Fréttablaðið - 04.02.2015, Síða 30
Reykjavík cocktail weekend MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 20156
tugnum en hann er afar vinsæll
þar í landi svo og í Kaliforníu í
Bandaríkjunum. Til eru nokkur
afbrigði af Margarita, til dæmis
með jarðarberjum eða hindberj-
um.
5. Caipirinha
Þessi drykkur kemur frá Brasilíu
og heimamenn kynntu hann vel
á heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu á síðasta ári. Í drykknum
er romm, púðursykur og límónu-
safi. Heimamenn nota Cachaca,
áfengan drykk sem er unninn úr
sykurreyr, en þar sem erfitt er að
fá þann drykk í öðrum löndum
hefur romm verið notað. Fyrst var
þessi drykkur gerður árið 1918 til
að lækna spænsku veikina.
4. Mint Julep
Kokteillinn er drykkur Derby-
kappreiðanna í Kentucky í Banda-
ríkjunum. Í honum er bourbon,
smávegis vatn, sykur og mikil
fersk minta. Drykkurinn hefur
verið þekktur frá því á nítjándu
öld, fyrst var notað gin, koníak
eða viskí í hann. Bourbon-útgáf-
an er frá árinu 1938.
3. Mai Tai
Þ e s s i k o k-
teill er sagð-
ur hafa verið
fundinn upp
í Oak land í
Bandaríkjun-
um. Drykkur-
inn var mjög
vinsæll á sjötta
áratugnum og kom
fyrir í frægri bíómynd,
Blue Hawaii, þar sem aðalleik-
arinn var enginn annar en Elvis
Presley. Drykkurinn hefur suð-
rænt og ávaxtaríkt bragð. Í honum
er dökkt romm, Curacao-appels-
ínulíkjör, síróp og límónusafi.
Uppfinningamaður er sagður hafa
boðið vinum sínum upp á þennan
drykk í heimsókn til Tahítí. Síðan
er drykkurinn talinn eiga rætur að
rekja þangað.
2. Mojito
Mojito er einn vinsælasti kokteill
í heiminum í dag. Ferskt mintu-
bragðið er hressandi á heitum
sumardögum. Romm, límónusafi,
sykur, sódavatn og fersk minta er
uppistaðan í drykknum. Stund-
um er sprite notað í staðinn fyrir
sódavatn. Í ekta Mojito þarf að
merja mintuna, það má alls ekki
skera hana en með því næst hið
rétta bragð. Indíánar til forna not-
uðu ferska mintu í lækningaskyni,
til dæmis til að lækna skyrbjúg og
blóðkreppusótt. Mojito er þó
rakinn til Kúbu. Talið er að
rithöfundurinn Ernest
Hemingway hafi gætt
sér á hressandi kok-
teilum eins og Mojito
þegar hann dvaldi á
Kúbu.
1. Cosmopolitan
Hinn fallega rauði Cos-
mopolitan-kokteill hefur
orðið afar vinsæll á síðustu
20-30 árum. Í drykknum er vodka,
triple sec-líkjör, límónusafi og
trönuberjadjús. Hann er heims-
borgari en svolítið kvenlegur en
kokteillinn varð sérstaklega vin-
sæll þegar þættirnir Sex and the
City voru sýndir en skvísurnar
þar drukku ótæpilega af honum.
Þar var hann kallaður Cosmo.
Barþjónn á strandbar í Flórída
er sagður hafa fundið hann upp
í kringum 1985. Aðrar heimild-
ir herma að hann hafi fyrst verið
gerður á bar í Minneapolis árið
1975.
Á öllum virðulegum börum þarf alltaf að vera til Mart-ini, Screwdriver, Bloody
Mary og Tom Collins, jafnvel
Mimosa og Bellini. Þetta eru
gamalgrónir vinsælir drykkir.
Eftirfarandi tíu kokteilar hafa þó
á síðustu árum fylgt nýjustu tísku
og straumum og orðið afar vin-
sælir. Þeir eru þó í mikilli sam-
keppni við léttvín og bjór.
10. Apple Martini
Þessi dr yk kur sem oftast
er kallaður Apple-
t ini hefur orðið
mjög vinsæll að
undan förnu
en hann er
tilbrigði
v i ð h i n n
venjulega
þurra Mart-
ini. Vodka er
notað í þenn-
an drykk, epla-
snafs og sítrónu-
safi. Apple tini er í miklu
uppáhaldi hjá sjónvarpsmann-
inum Conan O’Brian.
9. Long Island Iced Tea
Það er ekkert te í þessum kokteil.
Þetta er vinsæll drykkur hjá
mörgum karlmönnum. Í drykkn-
um er romm, vodka, tequila, kók
og sítrónusafi. Uppruni drykkjar-
ins er umdeildur. Talað er um að
hann hafi verið fundinn upp á
Long Island árið 1920. Nútíma út-
gáfan er þó sögð hafa verið fund-
in upp í barþjónakeppni í New
York árið 1972.
8. Californication (California)
Þessi kokteill er ekkert mjög ólík-
ur Long Island Tea. Í honum er
vodka, romm, tequila, gin og
appelsínulíkjör. Hann er borinn
fram í háu glasi og það er fyllt
upp með appelsínu- og sítrónu-
safa. Vinsælir sjóvarps-
þættir bera þetta nafn,
Californication. Einn-
ig söng hljómsveitin
Red Hot Chili Pep-
pers um Californ-
ication.
7. Pina Colada
K lassísk u r, suð-
rænn og svalandi
dr yk kur. Blanda af
rommi, kókosmjólk og
ananassafa. Þessi blanda er
ákaflega vinsæl í heitum löndum
þar sem fólk f latmagar á strönd
eða við sundlaug. Drykkurinn
er borinn fram í stóru glasi með
ýmsu skrauti. Talið er að Pina
Col ada hafi verið fundinn upp í
Púertó Ríkó árið 1952. Sérstakur
Pina Colada-dagur er þar í landi
10. júlí ár hvert.
6. Margarita
Margarita er einn vinsælasti kok-
teill í Bandaríkjunum. Í honum er
tequila, triple sec-líkjör og lím-
ónusafi. Drykkurinn er alltaf bor-
inn fram í víðu glasi og er salt sett
á barmana. Uppruna drykkjarins
má rekja til Mexíkós á fjórða ára-
10 vinsælustu kokteilarnir
Sumir kokteilar urðu til sem drykkir til lækninga á árum áður. Uppskriftir þeirra gætu þó hafa breyst en margir njóta þess að drekka litríkan
drykk úr fallegu glasi. Jafnt konur sem karlar eiga sér uppáhaldsdrykk og fara alltaf á sama staðinn þar sem barþjónninn þekkir þau.
Litríkur kokteill í sól og hita. Það minnir óneitanlega á sumarið. MYND/GETTY
Þeir Hrafnkell Ingi Gissurarson
og Sigurhans Óskar Sigurhans-
son hafa sett saman fimm kok-
teila seðil líkt og hinir þátttöku-
staðirnir þrjátíu í kokteilhátíð-
inni Reykjavík Cocktail Weekend.
„Ég á St. Thomas og After Dinner,
Sigurhans Nordic Comfort og
Lava Lagoon og svo gerðum við
drykkinn Aurora saman,“ segir
Hrafnkell, sem er yfirbarþjónn
staðarins. Drykkirnir eru ýmist
úr rommi, tequila, gini, viskíi
eða bourbon. Þeir verða allir á til-
boði á meðan á hátíðinni stendur
og mun enginn þeirra kosta yfir
1.500 krónum.
Forréttabarinn er vinsæll
smáréttastaður og hefur Hrafn-
kell þróað nokkra kokteila sem
til eru á seðli hússins. Hann segir
kokteilamenninguna unga hér á
landi. Að hans mati fer hún þó
vaxandi. „Mér finnst fleiri vilja
prófa sig áfram með kokteila í
stað þess að fara á hefðbundna
happy hour. Það er óneitanlega
meiri fjölbreytni í því og alltaf
gaman að smakka eitthvað nýtt.“
Hátíðin hefst í dag og stend-
ur til sunnudagsins 8. febrúar.
Henni líkur með úrslitakeppni í
Íslandsmóti barþjóna og keppni
milli veitingastaða í kokteilgerð
í Gamla bíói. Dómnefnd skipuð
af Barþjónaklúbbi Íslands mun
ganga á milli og smakka valda
drykki af kokteilaseðlum þátt-
tökustaðanna og velja þrjá bestu
drykkina sem keppa svo til úr-
slita. Vinningsdrykkurinn hlýt-
ur nafnbótina Reykjavík Cocktail
Weekend drykkurinn 2015.
Allir helstu umboðsaðilar
áfengra drykkja verða með kynn-
ingu á sínum vörum á meðan á
keppni stendur og á Hrafnkell
von á góðri stemningu. „Við verð-
um með Bombay-partí hjá okkur
á fimmtudag. Það byrjar klukkan
20 og verður hægt að smakka til-
boðskokteilana sem og aðra kok-
teila hússins. Þar á meðal vinsæl-
asta kokteilinn, Gamble.
Forréttabarinn er til húsa að
Nýlendugötu 14. Sjá nánar á for-
rettabarinn.is
Með í fyrsta sinn
Forréttabarinn tekur þátt í Reykjavík Cocktail Weekend í fyrsta skipti í ár.
St. Thomas (til vinstri) og Aurora eru á meðal drykkja á kokteilaseðli Forréttabarsins.
MYNDIR/GVA
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
0
-4
8
4
8
1
3
A
0
-4
7
0
C
1
3
A
0
-4
5
D
0
1
3
A
0
-4
4
9
4
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K