Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 38
| 10 4. febrúar 2015 | miðvikudagur
Tveir breskir ráðherrar hafa
nýverið sagt að breyta þurfi
reglum um frjálsa för ESB-borg-
ara til að stöðva velferðartúrisma.
Verði reglunum ekki breytt geti
reynst nauðsynlegt fyrir Bretland
að yfirgefa evrópska samstarfið.
Þeir vilja m.a. hafa möguleika á að
senda ESB/EES-borgara úr landi
og að takmarka félagsleg réttindi
þeirra.
ESB-borgarar mega dvelja í
öðrum ESB ríkjum á grundvelli
reglna um sambandsborgara sem
eiga sér ekki samsvörun í EES.
Þeir eiga líka rétt á frjálsri
för á grundvelli launþega-
reglnanna sem einnig hafa
verið teknar upp í ESS.
En eru launþegareglurnar
þannig að raunveruleg hætta sé á
að ríkisborgarar annarra Evrópu-
ríkja komi hingað til lands til að
misnota velferðarkerfið?
Launþegareglur EES ávísun
á velferðarkerfi?
Samkvæmt launþegareglunum fá þeir
sem koma hingað til lands, án þess að
hafa hug á að vinna, ekki dvalarleyfi
nema sýna fram á að þeir hafi fram-
færslueyri.
Réttindi vinnandi EES-borgara
til að dvelja hér ráðast af dvalar-
tíma. Eftir fimm ár við störf fá
þeir búsetuleyfi og verða ekki
sendir úr landi þótt þeir missi
vinnuna.
Fjölskyldum þeirra er líka heim-
ilt að vera hér á landi. Hafi EES-
borgari unnið hérlendis skemur en
fimm ár þegar hann missir vinnu
er áframhaldandi dvalarleyfi bund-
ið virkri atvinnuleit. Fjárhæð bóta
er tengd tíma á vinnumarkaði. Tor-
velt er að sjá verulega hættu á mis-
notkun velferðarkerfis.
Er til bóta að breyta reglunum?
Sumar þeirra takmarkana sem bresku
ráðherrarnir vilja eru til staðar í
reglum ESB og spurning hvort þær
nægi ekki til að vinna gegn misnotkun
velferðarkerfa. Kröfur um mismunun
í aðgangi að félagslegum réttindum
yrði að telja andstæðar grunnreglum
ESB. Þingkosningar eru í Bretlandi
á þessu ári. Vera má að ráðherrarn-
ir telji harðlínu líklega til að vinna
atkvæði.
Nú hefur dagblaðið Guardian
upplýst að fjöldi þeirra bresku
borgara er þiggja atvinnuleysis-
bætur í öðrum ESB-ríkjum sé sami
og fjöldi ESB-borgara er þiggja
slíkar bætur í Bretlandi.
Bretar sæki einkum til Írlands
og Þýskalands þar sem bótakerfi
sé betra.
Austur-Evrópubúar sæki í sama
skyni til Bretlands. Það á líka við
um okkur sem njótum góðs af sam-
eiginlegum evrópskum vinnumark-
aði og sækjum á önnur mið þegar
þrengingar eru heima fyrir. Þá
njótum við þess öryggis að geta
haft áframhaldandi dvalarleyfi í
EES ríki þótt við missum vinnu.
Það verður ekki bæði haldið og
sleppt í þessum efnum.
Í velsæld í vestrænum velferðarkerfum?
Bjarnveig Eiríksdóttir
HDL. LL.M. Evrópulög ehf./
Vík lögmannsstofa ehf.
Hin hliðin
Sennilega stuðlar fátt jafn vel
að vernd almannahagsmuna og
gagnsæið. Gildir það á flestum
sviðum þjóðlífsins. Það er óumdeilt
að gagnsæi leiðir til vandaðri starfs-
hátta og aukins jafnræðis, hvort sem
aðhald þess beinist að einkaaðilum
eða opinberum aðilum. Gagnsæi
er hornsteinn verðbréfamarkaðar.
Leikreglum verðbréfamarkaðar
um gagnsæi er ætlað að gera stöðu
allra þátttakenda á verðbréfamark-
aði jafna. Það þjónar þeim best sem
eiga að öðrum kosti erfiðast með að
nálgast upplýsingar. Að baki býr
hugmyndin um fjárfestavernd. Fjár-
festar, smáir sem stórir, eiga ekki að
þurfa að velkjast í vafa um hvort sá
sem er á hinum enda viðskiptanna
hafi aðgang að öðrum og fyllri upp-
lýsingum, hvorki varðandi fyrirtæk-
ið sjálft eða viðskipti á markaði.
Gagnsæið er krefjandi, en það
er líka gefandi. Rannsóknir sýna
að fjárfestar verðlauna þau fyrir-
tæki sem eru undir gagnsæiskröf-
um, vanda sig við upplýsingagjöf og
fylgja góðum stjórnarháttum. Þau
búa að öðru jöfnu við lægri fjár-
magnskostnað, oft svo um munar.
Stjórnendur fyrirtækja þekkja
þetta, ekki síst þeir sem hafa unnið
í umhverfi verðbréfamarkaðar. Því
ganga sum fyrirtæki enn lengra en
lög og reglur og segja til um. Dæmi
um þetta er ósk fyrirtækja um að
fá stjórnarhætti sína vottaða. Rann-
sóknarmiðstöð um stjórnarhætti
hefur boðið upp á slíka vottun í
samstarfi við Viðskiptaráð, Sam-
tök atvinnulífsins og Kauphöllina.
Hvorki lög né reglur reka fyrirtæk-
in í slíka vottun. Metnaður fyrir
vönduðum stjórnarháttum og sterk
ásýnd gagnvart fjárfestum og ytra
umhverfi eru drifkraftarnir.
Meginstefið í viðbrögðum Evr-
ópusambandsins við fjármála-
kreppunni hefur verið að færa við-
skipti upp á yfirborðið sem áður
voru hulin. Langvarandi markaðs-
svik á mörkuðum sem hafa verið
undir takmörkuðu eftirliti, svo sem
gjaldeyrismarkaði og millibanka-
markaði, hafa einnig vakið yfirvöld
til umhugsunar. Stórir alþjóðlegir
bankar hafa verið sektaðir um fjár-
hæðir sem nema á annað þúsund
milljarða króna fyrir athæfi sitt á
þessum mörkuðum. Sums staðar
hafa verið stigin skref til aukins
gagnsæis í verðmyndun og eftir lits
á millibankamarkaði. Ekki kæmi
á óvart að viðbrögðin yrðu á svip-
aða lund á gjaldeyrismarkaði. Full
ástæða er til að fylgjast vel með
ákvörðunum um umgjörð þessara
markaða erlendis og jafnframt huga
að því hvort stíga megi skref til auk-
ins gagnsæis hérlendis.
Með hliðsjón af óumdeildum
ávinningi gagnsæis er það áhyggju-
efni hversu lítið gagnsæi er í kring-
um afgreiðslu beiðna um undanþág-
ur frá gjaldeyrishöftum, einkum ef
haft er í huga hversu mikilvæg-
ar ákvarðanir er um að ræða sem
geta haft veruleg áhrif á umsækj-
endur og íslenskt efnahagslíf, eins
og nýleg dæmi sanna. Seðlabank-
inn telur gagnsæi takmörkunum
háð vegna þagnarskyldu gagnvart
umsækjendum en hefur reynt að
koma til móts við kröfu um aukið
gagnsæi með birtingu upplýsinga
um almenna framkvæmd undan-
þágubeiðna á heimasíðu sinni.
Umsækjendum er engu að síður
nokkur vandi á höndum við mat
á því hvort jafnræðis sé gætt í
ákvörðunum bankans. Einfalt væri
að draga úr tortryggni, t.d. með því
að bjóða upp á fljótvirka kæruleið
eins og Viðskiptaráð hefur lagt til.
Einnig mætti hugsa sér að óháðum
aðila á vegum stjórnvalda væri falið
að fara kerfisbundið yfir ákvarðanir
er varða stærri hagsmuni og aðrar
ákvarðanir valdar af handahófi til
að leggja mat á hvort gætt væri
jafnræðis í afgreiðslu undanþágu-
beiðna. Á þessu sviði sem öðrum er
gagnsæið krefjandi, en ávinningur-
inn ótvíræður.
Gagnið af gagnsæinu
Skoðun
Páll Harðarson
forstjóri Nasdaq OMX
Bankamenn kepptu í knattspyrnu
LIÐ H.F. VERÐBRÉFA SIGRAÐI Fótboltamót fjármálafyrirtækja var haldið laugardaginn 31. janúar. Íslensk verðbréf á Akureyri voru gestgjafar
mótsins en það voru starfsmenn HF verðbréfa sem unnu í karlaflokki. Í kvennaflokki vann lið Arion banka.
T
æplega tíundi hluti fólks á vinnualdri hér á landi er
öryrkjar. Þetta hlutfall, 9 prósent, er með því allra
hæsta sem þekkist. Ísland er efst á lista yfir kostnað
ríkja af örorku innan OECD. Árlegur kostnaður ríkis
og lífeyrissjóða vegna örorkubyrðar á þessu ári er 55
milljarðar króna.
Á fundi Samtaka atvinnulífsins (SA) í janúar sagði Þorsteinn
Víglundsson framkvæmdastjóri að ef fram héldi sem horfði í
þessum efnum yrði erfi tt að að manna hér ný störf innan fárra
ára sem myndi hamla hagvexti. Þorsteinn sagði ljóst að veruleg-
ur þjóðhagslegur sparnaður væri í því fólg-
inn að hjálpa þessu fólki að komast aftur út
á vinnumarkaðinn.
Þeir sem hjálpa þessu fólki eru meðal
annarra starfsmenn starfsendurhæfi ngar-
sjóðsins VIRK. Í frétt Fréttablaðsins frá
því í gær er greint frá því að frá stofn-
un sjóðsins hafi 7.700 einstaklingar leitað
sér aðstoðar þar. Þar af hafa 3.800 manns
„útskrifast“ eða lokið þjónustu frá sjóðn-
um. Þessir tæplega þrír fjórðu útskrifaðra
hafa ýmist farið beint í launað starf, virka
atvinnuleit eða í lánshæft nám. Á síðasta
ári einu saman útskrifuðust 1.066 manns.
Þrátt fyrir þetta hefur ríkið ekki lagt
fjármagn í VIRK fyrir þetta ár og hið sama
á við um árið 2014. Þetta er gert þrátt fyrir
að í lögum sem sett voru árið 2012 sé mælt
fyrir um að ríkið setji þriðjung í starfsemi
sjóðsins á móti framlagi frá lífeyrissjóðum
og Samtökum atvinnulífsins.
Formaður stjórnar VIRK, Hannes G. Sig-
urðsson, sagði í samtali við Fréttablaðið í
september að ef ríkið tæki ekki þátt í fjár-
mögnuninni þá falli niður sú forsenda og
markmið sjóðsins að allir eigi rétt á þessari
þjónustu. „Ef fram heldur sem horfi r mun
starfsemin þurfa að byggjast á því að þeir
einir eigi rétt á þjónustunni sem standa að
fjármögnun,“ sagði Hannes. Ellen Calmon,
formaður Öryrkjabandalagsins, sagði einnig í samtali við Frétta-
blaðið að ónógu fjármagni væri varið til starfsendurhæfi ngar.
Mestu máli skipti að allir fái endurhæfi ngu við hæfi og að ekki sé
bið eftir endurhæfi ngu þegar fólk er tilbúið að hefja hana. Dæmi
séu um að fólk sem koma hefði átt aftur á vinnumarkað með
úrræðum við hæfi hafi í staðinn fengið mat um örorku.
Ráðherra málafl okksins, Eygló Harðardóttir, hefur lítið
komið inn í þessa umræðu. Í samtali við Fréttablaðið í septem-
ber ræddi hún um starfshóp til að endurskoða lögin. Hún sagði
alla þurfa að leggja sitt af mörkum. En samkvæmt lögunum
eiga einmitt allir að leggja sitt af mörkum. Ríkið borgar á móti
lífeyrissjóðum og atvinnurekendum. Ákveðinn hluti af gjald-
stofni tryggingargjalds skal renna til starfsendurhæfi ngarsjóða
og skal framlagið greitt í október hvert ár. Samkvæmt þessu
átti framlag ríkisins til VIRK að vera 1.100 milljónir í fyrra, en
í fjárlögunum voru þeim ætlaðar 200 milljónir. Svo lágt fram-
lag er þvert á lög og reglur og svo skammarlegt að stjórn VIRK
afþakkaði pent.
Markmið endurhæfi ngar hjá þeim sem einhverra hluta vegna
hafa dottið út af vinnumarkaði er að hjálpa fólki til sjálfshjálp-
ar. Líkt og framkvæmdastjóri SA sagði er þjóðhagslegur sparn-
aður af því verulegur og ætti að vera öllum ljós. Við búum yfi r
mikilli þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp í gegnum
árin, meðal annars í herbúðum VIRK. Íslenska ríkið eyðir í dag
nær engu til starfsendurhæfi ngar. Það er skammarlegt.
Íslenska ríkið eyðir í dag nær engu til starfsendurhæfingar:
Fólki hjálpað til
sjálfshjálpar
Markaðshornið
Fanney Birna Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Markmið endur-
hæfingar hjá
þeim sem ein-
hverra hluta
vegna hafa
dottið út af
vinnumarkaði
er að hjálpa
fólki til sjálfs-
hjálpar. Íslenska
ríkið eyðir í
dag nær engu
til starfsendur-
hæfingar. Það er
skammarlegt.
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
0
-5
7
1
8
1
3
A
0
-5
5
D
C
1
3
A
0
-5
4
A
0
1
3
A
0
-5
3
6
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K