „Ég
vildi leita í annað en þessar hefð-
bundnu vestrænu aðferðir, svo
ég fann kattaheilara, hún heitir
Natasha og býr í Danmörku og
stundar svokallaða fjarheilun,“
segir Kolfinna.
„Ég er búin að panta tíma fyrir
hann 30. október. Þá hef ég hann
inni allan daginn og býð heim til
mín andlega tengdu fólki til að
vera með okkur. Kristur verð-
ur svo lagður í bæli og við sitj-
um hjá honum,“ segir Kolfinna.
Á sama tíma verður heilarinn í
Danmörku og sendir heilunarork-
una til hans. „Þetta á að græða
öll hans andlegu sár, en það fer
allt eftir því hvort líkami hans
hafnar þessu eða ekki,“ segir
hún. Kolfinna segist hafa heyrt
margar góðar reynslusögur af
meðferðinni, en hún segir að hún
sé þekkt í Evrópu. „Við erum
bara svo aftarlega í öllum svona
málum hérna á Íslandi,“ segir
Kolfinna.
Ef meðferðin ber einhvern
árangur hyggst Kolfinna safna
fyrir ferð fyrir sig og Krist til
Danmerkur. „Natasha getur líka
talað við dýrin og ef þetta geng-
ur vel förum við til hennar. Þetta
verður hans andlega ferðalag.“
adda@frettabladid.is
Eft ir röð áfalla fer
Kristur til fj arheilara
Kolfi nna Nikulásdóttir, rappari í Reykjavíkurdætrum, er eigandi kattarins Krists.
Hann þjáist af áfallastreituröskun og er á leiðinni í meðferð hjá kattarheilara.
VILL HJÁLPA KRISTI Kolfinna bindur miklar vonir við heilunina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vinkonurnar Dagný Rós Hlyns-
dóttir og Heiða Rachel Wilkins eru
níu ára metnaðarfullar stelpur í 4.
bekk í Seljaskóla. Þær tóku sig til
og gáfu út tímarit á dögunum, sem
þær seldu í hverfinu til styrktar
góðu málefni. Fyrsta tölublaðið sló
svo í gegn að nú er annað tölublað
á leiðinni.
„Við vorum bara úti í bílskúr
heima hjá Heiðu, við máttum það
alveg, og við fundum ekkert að
gera. Svo stakk Heiða upp á að við
myndum gera svona blað, alveg
eins og mamma hennar hafði gert
þegar hún var lítil,“ segir Dagný
um það hvernig hugmyndin af
blaðinu kviknaði.
Blaðið þeirra fékk nafnið Ský
og verður um tíu blaðsíður. „Við
vorum að reyna að finna nafn á
blaðið og fengum svo hugmyndina
af því að blað mömmu Heiðu hét
Dropar. Við ætluðum fyrst að láta
það heita Sól eða eitthvað þannig,
en ákváðum svo Ský,“ segir Dagný.
Tímaritið þeirra er uppfullt af
skemmtilegu efni eins og orðasúp-
um, krossgátum, bröndurum og
myndum sem þær teikna og er hægt
að lita.
„Svo sögðum við eigum við ekki
að taka viðtal við einhvern, er ekki
alltaf þannig í svona blöðum? Þann-
ig að við tókum viðtal við bróður
minn,“ segir hún.
Blaðið ætla þær að selja í hverfinu
sínu á næstu dögum og rennur allur
ágóði af sölunni til Rauða krossins,
en þær velja nýtt góðgerðarmál til
að styrkja í hverju blaði. Blaðið mun
kosta 250 krónur. „Það kostaði 150
krónur áður en svo sögðu allir að það
væri svo flott að það ætti að kosta
meira. Þá safnast líka meiri pening-
ur.“ - asi
Níu ára metnaðarfullir ritstjórar
Vinkonunum Dagnýju og Heiðu leiddist svo að þær ákváðu að gefa út tímarit.
STOLTAR STELPUR Þær Heiða Rachel
Wilkins og Dagný Rós Hlynsdóttir með
tímaritið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Venus Illegitima með Svartadauða
og Old Snow með Oyama. Hlakka
til að fara á tónleika á morgun með
Svarta og plata Oyama er alveg að
koma út.“
Pétur Ben, tónlistarmaður
Leikkonan Sesselía Ólafs leikur
farþega í næturstrætó í Night
Bus, nýjustu kvikmynd leikstjór-
ans Simons Baker, sem frumsýnd
var á London Film Festival síðast-
liðinn sunnudag.
Sjálf hefur Sesselía búið og
starfað í London um sex ára skeið
og oft tekið sér far með nætur-
strætó. „Ég leik farþega eins og
allir hinir, enda fjallar myndin
bara um farþega í strætisvagnin-
um. Alls konar fólk, sumir eru frið-
samir elskendur, aðrir vilja stofna
til áfloga og allt þar á milli. Rétt
eins og í veruleikanum.“
Sesselía svaraði auglýsingu á net-
síðu fyrir leikara þar sem hlutverk-
unum var lýst og var ráðin. Hún
segir ekkert aðalhlutverk í mynd-
inni, og hún sé meðal hátt í fimm-
tíu leikara sem hver komi fram í
um fjórar mínútur. „Kvikmynd-
in byggist á spuna, sem er frekar
óvenjulegt. Baker leist vel á hug-
myndir mínar en ég leik konu sem
talar í farsíma við kærasta sinn á
Íslandi,“ segir Sesselía og bætir við
að myndin hafi fengið góða dóma.
Hún er ekki eini Íslendingurinn
í næturstrætó Bakers. Þegar tökur
voru hafnar kom í ljós að leikstjór-
ann vantaði fleiri leikara og þá
hóaði hún í kunningja sinn, Harald
Ágústsson, sem mætti til leiks. - vþj
Íslendingar í nætur strætó í London
Sesselía Ólafs svaraði auglýsingu á netinu og fékk hlutverk í Night Bus sem er ný mynd eft ir Simon Baker.
FARÞEGINN Sesselía Ólafs í
næturstrætó.
*Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðis-
aukaskatt af söluverði. 20,32% afslátturinn
er alfarið á kostnað DORMA.
➜ Baker leist vel á hugmynd-
ir mínar en ég leik konu sem
talar í farsíma við kærasta sinn
á Íslandi.
Ég er búin að panta
tíma fyrir hann 30.
október. Þá hef ég hann
inni allan daginn og býð
heim til mín andlega
tengdu fólki til að vera
með okkur.