Fréttablaðið - 04.02.2015, Síða 26
Reykjavík cocktail weekend MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 20152
Þegar hvirfilbyljir ganga yfir Kúbu koma heimamenn sér í gott skjól og gera sér glaðan
dag með líflegri tónlist, sveittum
dansi og eðalveigum. Þótt Íslend-
ingar upplifi ekki reglulega hvirfil-
bylji grúfir myrkrið og kuldinn yfir
landsmönnum stóran hluta vetrar
og því meira en viðeigandi að slá
upp góðu stormpartíi hér á landi.
Havana Club, Maradona Social
Club og skemmtistaðurinn Aust-
ur bjóða skjól fyrir íslensku roki og
myrkri í tilefni Reykjavík Cocktail
Weekend föstudaginn 6. febrúar.
Það er Erpur Eyvindarson sem
sér um skipulag Havana Club
Stormpartísins á Austur og lofar
hann miklu fjöri enda gjörþekkir
hann Kúbu og fjöruga stemningu
meðal landsmanna.
„Kúbumenn eru ekkert að mæta
í vinnu eða skóla á meðan óveðrið
stendur yfir heldur leita skjóls fyrir
veðrinu. Á þessum tímum verða
því oft til helvíti góð partí þar
sem blandast iðulega saman
lifandi tónlist, dans, romm,
domino-spil og vindlar.
Sannkölluð toppstemn-
ing. Okkur fannst því held-
ur betur viðeigandi að slá
upp góðu stormpartíi hér á
landi enda meira og minna
vont veður hér allt árið. Því
er upplagt að slá því saman
við kokteilfestivalið sem
eru jólin hjá þeim sem
njóta þess að þefa af
góðum drykk.“
Óvæntar uppá-
komur
Boðið verður upp á
ljúffenga kokteila,
frábæra lifandi tón-
list og skrautleg-
an mannskap sem
kyndir upp í Kúbu-
stemmaranum að
sögn Erps. „Hið
kynngimagnaða og
stórkostlega Mara-
dona Social Club-
latínband fýrar upp
í tónlistinni. Band-
ið inniheldur með-
limi úr öllum áttum;
frá Fox Train Saf-
ari, Langa Sela og
Skuggunum, Maf-
íubandi Tómasar
R., Sóldögg og fleiri
góðum böndum.“
Auðvitað verð-
ur boðið upp á frá-
bæra dr yk k i að
hætti Kúbumanna. „Þeir fyrstu sem
koma í var inn á Austur frá hvirfil-
bylnum fá frían drykk og svo verð-
ur kúbanskt verðlag á drykkjum
eftir það. Við munum bjóða upp
á Fidel sem er sjö ára gamalt Ha-
vana Club, blandað í engi feröl og
með límónu. Virkilega hressandi
drykkur. Einnig verður boðið upp
á Havana Breezy sem er þriggja ára
Havana Club blandað í Sprite. Ekki
má gleyma Cuba Libre og svo auð-
vitað alvöru Mojito og þá meina ég
ekkert Bónus-sull. Oft eru barþjón-
ar hér á landi að bjóða upp á Flo-
rida-romm úr dós með arfa, sykur-
skertum sítrónu-Svala, Sanitas-
sódavatni og klökum úr flúorvatni
ofan af Miðnesheiði. Við hins vegar
bjóðum upp á þennan kúbanska
drykk með kúbönsku rommi eftir
hefðum eyjarskeggjanna sem gerðu
hann frægan.“
Skemmtilegt lið úr dansheim-
inum og fólk sem á rætur að rekja
til Kúbu og Karíbahafsins hafa
boðað komu sína á föstudaginn.
„Það verða óvæntar uppá komur
í boði, sumar planaðar en aðrar
bara gerast af sjálfu sér eins og í
alvöru stormpartíi.“
Húsið verður opnað kl. 21
og ókeypis er inn. Allir Havana
Club-drykkir verða á Kúbuverði
til miðnættis.
Saga rommsins
Daginn eftir mun Erpur vera
með Havana Club master
class í gamla Morgun-
blaðshúsinu við Ing-
ólfstorg kl. 17. „Öll vín-
umboðin sem taka þátt
í Reykjavík Cocktail
Weekend verða þar
með alls konar kynn-
ingar og ég mun dokt-
or s me n nt a me n n
í rommi. Ég mun
skauta í gegnum sögu
Kúbu og rommsins en
þessir tveir hlutir eru
tengdir órjúfanlegum
böndum. Boðið verður
upp á smökkun á eð-
alrommi, þar á meðal
Havana Club – Sel-
eccion de Maestros.
Það eru gullnir drop-
a r sem fá st ei n-
göngu í fríhöfninni
hér á landi, sérvalið
og blandað af romm-
meisturum Havana
Club og er jafnframt
uppáhaldsromm
okkar félaganna.“
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, s. 512-5446, jonatan@365.is, s. 512-5446, Gunnhildur Geira, geira@365.is, s.512-5036
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Kúbversk stemning í stormpartíi
Skemmtistaðurinn Austur mun bjóða landsmönnum skjól frá roki og myrkri á föstudaginn þegar Havana Club Stormpartí verður
haldið. Erpur Eyvindarson stýrir partíinu og lofar miklu fjöri enda gjörþekkir hann Kúbu og þá stemningu sem ríkir meðal þarlendra.
Meðal
ljúffengra
drykkja sem
Austur mun
bjóða upp
á eru Cuba
Libre, Mojito og
Havana Breezy.
Auðvitað
verður boðið
upp á frá-
bæra drykki
að hætti
Kúbverja.
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
A
0
-5
7
1
8
1
3
A
0
-5
5
D
C
1
3
A
0
-5
4
A
0
1
3
A
0
-5
3
6
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K