Fréttablaðið - 04.02.2015, Síða 8
4. febrúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
TRAUSTIR,
NOTAÐIR
GÆÐABÍLAR
Á HAGSTÆÐU VERÐI
Skoda Rapid Amb. 1.2 TSI
105 hö. Árgerð 2012, besín
Ekinn 35.000 km, beinskiptur
Audi A4 2.0 TDI
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 48.000 km, sjálfskiptur
Skoda Octavia Ambiente
1.6 TDI. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 62.000 km, beinskiptur
MM Pajero Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 98.000 km, sjálfskiptur
VW Golf TDI Trendl.
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 125.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.690.000
Ásett verð: 4.890.000
Ásett verð: 2.890.000
Ásett verð: 6.590.000
Ásett verð: 1.990.000
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
heklanotadirbilar.is
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Audi Q7 S-line TDI 233 hö
Árgerð 2007, dísil
Ekinn 203.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð:
4.290.000
VW Tiguan Track&Style
2.0 TDI. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 44.000 km, sjálfskiptur
VW Passat Comfortl. Eco.
Árgerð 2011, bensín/metan
Ekinn 83.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.290.000Ásett verð: 3.390.000
Skoda Citigo Active
60 hö. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 69.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 1.430.000
SAMFÉLAG Undirskriftasöfnun
stendur nú yfir á vef Öryrkja-
bandalags Íslands, ÖBÍ, þar sem
skorað er á stjórnvöld að innleiða
samning Sameinuðu þjóðanna,
SÞ, um réttindi fatlaðs fólks.
Ísland tók þátt í undirritun samn-
ingsins árið 2007.
Nú hefur 151 land innleitt
samninginn. Fjögur Evrópu-
lönd eiga eftir að innleiða hann,
Ísland, Finnland, Írland og Hol-
land. Samningurinn er leiðar-
vísir að því hvernig tryggja skal
föt luðu fólki
mannréttindi
og tækifæri til
jafns við aðra í
lífinu.
Ellen Calmon,
formaður ÖBÍ,
getur þess að
fyrrverandi
ráðherra innan-
ríkismála, Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, hafi síðastliðið haust
sagt að hún ætlaði að leggja fram
frumvarp á vorþingi 2015 um
lögfestingu samningsins. „Lög-
festing felur í sér frekari rétt-
arvernd einstaklinga en innleið-
ing getur falið í sér lögfestingu.
Það að samningurinn hafi hvorki
verið lögfestur né innleiddur
þýðir að erfiðara verður fyrir
fólk að sækja rétt sinn til dóm-
stóla á grundvelli samningsins.“
Ellen segir innleiðingarferli,
sem innanríkisráðuneytið hefur
umsjón með, hafið. Nú vonist hún
til að samningurinn verði lögfest-
ur sem fyrst. - ibs
Undirskriftasöfnun ÖBÍ vegna samnings SÞ um réttindi fatlaðra:
Stjórnvöld innleiði samning SÞ
ELLEN CALMON
ALÞINGI Fyrstu umræðu um frum-
varp Ragnheiðar Elínar Árnadótt-
ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
lauk í gær, en eftir er að kjósa um
til hvaða nefndar málinu verður
vísað. Mikil andstaða er við frum-
varpið, í öllum flokkum, og þing-
menn sem Fréttablaðið ræddi við
sögðu allsendis óvíst hvort málið
kæmist úr nefnd á yfirstandandi
þingi.
Ráðherra segist ekki hafa kann-
að hvort nægilegur stuðningur sé
fyrir því að frumvarpið verði að
lögum.
„Ég hef ekki farið í hausataln-
ingu. Ég geri mér algjörlega
grein fyrir því að þetta er mál
sem menn þurfa að skoða betur,“
segir Ragnheiður Elín og vísar til
þess að málið gæti breyst í með-
förum þingnefndar. Hún segir
margar gagnlegar athugasemdir
hafa komið fram, en er ekki til-
búin til að segja að einstök atriði
hafi komið fram sem hún vilji sjá
til breytingar á frumvarpinu, þótt
ýmislegt megi skoða.
„Ef menn telja þörf á því að
skýra hlutina betur hvað varðar
almannaréttinn, já. Ef menn telja
einfaldara fyrirkomulag í boði
varðandi það hvernig á að nálg-
ast Íslendinga annars vegar og
erlenda ferðamenn, já, þá er ég
tilbúin að skoða það.“
Þingmenn sem Fréttablað-
ið ræddi við, bæði úr stjórn og
stjórnarandstöðu, voru sammála
um að afdrif málsins réðust af
vinnu þingnefndar. Mögulega tæk-
ist nefndinni að finna sáttaleið sem
væri blanda af fleiri hugmyndum
um gjaldtöku, en allt eins víst væri
að málið yrði látið liggja í nefnd
fram á haust.
Málið var afgreitt úr þingflokk-
um stjórnarflokkanna og gerði
þingflokkur Framsóknarflokks-
ins formlega fyrirvara. Heimild-
ir Fréttablaðsins herma að nokkr-
ir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafi einnig gert fyrirvara við
stuðning, þó ekki hafi þeir verið
formlegir.
Andstaða gagnvart frumvarpinu
er ekki skipulögð og fráleitt ríkir
samstaða um hvað gæti komið í
staðinn fyrir náttúrupassann. Því
er líklegast að blönduð leið verði
fyrir valinu. Ragnheiður Elín
virðist raunar opin fyrir slíku.
„Ég heyrði í gær [fyrradag]
í formanni Ferðamálasamtaka
Íslands sem var að tala um hvort
hugsanlega væri hægt að fara af
stað með einhvern valkvæðan
passa meðan fólk væri að venjast
tilhugsuninni. Alla svona hluti er
ég tilbúin að skoða, að sjálfsögðu.“
Fyrsta umræða um málið tók
þrjá daga og reikna má með að
einhverjir dagar fari í aðra og
þriðju umræðu. Til þess ber að
taka að aðeins eru eftir 40 þing-
dagar samkvæmt starfsáætlun
Alþingis. Það gæti rennt stoðum
undir þá spá margra heimildar-
manna Fréttablaðsins að málið
komi kannski ekki úr nefnd fyrir
þingfrestun í vor.
kolbeinn@frettabladid.is
Óvissa um afdrif
náttúrupassans
Þingmenn tókust á um það í hvaða nefnd ætti að vísa frumvarpi um náttúru-
passa. Óvissa ríkir um afdrif þess og er andstaða við það í öllum flokkum. Mögu-
legt er að málið liggi í nefnd fram á haust. Ráðherra er opinn fyrir breytingum.
SÆTIR GAGNRÝNI Iðnaðarráðherra hefur staðið í ströngu vegna frumvarps um náttúrupassa. Hér spjallar hún við Sigríði Ander-
sen, einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins, sem lýst hefur yfir efasemdum um frumvarpið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það togast á í mér þau sjónarmið hvort þetta eigi að fara til atvinnuvega-
nefndar eins og menn hafa gert ráð fyrir eða til umhverfisnefndar.“ Þessi
orð iðnaðarráðherra á síðustu mínútum fyrstu umræðunnar lýsa því vel
hve mikil óvissa ríkir um afdrif málsins. Allir höfðu gert ráð fyrir því að
málinu yrði vísað til atvinnuveganefndar og ummæli ráðherra hleyptu illu
blóði í þingmenn.
Eftir ýmis brigslyrði, ósk um að hlé yrði gert á fundi og tillögu Róberts
Marshall, þingmanns Bjartrar framtíðar, um að málinu yrði vísað til um-
hverfisnefndar, kom ráðherra í pontu og lagði til að málinu yrði eftir allt
saman vísað til atvinnuveganefndar, en ekki til umhverfis- og samgöngu-
nefndar og efnahags- og skattanefndar. Fljótlega eftir það lauk um-
ræðunni, en eftir er að kjósa á milli tillagnanna tveggja.
Upphlaup á Alþingi
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-6
5
E
8
1
3
A
0
-6
4
A
C
1
3
A
0
-6
3
7
0
1
3
A
0
-6
2
3
4
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K