Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Miðvikudagur 14 HJÓLATÚR Ferðafélagið Útivist stendur fyrir hjólaferð á laugardaginn. Hjólað er frá Toppstöðinni í Elliðaárdal, hjólað í Mosfellsbæ með við- komu í Geldinganesi og til baka. Áætlaður tími er fjórir tímar, allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis. utivist.is CURCUMIN (gullkryddið) er virka innihaldsefnið í túrmerikrótinni og hefur verið notað til lækninga og til matargerðar í yfir 2.000 ár í Asíu. Hátt í 3.000 rannsóknir hafa verið gerðar á þessari undrarót undanfarna áratugi sem sýna að Curcumin getur unnið kraftaverk gegn hinum ýmsum kvillum líkamans og sé jafnvel áhrifameira en skráð lyf. Curcumin hefur jákvæða kl S teinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og vinnur í dag við verslunarstörf. Hún hefur átt við mikla verki að stríða um allan líkamann í yfir 25 ár eftir að hún lenti í slæmu bílslysi. „Mér var alltaf illt í öllum líkamanum og vildi helst alltaf fara heim snemma ef ég fór út. Ég gat ekki haldið á bók til lestrar og vaknaði iðulega á næturnar og gat ekki sofnað vegna verkja.“ Steinunn var búin að reyna allt til að öðlast betri líðan án árang-urs og taldi sig einfaldlega þurfa að sætta sig við verkina. „Nuddkonan mín sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika sagt gefið mér nýtt líf. Ég er búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan mánuð, ég missti úr fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.“ BARNABÖRNIN SEGJA „AMMA ER FARIN AÐ HLAUPA“Steinunn segir að það besta við að vera laus við verkina séu betri stundir með fjölskyldunni. „Ég er svo þakklát fyrir að geta liðiðí i NÝTT LÍF MEÐ HJÁLP CURCUMINBALSAM KYNNIR CURCUMIN frá Natural Health Labs. Allt að fimmtíu sinnum áhrifameira en hefðbundið túrmerik! Tilvalið fyrir þá sem vilja styrkja liða- mótin, auka liðleika, bæta andlega líðan, auka orku ásamt því að losna við langvarandi liðverki, bólgur, gigt og magavandamál. Steinunn Kristjánsdóttir segir Curcumin hafa gefið sér nýtt líf. MÆLIR MEÐ Steinunn Kristjánsdóttir sjúkraliði mælir eindregið með Curcumin. SÖLUSTAÐIR Fáanlegt í nær öllum apó-tekum landsins, Lyfju, Apó-tekinu, Apótekaranum, Lyfjum og heilsu, Lyfsalanum, Lifandi markaði, Hag kaupi, Fjarðar-kaupum, Heilsuhorninu Blómavali, Heilsuveri, Heilsu-lausn.is og Heimkaupum. Eldshöfða 1 S: 577-5000 Hreinsandi.is hreinsandi@hreinsandi.is Húsgagnahreinsun fyrir alla muni DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 4. mars 2015 | 9. tölublað | 11. árgangur F I N G R A F Ö R I N O K K A R E R U A L L S S TA ÐA R ! 2004 2011 VEITINGA- STAÐIR5 VEITINGA- STAÐIR4 VEITINGA- STAÐIR5 KEYPT ÁRIÐ KEYPT ÁRIÐ Borgin spennt fyrir bílaleigum Avis hyggst opna bílaleigu fyrir styttri ferðir, svo-kallaða snattbíla í bílakjallaranum í Höfðatorgi í kringum næstu mánaðamót. Starfsfólk Höfðatorgs mun geta leigt bílana út. Það verða tíu bílar til að byrja með en í framhald-inu verður verkefnið hugsanlega útvíkkað.Reykjavíkurborg hefur sjálf verið með tilraunverkefni með bílaleigu fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar í Höfða-torgi og í Ráðhúsinu. „Við erum mjög spennt fyrir þessari þróun,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. ➜ SÍÐA 2 Alþjóðleg verslun á 4 árum 2 SÉRBLÖÐ Markaðurinn | Fólk Sími: 512 5000 4. mars 2015 53. tölublað 15. árgangur Haförn í fjárhúsi Bóndanum á Krossi í Berufirði brá í brún þegar hann rak augun í haförn sem flögraði um í fjárhúsinu. 2 Tillaga um millidómstig Nefnd um skipan og starfsemi dómstóla hefur skilað af sér til innanríkisráð- herra. Lagt er til að tekið verði upp millidómstig. 6 LÍFIÐ Ásdís Rán kveður hvítvínið og kolvetnin í heilar fimm vikur. 26 SPORT Alfreð Gíslason á stórleik fyrir höndum í kvöld með liði sínu, Kiel. 30 MARKAÐURINN Borgin vill bílaleigur Avis mun opna bílaleigu í kjallara Höfðatorgs fyrir styttri ferðir starfs- fólks fyrirtækja sem eru til húsa í byggingunni. Reykjavíkurborg er með til skoðunar hvernig útvíkka megi verkefnið og fjölga slíkum bílaleigum. „Við erum mjög spenntir fyrir þessari þróun,“ segir Dagur B. Eggertsson. ht.is með Android Engin venjuleg upplifun Við kynnum Philips Ambilight 9000 sjónvörpin SKOÐUN Kjósendur í dag vilja geta valið á milli margra flokka. 14 MENNING Feðgarnir Helgi og Snorri standa að þjóðlaga- hátíðinni Folk Festival. 24 HOLUR MALBIK VIÐGERÐIR SKEMMDIR VEGIR, VEGUR, RAUÐARÁRSTÍGUR Bolungarvík -1° SA 11 Akureyri 0° SSA 8 Egilsstaðir 0° SSA 8 Kirkjubæjarkl. 2° SA 12 Reykjavík 1° SA 16 Stormur eða rok Það verður hvasst á landinu í dag, fyrst SV-til en síðdegis einnig NA-lands. Snjókoma í fyrstu SV-til en síðar slydda og rigning SA-lands. 4 FERÐAÞJÓNUSTA Hótelnýting á höfuð borgarsvæðinu í fyrra var 84%, sem er betri nýting en í fjöl- sóttum borgum Evrópu, svo sem London, París, Berlín og Amster- dam. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar Íslandsbanka um stöðu ferðaþjónustunnar. Þessi góða nýting hótelrýma á höfuðborgarsvæðinu skýrist að miklu leyti af því að frá árinu 2010 hefur hótelherbergjum á höfuð- borgarsvæðinu aðeins fjölgað um 20 prósent á meðan ferðamönnum hefur fjölgað um 111%. Fjölgun hótel herbergja á höfuðborgarsvæð- inu hefur því ekki fylgt fjölgun ferðamanna. „Með hliðsjón af því virðist fjölgun hótelherbergja hóf- leg,“ segir í skýrslu greiningar- deildarinnar. Um 700 ný hótelherbergi verða tekin í rekstur á þessu ári og segir Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka aðila í ferðaþjón- ustu, þessa aukningu réttlætan- lega. „Greiningaraðilar hafa bent á að samhliða fjölgun hótelherbergja hefur nýtingarhlutfall aukist. Því er þessi fjölgun í takt við það. Mikil- vægt er að byggt sé upp í línu við stefnu greinarinnar hvað varðar tegund vaxtar, við viljum fjölga verðmætum ferðamönnum og þá þarf uppbygging meðal annars gisti- staða að endurspegla það,“ segir Helga. Greiningardeild Íslands- banka tekur í sama streng og segir að þrátt fyrir að hótelherbergjum fjölgi verulega á þessu ári sé spáð ríflega fimmtungs fjölgun ferða- manna til borgarinnar frá fyrra ári. Ferðaþjónustan skilar mest- um gjaldeyristekjum í þjóðarbú- ið. Í fyrra skilaði ferðaþjónustan rúmum 300 milljörðum í tekjur og er fyrsta atvinnugreinin sem rýfur þrjú hundurð milljarða múrinn. Til samanburðar skilaði sjávarútvegur- inn í heild sinni ríflega 240 milljörð- um í útflutningstekjur. - sa / sjá síðu 8 Hótelherbergi betur nýtt en í Lundúnum Nýting hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu var um 84% í fyrra. Betri nýting en í fjölsóttustu borgum Evrópu. Frá árinu 2010 hefur hótelherbergjum fjölgað um fimmtung en ferðamannafjöldi tvöfaldast. 700 ný herbergi tekin í rekstur á árinu. HEILBRIGÐISMÁL „Einstakling- um á biðlista eftir aðgerð vegna kviðslits heldur áfram að fjölga,“ segir í nýrri samantekt Land- læknis um þróunina á biðlistum eftir læknisaðgerðum. Fram kemur að 53 voru á biðlista vegna kviðslits fyrir ári en að þeir séu nú orðnir 122. „Áætlaður bið- tími á Landspítala hefur lengst að sama skapi og er nú 29 vikur en raunmeðalbiðtími þeirra sem fóru í aðgerð fyrstu tvo mánuði ársins reyndist vera 11 vikur,“ segir Landlæknir. - gar Fleiri safnast á biðlista: Kviðslitnir bíða lengur en fyrr LÖNG BIÐ Kviðslitnir bíða í sjö mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HEILBRIGÐISMÁL „Það eru örfá til- vik þar sem fólk hafnar hefðbund- inni læknismeðferð við lækna- nlegum sjúkdómum sem urðu síðan ólæknanlegir fyrir vikið,“ segir Gunnar Bjarni Ragnarsson, yfirlæknir lyflækninga krabba- meina á Landspítala. Hann segir óhefðbundnar lækningar geta haft ófyrir sjáanlegar aukaverkanir. Óhefðbundnar lækningar og varningur sem er ekki viðurkennd- ur til lækninga voru til umfjöllun- ar í Kastljósi RÚV í gærkvöldi. Í þættinum voru sýnd samskipti sölumanns og Guðjóns Sigurðs- sonar, formanns MND-félagsins á Íslandi. Sá sem Guðjón ræddi við reyndi að selja honum jónað vatn, jarðtengingaról og notaði pendúl til að greina hvernig stilla ætti orkuflæðið í líkamanum. Helga Vala Helgadóttir lögmaður fór fram á lögbann á sýningu Kastljós- þáttar gærkvöldsins en henni var hafnað á sjöunda tímanum í gær. Gunnar segir sjúklinga oft verða fyrir miklu áreiti, auk þess sem þeim sé gefin von um fyrirheit sem ekki er hægt að standa við. „Við þekkjum dæmi um að fólk sé að greiða yfir 100 þúsund krónur á mánuði fyrir óhefðbundnar læknis- meðferðir sem er náttúrulega brjálæðislegt. Fólk er oft að eyða milljónum í eitthvað sem er síðan tilgangslaust. Fólk verður oft fyrir miklu áreiti, margir að hringja til að segja frá hinu og þessu og rök- styðja með reynslusögum sem er alltaf hæpið. Þetta truflar oft sjúk- linga mikið. Þeim er gefin von um einhver fyrirheit sem ekki er hægt að standa við.“ fbj, kbg / sjá síðu 4 Dæmi um óafturkræfan skaða af óhefðbundnum lækningum: Sjúkdómar verða ólæknanlegir Þetta getur haft milliverkanir fyrir meðferð sjúklinga, aukið auka- verkanir og minnkað virkni krabba- meinslyfjanna. Gunnar Björnsson, yfirlæknir lyflækn- inga krabbameina á Landspítalanum. UMRÆÐAN Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir breytingar á eignarhaldi bankanna óhjákvæmilegar. Hann segir eitt hundrað milljarða hagnað bankanna áminningu um að mistök hafi verið gerð við endurreisn bankakerfisins. „Vegna ákvarðana sem þá voru tekn- ar er banka- kerfið of stórt og ávinningur af endurmetnu lánasafni kemur að mestu leyti í hlut kröfuhafa Arion banka og Íslandsbanka en ekki ríkisins, sem þó bar áhætt- una af endurreisninni,“ segir Sigmundur Davíð í grein í Frétta- blaðinu í dag. - kóp / sjá síðu 15 Breytingar óhjákvæmilegar: Segir bankana vera of stóra SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNN- LAUGSSON 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 F F -C F B 8 1 3 F F -C E 7 C 1 3 F F -C D 4 0 1 3 F F -C C 0 4 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.