Fréttablaðið - 04.02.2015, Qupperneq 6
4. febrúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað heitir nýr sendiherra Banda-
ríkjanna á Íslandi?
2. Hvaða erlenda fréttastofa fékk leyfi
til að senda út morgunþátt við gos-
stöðvarnar í Holuhrauni?
3. Hversu mikið hefur stuðningur
Pírata aukist frá kosningum?
SVÖR:
1. Robert Barber. 2. Bandaríska fréttastofan
ABC. 3. Meira en tvöfaldast, úr 5 prósentum
í tæp 12 prósent.
Lyfjaval.is • sími 577 1160
20%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir í febrúar.
Lyfjaauglýsing
PI
PA
R\
TB
W
A
W
A
\T
BW
PA
R\
PI
P
•
SÍ
A
SÍ
A
S
Í
••
15
0
59
88
0
59
8
15
0
Skeifunni 11B • Reykjavík • Sími 519 7550 • promennt@promennt.is • promennt.is
TÖLVUNÁMSKEIÐ FYRIR
BYRJENDUR OG 60+
Sími 519 7550
Námskeið sérsniðið fyrir byrjendur og lítt vana tölvunotendur. Hæg yfirferð með
reglulegum upprifjunum og endurtekningum í umsjá þolinmóðra kennara. Í lok
námskeiðs eiga þátttakendur að vera færir um að skrifa texta í Word ritvinnslu-
forritinu, setja hann snyrtilega upp og prenta, nýta sér internetið og meðhöndla
tölvupóst. Einnig er kennt á ýmsa samskiptamiðla eins og Facebook.
VIÐFANGSEFNI
• Windows – Grunnatriði tölvunnar
• Æfingar í að skrifa texta í tölvu og prenta út (ritvinnsla í Word)
• Internetið til gagns og gamans. Upplýsingaleit og vinnsla á internetinu
• Tölvupóstur. Æfingar í að senda og taka á móti tölvupósti (viðhengi o.fl.)
• Facebook og Skype fyrir þá sem vilja og hafa áhuga
Námskeið 1. Hefst: 5. feb. • Lýkur: 26. feb. • Kennt: þri. og fim. (sjö skipti)
kl.13–16. Námskeið 2. Hefst: 4. mars. • Lýkur: 25. mars. • Kennt: mán. og mið.
(sjö skipti) kl. 13–16. Verð: 34.900 kr. Kennsluhefti á íslensku innifalið.
Vinsælt og gagnlegt námskeið þar sem tekið er fyrir það helsta sem
almennir notendur þurfa að kunna um stafrænar myndavélar. Yfirfærsla
mynda í heimilistölvuna, skipulag myndasafns, einfaldar lagfæringar,
myndir prentaðar og sendar í tölvupósti.
Hefst: 16. feb. • Lýkur: 25. feb. • Kennt: mán. og mið. (fjögur skipti) kl. 13–16.
Verð: 22.900 kr. Kennsluhefti á íslensku innifalið.
TÖLVUNÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR OG 60+
STAFRÆNAR MYNDAVÉLAR OG TÖLVAN 60+
VELFERÐARMÁL „Það vantar úrræði
ef eitthvað bregður út af. Þannig að
hún geti haldið sinni rútínu,“ segir
Arndís Einarsdóttir, móðir Hrafn-
hildar Sigurvinsdóttur. Hrafnhildur
sem er 22 ára gömul er hreyfihöml-
uð með töluverða þroskahömlun,
mikla hvatvísi og mjög skert sárs-
aukaskyn. Á föstudaginn í síðustu
viku datt hún á heimili sínu og fót-
brotnaði illa. Þar sem Hrafnhildur
er með viðkvæm bein og brotnar
auðveldlega þarf að passa sérstak-
lega vel upp á hana og eftir fótbrot-
ið má hún ekki stíga í fótinn í sex
vikur.
Hrafnhildur fer í dagvistun á
hverjum degi þar sem hún er frá
klukkan hálf níu á morgnana til
fjögur á daginn auk þess sem hún
er í skammtímavistun á Holtavegi
aðra hverja viku. Vegna fótbrotsins
kemst hún ekki í dagvistunina þar
sem starfsmenn geta ekki tryggt
öryggi hennar vegna manneklu.
„Hún getur ekkert gert sjálf, það
þarf að hjálpa henni með allt af því
hún má ekki stíga í fótinn,“ segir
Arndís móðir hennar þegar blaða-
mann ber að garði á heimili þeirra.
Fjölskyldan býr í kjallaraíbúð þar
sem eru tröppur og því erfitt að
koma Hrafnhildi í hjólastólnum upp
og niður tröppurnar. Þær mæðgur
þurfa því að vera meira og minna
heima allan sólarhringinn og fá
enga auka aðstoð vegna aðstæðn-
anna. „Það myndi til dæmis hjálpa
mikið ef það kæmi einhver hér á
morgnana og hjálpaði mér með
hana fram úr þar sem maðurinn
minn fer snemma í vinnuna,“ segir
hún. Móðir Hrafnhildar þarf að
lyfta henni í hjólastólinn og hjálpa
henni við allar daglegar athafnir
yfir daginn. Það þarf talsvert átak
við að koma Hrafnhildi í stólinn því
hún er með lága vöðvaspennu.
Hrafnhildur virðist ekki kippa
sér mikið upp við ástandið og situr
skælbrosandi uppi í sófa með löpp-
ina upp í loft og dregur fram spila-
bunka þegar blaðamaður heilsar
henni. Hjólastóllinn hennar er við
Föst heima og fær
ekki meiri aðstoð
Fjölfötluð kona fótbrotnaði illa og er föst heima þar sem enga aukaaðstoð er að
fá. Móðir hennar segir vanta úrræði í kerfinu bregði eitthvað út af en hún þarf að
vera með henni heima allan daginn og hjálpa henni við allar daglegar athafnir.
FASTAR HEIMA Meðan Hrafnhildur er fótbrotin komast þær mæðgur lítið sem
ekkert út yfir daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
hliðina á sófanum og þar situr kött-
urinn Lilla og heldur henni félags-
skap.
Arndís hafði samband við félags-
þjónustuna þegar Hrafnhildur
brotnaði en fékk þau svör að það
yrði skoðað hvort væri hægt að
finna einhver úrræði og var boðin
hjálp við heimilisþrif en það er ekki
það sem hún þarf á að halda. „Þann-
ig að við erum bara fastar hér.“
Hrafnhildur er sem áður segir
með viðkvæm bein og hefur brotn-
að oft áður. Móðir hennar hætti að
vinna fyrir fjórum árum þar sem
það reyndist erfitt að samræma
umönnun Hrafnhildar og vinnu.
„Ef það er ekki frí, ekki starfs-
dagur og hún er algjörlega hress þá
rúllar þetta en það eru ekki margar
vikur á ári,“ segir Arndís. „Það var
alltaf eitthvað að koma upp á og þá
þurfti ég að rjúka úr vinnu. Síðan
þegar hún var í framhaldsskóla
þá voru fríin svo löng og erfitt að
dekka þau. Það eru fáir sem vilja
hafa fólk í vinnu sem þarf alltaf að
vera fara frá,“ segir hún og tekur
fram að hún viti að þetta sé eins
hjá foreldrum margra annarra fatl-
aðra barna sem hafi þurft að hætta
að vinna.
Hrafnhildur hefur lengi beðið
eftir búsetuúrræði en ekki fengið.
„Hún var efst á lista sumarið 2013
en fékk ekki úthlutað og það hefur
ekkert gerst síðan þá. Hrafnhildur
er búin að vera í skammtímavistun
aðra hverja viku í níu ár. Það hent-
ar henni ekki lengur þar sem hún
er orðin fullorðin kona og þarf sitt
eigið heimili og rútínu sem er eins
viku frá viku.“
viktoria@frettabladid.is
EVRÓPUMÁL: 53 prósent lands-
manna eru andvíg því að aðild-
arumsókn Íslands að ESB verði
dregin til baka samkvæmt könnun
Capacent Gallup fyrir Já Ísland.
Aldrei hafa fleiri verið hlynntir
því að Ísland verði aðili að sam-
bandinu, eða 46,2 prósent.
1.450 manns voru í úrtaki Capa-
cent Gallup og svöruðu 60 pró-
sent. Þegar spurt var hvernig fólk
myndi greiða atkvæði í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um aðild að
sambandinu kom í ljós að naum-
ur meirihluti er
andvígur aðild.
„Þá hefur verið
hæg en örugg
þróun undanfar-
in misseri þar
sem þeim sem
styðja aðild fjölg-
ar og að sama
skapi fækkar
þeim sem eru á
móti. Þannig að munurinn er orð-
inn mjög lítill,“ segir Jón Steindór
Valdimarsson, formaður Já Ísland.
Nýverið boðaði utanríkisráð-
herra að ný þingsályktunartillaga
verði lögð fram á næstu dögum
um að aðildarumsókn Íslands frá
árinu 2009 verði dregin til baka.
„Og þá kemur í ljós að af þeim sem
taka afstöðu, sem eru um 89 pró-
sent aðspurðra, eru 60 prósent sem
vilja ekki að umsóknin verði dreg-
in til baka. Þannig að þetta tvennt
teiknar mjög til þess að það sé í
andstöðu við vilja meirihluta þjóð-
arinnar að draga umsóknina til
baka,“ segir Jón Steindór. - hmp, ngy
JÓN STEINAR
VALDIMARSSON
Meirihluti landsmanna á móti því að draga aðildarumsókn Íslands að ESB til baka samkvæmt könnun:
Fylgjendum aðildar að ESB fjölgar
Eftir birtingu könnunar Capa-
cent Gallup um hug landsmanna
til aðildarumsóknar að ESB
sendi framkvæmdastjórn Heims-
sýnar frá sér tilkynningu þar
sem áréttað er mikilvægi þess
að umsókn Íslands um aðild
að ESB verði dregin til baka.
„Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar hefur þá skýru
stefnu að Ísland eigi að standa
utan ESB,“ segir þar.
➜ Vilja draga til baka
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
LÖGREGLA Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu framkvæmdi í síðasta mán-
uði á annan tug húsleita í óskyld-
um fíkniefnamálum í Kópavogi og
Breiðholti. Í tilkynningu frá lögregl-
unni segir að lagt hafi verið hald á
talsvert magn af kannabisefnum, en
einnig amfetamín, MDMA og stera.
Aðgerðirnar eru liður í að hamla
gegn sölu, dreifingu og framleiðslu
fíkniefna. Þórhildur Sunna Ævars-
dóttir mannréttindalögfræðingur
talaði um aðgerðir lögreglu í þættin-
um Á Sprengisandi á Bylgjunni síð-
asta sunnudag og sagði almenning
þurfa að velta fyrir sér rétti sínum
gagnvart lögreglunni.
„Þegar lögregla mætir og biður
um að fá að leita að fíkniefnum eftir
ábendingu frá manneskju, er það
lögmæt leið eða ekki?“ spyr Þórhild-
ur Sunna og segir skorta ytra eftir-
lit með lögreglu. „Það vantar heild-
stæða hugsun og stefnumótun um
það hvernig við ætlum að standa
vörð um okkar réttindi,“ bendir hún
á og segir að fólk viti að lögreglan
má ekki biðja einstaklinga um að fá
að leita á þeim eða heimilum þess
nema að vel athuguðu máli. - kbg
Fíkniefnadeild lögreglunnar í víðtækum aðgerðum á höfuðborgarsvæðinu:
Tugir húsleita lögreglunnar
FÍKNIEFNAMÁLIN TEKIN FÖSTUM
TÖKUM Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur gert á annan tug húsleita og
lagt hald á kannabisefni, amfetamín,
MDMA og stera. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEISTU SVARIÐ?
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-5
2
2
8
1
3
A
0
-5
0
E
C
1
3
A
0
-4
F
B
0
1
3
A
0
-4
E
7
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K