Fréttablaðið - 04.02.2015, Page 40
USD 131,49
GBP 198,73
DKK 20,22
EUR 150,55
NOK 17,40
SEK 15,96
CHF 142,28
JPY 1,12
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla
02.02.2015 Það er sannarlega þannig að misskipting
er mun meiri núna en hún var allan tíunda áratuginn
hvar sem maður ber niður. Hvort sem er um
eignir að ræða eða tekjur. Það þarf skatta-
stefnu sem styður við meðaltekju- og látekju-
fólk og gerir þeim best stæðu að leggja af
mörkum í samræmi við getu. Mér finnst víð-
tækur skilningur á því, líka meðal þeirra
best settu.
Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar
FTSE 100
6869,81 +86,26
(1,29%)
11 FÆRRI SKIP
Flest skip á Vestfjörðum.
Fiskiskipum fækkaði um 11 milli
áranna 2014 og 2013. Í árslok 2014
voru 1.685 fiskiskip á skrá hjá Sam-
göngustofu. Alls voru 773 vélskip á
skrá og samanlögð stærð þeirra var
um 85.653 brúttótonn. Flest fiskiskip
voru með skráða heimahöfn á Vest-
fjörðum í árslok 2014, alls 400 skip,
en það eru tæp 23,7% fiskiskipa-
flotans.
42 MILLJARÐAR
Gjaldeyrisvaraforðinn eykst
Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands
jókst um 42,5 milljarða króna
árið 2014 og var 530 milljarðar
króna í árslok. Seðlabankinn segir
stöðugleika hafa einkennt gjaldeyris-
markaðinn á síðasta ári miðað við
árin þar á undan. Gengi krónunnar
hækkaði um tæplega 2% á árinu
2014 miðað við 11% hækkun árið
þar á undan.
18% HÆKKUN
Hlutabréf í Össuri hækka
Hlutabréf í Össuri í Kauphöll Ísland
hafa hækkað um 18% frá áramótum.
Síðasta árið hafa hlutabréf bréf í
Össuri hækkað um 73 prósent. Gengi
bréfanna
er nú 425
og hefur
aldrei verið
hærra.
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
Pétur Blöndal sagðist á dögun-
um þeirrar skoðunar að varhuga-
vert væri að veita undanþágur frá
gjaldeyrishöftunum.
STJÓRNARMAÐURINN hefur fengið
að reyna gjaldeyrishöftin á eigin
skinni. Hans reynsla er sú að
höftin hafi minni áhrif á daglegan
rekstur íslenskra fyrirtækja en
gjarnan er látið að liggja. Stað-
reyndin er nefnilega sú að þótt
höftin leggi bann við t.d. kaupum
á erlendum verðbréfum, og lánum
milli innlendra og erlendra aðila,
þá er í þeim að finna undanþágur
fyrir þjónustu- og vörukaup. Þetta
veldur því að mörg innlend fyrir-
tæki reka sig sáralítið á gjaldeyris-
höftin í daglegu amstri þótt vissu-
lega sé skriffinnskan í meira lagi.
ANNAÐ gildir um erlenda fjár-
festa. Fólk sem stundar viðskipti
sækir í umhverfi sem það skilur og
treystir. Skaðsemi haftanna er því
fólgin í því að erlendir aðilar eru
skiljanlega tregir til að eyða tíma
og peningum í að kynna sér þau
og því virka þau fælandi á erlenda
fjárfestingu.
EF VALIÐ stendur milli þess að fjár-
festa á Íslandi, eða í landi þar sem
frjálst flæði fjármagns er tryggt,
hvers vegna ætti fólk að öllu jöfnu
að velja haftalandið Ísland? Á
meðan verður íslenskt þjóðarbú af
mikilvægum gjaldeyri. En víkjum
aftur að orðum Péturs Blöndal í
kjölfar fregna af því að Prómens
íhugaði nú að flytja höfuðstöðvar
sínar úr landi eftir að hafa fengið
synjun á undanþáguumsókn.
STJÓRNARMAÐURINN er ósam-
mála Pétri og telur svigrúm til að
veita undanþágur nauðsynlegt ef
fyrir liggja gildar ástæður. Í þeim
efnum er mikilvægast að sam-
bærileg mál hljóti sambærilega
úrlausn. Nokkrum dögum áður en
út kvisaðist að umsókn Prómens
hefði verið synjað, voru fréttir um
þátttöku Eimskips í svokölluðu
Joint Venture-félagi í Hamburg –
en til þess hefur væntanlega þurft
undanþágu frá Seðlabankanum.
STJÓRNARMAÐURINN þekkir ekki
forsendur að baki undanþágu til
Eimskips, ekki frekar en hann
þekkir til smáatriða í umsókn Pró-
mens. Mergurinn málsins er hins
vegar sá að engin leið er að bera
málin saman enda liggja forsendur
ekki fyrir opinberlega. Á meðan
málum er svo háttað er alltaf
hætta á kerfislægu vantrausti.
HVAÐ mælir annars því í mót að
ákvarðanir um undanþágur frá
gjaldeyrishöftum séu birtar opin-
berlega rétt eins og margar aðrar
stjórnvaldsákvarðanir, dómar
eða úrskurðir? Gjaldeyrishöftin
eru „nauðsynleg óþægindi“ ef svo
má að orði komast. Hins vegar er
engin ástæða til að auka á flækju-
stigið og ógagnsæið að óþörfu.
Engar undanþágur,
eða fyrirsjáanlegar
undanþágur?
FA
S
TU
S
_H
_2
8.
08
.1
3
Frábær vatnsvél fyrir fyrirtæki
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Chiller+
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
0
-4
3
5
8
1
3
A
0
-4
2
1
C
1
3
A
0
-4
0
E
0
1
3
A
0
-3
F
A
4
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K