Fréttablaðið - 04.02.2015, Side 32
Reykjavík cocktail weekend MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 20158
SALT OG SÆTT MEÐ
HANASTÉLINU
3 msk. púðursykur
2 tsk. ferskt timjan
¾ tsk. kosher salt eða sjávarsalt
½ tsk. kanill
½ tsk. rauður pipar, malaður
½ bolli pekanhnetur
½ bolli möndlur
1 ½ tsk. smjör
3 bollar litlar kringlur, ósaltar
1 bolli Rice Crispies-morgunkorn
1 msk. hlynsíróp
Hitið ofninn í 180 gráður.
Blandið sykri, 1 tsk. timjan, salti, kanil
og rauðum pipar í litla skál.
Bakið hneturnar og möndlurnar í tíu
mínútur í ofni. Blandið svo hnetu-
blöndunni við smjör í skál og hrær-
ið kringlum, morgunkorni og sírópi
saman við. Dreifið svo sykur- og
kryddblöndunni yfir og veltið öllu
vel saman svo blandan setjist utan
á hneturnar. Dreifið úr á plötu og
bakið aftur í tíu mínútur og hrær-
ið einu sinni í. Takið út úr ofninum og
dreifið þá 1 tsk. af timjan yfir og látið
kólna. www.myrecipes.com
GÚRKUGIN
Gúrkugin er skemmtilegt
tilbrigði við hið hefðbundna
gin og tonic. Hér er þægileg
uppskrift.
½ l gin
2 afhýddar gúrkur
Tonic
Sítrónusneið
Hellið gininu í víða skál eða mæliglas.
Afhýðið gúrkurnar og skerið í hæfi-
lega bita. Bætið þeim út í skálina.
Maukið með töfrasprota og geym-
ið í ísskáp yfir nótt. Hellið vökvan-
um í gegnum sigti. Fyllið glas með
klökum. Hellið gúrkugininu upp að
miðju. Fyllið með tonic, skreytið með
sítrónu- eða lime-sneið.
Það er gott að renna sítrónusneiðinni
yfir glasröndina áður en hún er sett
ofan í drykkinn. Eins getur verið flott
að skreyta klakana með gúrkuhýði.
Þá er eitt fínskorið hýði sett í hvert
hólf í klakaboxinu og fryst. Mikilvægt
er að fylla glasið af klökum. Ef of lítið
er af klökum í glasinu er ginið fljótt
að bræða þá sem verður til þess að
drykkurinn þynnist út.
1. LEBOWSKI Ostborgari 150g 990 kr.
Með frönskum og gosi 1450 kr.
2. WALTER Beikonborgari 150g 1290 kr.
Með frönskum og gosi 1750 kr.
3. DONNY Bernaiseborgari 150g 1290 kr.
Með frönskum og gosi 1750 kr.
4. THE OTHER LEBOWSKI Steikarborgari 150g 1590 kr.
Búinn til úr nautalund.
Með frönskum, bernaise og gosi 2090 kr.
5. BUNNY LEBOWSKI Kjúklingaborgari 1290 kr.
Með gráðaostasósu og BBQ sósu.
Með frönskum og gosi 1750 kr.
6. HONEY BOO Beikonborgari 150g 1290 kr.
Hunangsgljáð beikon, BBQ sósa og japanskt mæjónes.
Með frönskum og gosi 1750 kr.
7. THE NIHILISTS Kjúklingavængir 10stk. 1390 kr.
Gráðaostasósa og BBQ sósa.
8. PIZZA 10” 1490 kr.
Með gosi 1790 kr.
9. LAUKHRINGIR 1290 kr.
10. OSTASTANGIR 1290 kr.
11. JALAPENOBELGIR 1290 kr.
Laugavegi 20a 101 RVK 552-2300 lebowskibar.is
DÝRASTI KOKTEILLINN
Þegar eigendur veitingastaðarins Gigi’s í London
opnuðu í september á síðasta ári fannst þeim til-
valið að bjóða upp á dýrasta kokteil sögunnar enda
er staðurinn til húsa í Mayfair, einu dýrasta hverfi
borgarinnar.
Íbúar hverfisins og þeir sem gista á fjölmörgum
fimm stjörnu hótelum sama hverfis ættu að hafa
efni á einu glasi en kokteillinn, sem ber nafn veit-
ingastaðarins, kostar tæp 9.000 pund sem samsvarar
um 1,8 milljónum íslenska króna. Það er sama verð
og lítill fjölskyldubíll kostar í Englandi og svipað og
það kostar fyrir enska fjölskyldu að leigja einkaþotu
fram og til baka til Miðjarðarhafsins. Drykkurinn var
sérstaklega útbúinn fyrir leik- og söngkonuna frægu
Grace Jones en hún og aðrir heimsfrægir gestir
sóttu opnun staðarins. Framkvæmdastjóri veitinga-
staðarins sagði við fjölmiðla að hann hefði viljað
sýna Grace Jones sérstakt þakklæti fyrir að vera við-
stödd opnunina.
Kokteillinn dýri inniheldur meðal annars sérvalið
hágæða kampavín og afar sjaldgæft koníak sem
framleitt er í Armagnac-héraði í Suður-Frakklandi.
Auk þess er glasið einnig skreytt gullflögum.
Áður hafði kokteillinn Winston borið titilinn dýrasti
kokteill heims en hann er seldur á Melbourne Crown
Casino’s Club 23 í áströlsku borginni Melbourne.
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
0
-5
C
0
8
1
3
A
0
-5
A
C
C
1
3
A
0
-5
9
9
0
1
3
A
0
-5
8
5
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K