Fréttablaðið - 04.02.2015, Qupperneq 2
4. febrúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
ið. Gámaþjónustan fékk þar af leið-
andi verkið til ársins 2019.
Íslenska gámafélagið óskaði
eftir því að fá afhent gögn um
tilboð Gámaþjónustunnar til að
glöggva sig á tilboðinu. Sveitarfé-
lagið neitaði að afhenda þau gögn.
Íslenska gámafélagið skaut mál-
inu til úrskurðarnefndar um upp-
lýsingamál og vildi fá afhent téð
gögn. Úrskurðarnefndin komst
að þeirri niðurstöðu að sveitar-
félaginu bæri að afhenda gögnin.
Enn neitaði sveitarfélagið að
veita fyrirtæki í samkeppni við
Gámaþjónustuna upplýsingar um
tilboðsgerð hennar. Því hefur verið
höfðað mál til þess að fá úr þessu
skorið fyrir dómstólum.
L ögfræðingar Sambands
íslenskra sveitarfélaga og samtaka
iðnaðarins hafa sagt það mikil-
vægt að upplýsingar sem þessar
skuli ekki afhentar samkeppn-
isaðila. Það myndi grafa undan
fyrir komulagi útboða hins opin-
bera. - sa
E
M
M
N
N
E
M
M
E
N
N
Í
/
S
ÍA
/
/
N
M
6
0
0
3
7
0
0
3
7
0
0
3
TRÚ „Þetta hefur verið mikil eyði-
merkurganga,“ segir Hilmar Örn
Hilmarsson allsherjargoði um
langa bið Ásatrúarfélagsins eftir
að fá að reisa hof sem senn mun
verða að veruleika.
Hofið verður undir Öskjuhlíð-
inni skammt austan við veitinga-
staðinn Nauthól. Hilmar segir
ásatrúarmenn ekki ætla að steypa
sér í skuldir og að byggt verði í
tveimur áföngum; fyrst rísi hofið
sjálft ásamt tengibyggingu yfir
í safnaðarheimili sem þeir sjái
fyrir sér að byggja eftir um ára-
tug.
Hilmar segir að nú verði haf-
ist handa við að flytja til gróður
á lóðinni. „Við tökum það sem er
lífvænlegt og færum það í reit-
inn okkar uppi í Heiðmörk. Síðan
byrjum við að fleyga okkur ofan í
klöppina,“ segir hann.
Að sögn Hilmars teygir bygging-
arsagan sig aftur til ársins 2003.
Fyrst var Ásatrúarfélaginu ætluð
lóð í svokallaðri Leynimýri, í hlíð-
inni sunnan undir Perlunni. „Við
vorum færð þaðan því við vorum í
aðflugslínu,“ útskýrir hann.
Aðspurður segir Hilmar nú
flest formsatriði varðandi hofið
í höfn. „Þetta er allt að smella.
Ég býst við að hofið verði tilbúið
haustið 2016,“ segir allsherjargoð-
inn sem reiknar með að þá verði
flutt úr núverandi félagsheimili
Ásatrúarfélagins í Síðumúla.
Mikil fjölgun hefur verið í Ása-
trúarfélaginu síðustu árin. Tæp-
lega 2.400 manns eru nú skráðir
í félagið sem taldi 280 liðsmenn
árið 1998.
„Stærsta breytingin varð árið
2000 og síðan hefur þetta verið
upp á við,“ segir Hilmar, sem
kveðst ekki eiga von á öðru en að
sú þróun haldi áfram þegar söfn-
uðurinn hefur loks byggt hofið.
„Það mun að minnsta ekki draga
úr fjölguninni.“
Hofið verður helgidómur ása-
trúarmanna. „Þar fara fram allar
athafnir á vegum félagsins fyrir
þá sem þess óska,“ segir Hilmar.
Mikil fjölgun hafi verið á brúð-
kaupum að vetrarlagi og hofið
geri félagið óháðara árstímum.
„Svo getum við kannski opnað
fyrir gestum og gangandi meira
en verið hefur.“
Ásatrúarmenn eru afar ánægð-
ir með staðsetningu hofsins í Foss-
vogi. „Við höfum verið með helgi-
hald á þessum stað og fólk er orðið
mjög vant honum og við erum
feikilega stolt af þessu svæði sem
við berum mikla virðingu fyrir.
Við erum að byggja inn í landslag-
ið en ekki á móti því,“ segir alls-
herjargoðinn. gar@frettabladid.is
Eyðimerkurgöngunni
lýkur loks í Öskjuhlíð
Ásatrúarmenn eru nú að hnýta lausa enda til að geta hafið byggingu langþráðs
helgidóms safnaðarins við Fossvog. Liðsmönnum Ásatrúarfélagsins fjölgaði um
750 prósent frá 1998 til 2014. Allsherjargoðinn telur þá þróun munu halda áfram.
STAÐURINN Hér má sjá staðsetningu
hofsins við göngustíginn rétt austan við
Háskólann í Reykjavík.
HOFIÐ „Margir sáu sjálfsagt fyrir sér að farið yrði í einhverja víkingaleikmynd. Ég er mjög
ánægður með að það var meiri áhugi á að fara í áttina að tímaleysi náttúrunnar,“ segir
arkitektinn Magnús Jensson um hugmyndafræðina að baki hofinu. MYND/MAGNÚS JENSSON.
Við
erum feiki-
lega stolt af
þessu svæði
sem við
berum mikla
virðingu fyrir.
Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði
BANDARÍKIN, AP Suge Knight, fyrrverandi útgefandi rapptónlistar í
Bandaríkjunum, lýsti sig saklausan af ákæru um morð og morðtilraun
þegar mál á hendur honum var tekið fyrir í Kaliforníu í gær. Að því
loknu kvartaði Knight undan verkjum fyrir brjósti og var í skyndingu
fluttur á sjúkrahús.
Frekari upplýsingar um líðan Suge Knight lágu ekki fyrir í gær, að
sögn Johns Gardner, lögreglumanns í skerfaraumdæmi Los Angeles.
Knight er gefið að sök að hafa orðið valdur að dauða manns þegar
hann í síðustu viku bakkaði pallbíl sínum viljandi á tvo menn. Að atvik-
inu loknu sögðu vitni hann hafa flúið af vettvangi á bíl sínum. - óká
Rapp-útgefandinn Suge Knight var færður fyrir dómara:
Sagðist saklaus og fékk brjóstverk
FYRIR DÓMI Marion „Suge“ Knight var færður fyrir dóm í gær þar sem mál á
hendur honum var tekið fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samband
íslenskra sveitarfélaga tekur undir
með Kópavogsbæ sem lækkaði
laun starfsmanns eftir niðurstöðu
kærunefndar jafnréttismála.
„Þessi niðurstaða er fengin eftir
að hafa skoðað málið út frá þeim
reglum sem gilda og kjarasamn-
ingsbundnum ákvæðum. Niður-
staðan er því faglegs eðlis,“ segir
Halldór Halldórsson, formað-
ur stjórnar Sambands íslenskra
sveitar félaga. „Önnur sveitarfélög
hafa verið að nota þessa aðferð og
hafa m.a. lækk-
að laun karl-
manna með því
til dæmis að
segja upp akst-
urssamningum
til þess að jafna
launakostnað,“
bætir Halldór
við.
Niðurstaða
kærunefndarinnar var að háskóla-
menntun karlmanns skipti ekki
máli í því starfi sem hann gegnir
og launamunur hans og konu í
sambærilegu starfi verði ekki
útskýrður með tilvísun í háskóla-
nám hans.
Kópavogsbær taldi að háskóla-
menntun karlsins gerði hann að
verðmætari starfsmanni sem rétt-
lætti hærri laun hans.
Kópavogsbær ákvað að una
úrskurði kærunefndar jafnréttis-
mála og setti karlmanninum laun á
nýjan leik miðað við þær forsendur
sem fram koma í úrskurði kæru-
nefndarinnar. - ngy
Háskólamenntun karlmanns var ekki talin réttlæta launamismunun:
Launalækkun sögð faglegs eðlis
ÖLFUS Kröfu Íslenska gámafélags-
ins um að fá afhent gögn vegna
útboðs um sorphirðu í Ölfusi í lok
árs 2013 var hafnað í Héraðsdómi
Suðurlands fyrir helgi.
Taldi dómurinn ekki geta tekið
afstöðu þar sem einkamál hefði
verið höfðað í Héraðsdómi Reykja-
víkur milli beggja aðila og Gáma-
þjónustunnar. Bendir dómurinn
á að þegar mál hafi verið þing-
fest verði dóms ekki krafist um
þær kröfur sem eru gerðar í því
í öðru máli. Það er álit dómsins
að raunverulega sé um að tefla
sama sakar efni í báðum málum
og því ekki hægt að taka efnislega
afstöðu í málinu að þessu sinni.
Forsaga málsins er sú að árið
2013 fór fram útboð á sorphirðu
sveitarfélagsins. Þrjú fyrirtæki
skiluðu tilboðum í sorphirðuna og
átti Gámaþjónustan lægsta tilboð-
Íslenska gámafélagið og Ölfus mættust í Héraðsdómi Suðurlands fyrir helgi:
Ölfus þarf ekki að afhenda gögn
ÖLFUS Íslenska gámafélagið hefur í um
eitt ár reynt að fá afhent gögn um útboð
Ölfuss á sorphirðu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
UMHVERFI Talsverð gasmengun
mældist í hádeginu í gær á norð-
austurhorni landsins. Styrkur
brennisteinsdíoxíðs var um 830
míkrógrömm á hvern rúmmetra
á Vopnafirði. Þá mældust um 450
míkrógrömm við grunnskólann í
Reykjahlíð í Mývatnssveit og rúm
370 míkrógrömm í Kelduhverfi.
Í leiðbeiningum frá Umhverf-
isstofnun eru 800 míkrógrömm
á rúmmetra sögð óholl fyrir við-
kvæma og einkenni frá öndunar-
færum líkleg. Þá ber að forðast
áreynslu utandyra. Í dag, mið-
vikudag, berst mengun einkum
austur frá eldstöðvunum að því
er Veðurstofa Íslands greinir frá.
- kbg
Yfir 800 míkrógrömm:
Gasmengun
eykst á ný
STJÓRNMÁL Frumvarp til laga sem
leyfir staðgöngumæðrun í vel-
gjörðarskyni á Íslandi verður lagt
fram á Alþingi síðar í mánuðinum.
Alþingi samþykkti þings ályktun
um staðgöngu mæðrun í janú ar
2012 og var um haustið skipuðum
starfshópi falinn undirbúningur
frum varps um staðgöngumæðrun.
Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í
gærkvöldi að Dögg Pálsdóttir, lekt-
or við lögfræðideild HR, sem fer
fyrir hópnum segi í frumvarpinu
lagða áherslu á réttindi staðgöngu-
móðurinnar. Þau séu tekin fram
yfir rétt væntanlegra foreldra.
Þannig er staðgöngumóðir skráð
sem móðir barnsins sem hún elur,
en gefur svo frá sér. - kbg
Réttur staðgöngumæðra:
Hefur rétt til
að hætta við
SÝRLAND Flugmaðurinn Mu’ath Al-
Kasaesbeh frá Jórdaníu sem hefur
verið í haldi Íslamska ríkisins frá
því desember var í gær brenndur
lifandi. Samtökin birtu myndband
af morðinu á netinu, en olíu var
hellt yfir hann og eldur borinn að.
Al-Kasaesbeh var handsamað-
ur eftir að flugvél hans brotlenti í
Sýrlandi en síðustu vikur hafa átt
sér stað viðræður um lausn hans.
ISIS vildu fá Sajida al-Rishaw úr
fangelsi, en hún var dæmd fyrir
hryðjuverk í Jórdaníu. - skó
Myndband birt á netinu:
Brenndu fanga
sinn lifandi
Bibbi, verður skálmöld í Evrópu?
„Já, það var að minnsta kosti allt
vitlaust hér í Bilbao.“
Snæbjörn Ragnarsson (Bibbi) og félagar í
Skálmöld eru lagðir af stað í tveggja vikna
tónleikaferð um Suður-Evrópu. Fyrstu tón-
leikarnir voru í spænsku borginni Bilbao í
gærkvöldi.
SPURNING DAGSINS
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-2
A
A
8
1
3
A
0
-2
9
6
C
1
3
A
0
-2
8
3
0
1
3
A
0
-2
6
F
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K