Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 24
 | 6 4. mars 2015 | miðvikudagur Það er ekki víst að allir kannist við nafn fjölskyldufyrirtækisins FoodCo sem var stofnað árið 2002. Fleiri þekkja til þeirra veitingastaða sem fyrirtækið rekur. Vörumerkin eru alls sex og eru veitingastaðirn- ir nítján á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, þar sem meira en 400 starfsmenn vinna í heild. Á höfuðborgarsvæðinu eru rekin American Style, Eldsmiðjan, Saffr- an, Aktu Taktu og Pítan. Á Akur- eyri er það svo Greifi nn. Ævintýrið byrjaði allt með því að blaðamað- ur Morgunblaðsins og fyrrverandi íþróttakempan Þórarinn Ragnars- son ákvað að segja starfi sínu lausu og opna veitingastaðinn og sölu- turninn Staldrið í Stekkjarbakka í Reykjavík árið 1984. Eftir þrjá- tíu ára sögu er rekstur Þórarins og fjölskyldu hans orðinn að viðskipta- veldinu FoodCo. Fyrirtæki sem selur skyndibita fyrir þrjá millj- arða á hverju ári. Samanlögð velta á fi mm ára tímabili frá árinu 2009 til og með ársins 2013 nemur 14,5 milljörðum króna. Ársreikningur FoodCo fyrir árið 2014 liggur ekki fyrir. En sam- kvæmt ársreikningi fyrir árið 2013 sem birtur var í október síðastliðn- um var hagnaður fyrirtækisins 403 milljónir króna. Það er liðlega tvöfaldur hagnaður miðað við árið á undan. Hagnaðurinn var þó að miklu leyti til kominn vegna endur- útreiknings lána á árinu 2013 sem voru niðurfærð um 376,5 milljónir króna. Veltufé frá rekstri nemur hins vegar tæplega 111 milljónum króna en var tæplega 260 milljónir króna árið á undan. Afkoma af hefð- bundinni starfsemi var því lakari á árinu 2013 en hún var á árinu 2012. Helstu eigendur FoodCo eru, auk Þórarins Ragnarssonar, Jóhann Örn Þórarinsson í gegnum félag sitt Jöklaborg. Þeir feðgar eiga samtals 80 prósenta hlut til jafns við hvor annan. Þá á Óttar Þórarinsson 10 prósenta hlut og félagið Eldheimar, sem er í eigu Bjarna Stefáns Gunn- arssonar, á tíu prósenta hlut. Hlédrægir menn Feðgarnir Þórarinn og Jóhann Örn sækja ekki mikið í athygli. Til marks um það baðst Jóhann Örn, sem er framkvæmdastjóri FoodCo, undan viðtali þegar Markaðurinn hafði samband við hann vegna þess- arar greinar. Í viðtali við Helgar- póstinn árið 1995 rakti Þórarinn aftur á móti upphaf viðskiptasögu sinnar. Þar kemur fram að Þórarinn hafði staðið í umfangsmiklum bygg- ingaframkvæmdum og umsýslu fasteigna, yfi rleitt í félagi við Gunn- ar Hjaltalín endurskoðanda. Þórar- inn sagði í samtali við blaðið að sá rekstur hefði gengið mjög vel. Eitt þeirra húsa sem þeir félag- arnir reistu saman var stórhýsið að Stórhöfða 15 við Gullinbrú. Það byggðu þeir sjálfir, leigðu verk- fræðistofunni Streng efstu tvær hæðirnar, seldu miðhæðina undir verslunarrekstur en ráku sjálfir íþróttasali á neðstu hæðinni. Hús- næðið að Stórhöfða er ekki lengur í eigu Þórarins, þótt Þórarinn og fjölskylda fáist enn við fasteigna- umsýslu. Á meðal eigna FoodCo er fasteignafélagið Þorp. Þar undir eru fasteignir sem hýsa veitinga- staði FoodCo. Bókfært verð þeirra eigna er rúmir 1,3 milljarðar króna og fasteignamatið rétt tæplega 850 milljónir króna. Eignir Þorps námu í árslok 2013 tæplega 1,4 milljörðum króna en eigið fé var neikvætt um 254 milljónir króna. Stofnun FoodCo Fyrirtækið er stofnað árið 2002 og voru eigendurnir á næstu tíu árum umsvifamiklir við kaup á veitinga- stöðum sem þegar höfðu skapað sér nafn. Byrjað var árið 2004 á því að kaupa hamborgarastaðinn Amer- ican Style og Aktu Taktu. Fyrr- nefndi staðurinn hafði verið rekinn um árabil og var í eigu Helga Páls- sonar. Aktu Taktu var aftur á móti stofnað árið 1993 og var í eigu systk- ina Helga og keypti hann fyrirtæk- ið af Sveini bróður sínum árið 1999. Helgi sagði við Morgunblaðið í til- efni þeirra viðskipta að aldrei hefði staðið neitt annað til en að reka fyr- irtækin undir sitthvoru nafninu. Árið 2006 var svo bætt um betur þegar FoodCo keypti veitingastað- inn Pítuna í Skipholti 50C. Sá veit- ingastaður var stofnaður árið 1982 og var því 24 ára gamall þegar hann rann inn í FoodCo-samstæðuna. Í ágúst það sama ár tilkynnti FoodCo svo Samkeppniseftirlitinu að félagið hefði keypt Greifann á Akureyri, einn vinsælasta veit- ingastað bæjarins sem jafnframt býður veisluþjónustu og sal til leigu fyrir veislur. Í tilkynningu til Sam- keppnis eftirlitsins kom fram að yfi rtaka FoodCo á Greifanum gerði félaginu kleift að koma að veit- ingarekstri á Akureyri án þess að taka þá áhættu sem felst í því að opna nýjan veitingastað frá grunni. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins varð að athuganir þess gæfu ekki til kynna að samruninn myndi hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif. FoodCo eignast Eldsmiðjuna Árið 2007 keypti FoodCo svo eignar haldsfélagið Kamus. Það var þá nýstofnað félag sem hélt utan um rekstur veitingastað- anna Eldsmiðjunnar og Reykja- vík Pizza Company. Í tilkynningu sem FoodCo sendi Samkeppnis- eftirlitinu vegna kaupanna kom fram „að starfsemi Kamus væri í samræmi við rekstur félagsins og myndi falla vel inn í heildarrekst- ur og fyrri fjárfestingar félagsins. FoodCo hefur ekki starfrækt veit- ingastað á höfuðborgar svæðinu sem selur pitsur og því var Kamus talinn góður fjárfestingarkost- ur í því skyni að efl a og auka fjöl- breytni í veitingarekstri félagsins.“ Þá sagði enn fremur að kaup- in gerðu Foodco kleift að dreifa áhættu í rekstrinum. Samkeppn- iseftirlitið taldi ekki að samruni félaganna myndi koma í veg fyrir eðlilega samkeppni og heimilaði því samrunann. Á haustmánuðum 2007 gekk FoodCo svo einnig frá kaupum á veitingastaðnum Sjávarkjallar- anum; þriggja ára gömlum veit- ingastað sem var til húsa við Aðal- stræti 2. Sá rekstur gekk ekki upp og hófu aðrir aðilar rekstur í hús- næðinu. Greint var frá því á vefsíð- unni Veitingageirinn í apríl í fyrra að þau Tómas Kristjánsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Níels Hafsteins- son og Eyjólfur Gestur Ingólfsson hefðu hafi ð rekstur veitingastaðar- ins Kjallarans í því húsnæði. FoodCo kaupir Saffran Árið 2011 keypti FoodCo svo Shi- raz, sem rekur Saffran-veitinga- staðina. Jóhann Örn sagði í samtali við Viðskiptablaðið, þegar gefi ð var út sérblað um 462 stærstu fyrirtækin í febrúar 2014, að landslagið í veitingahúsarekstri hefði breyst töluvert á síðastliðn- um árum. Breyttar matarvenjur og aukinn fjöldi ferðamanna hefði greitt götuna fyrir fl eiri veitinga- staði og fjölbreyttari rétti. Hann sagðist finna sérstaklega fyrir mikilli ásókn fólks í hollari skyndi- bita. „Við höfum verið að einbeita okkur að innri vexti upp síðkast- ið. Við opnuðum nýjan Saffran- stað í Bæjarhrauni í Hafnarfi rði í fyrra og stefnum að því að opna annan Saffran-stað á Bíldshöfða á næstunni. Þetta er liður í ákveð- inni stefnu okkar með frekari vöxt inn í framtíðina og stefnan er að fjölga enn frekar stöðum,“ sagði Jóhann. Veitingastaðurinn á Bílds- höfða hefur nú þegar verið opnað- ur. Jóhann sagði líka við Viðskipta- blaðið að Saffran hefði notið mjög mikilla vinsælda allt frá því að fyrstu staðirnir voru opnaðir árið 2009. Þrátt fyrir auknar vinsæld- ir hollari valkosta á veitingamark- aði sagðist hann þó ekki fi nna fyrir því að sá vöxtur sé á kostnað ann- arra vörumerkja FoodCo. ÚTTEKT Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is Skyndibiti fyrir þrjá milljarða á ári Sögu fjölskyldufyrirtækisins FoodCo má rekja til Staldursins í Stekkjarbakka, sem var opnað 2002. Fyrirtækið er nú orðið mikið verslunarveldi sem veltir tæpum þremur milljörðum á ári og veitir meira en 400 manns atvinnu. SVONA VARÐ VIÐSKIPTAVELDIÐ FOODCO TIL 1982 Pítan stofnuð 1986 Eldsmiðjan stofnuð 2007 FoodCo eignast Eldsmiðjuna 2009 Saffran opnað 1984 Staldrið stofnað 1993 Aktu Taktu stofnað 2002 FoodCo stofnað 2006 FoodCo kaupir Pítuna 2007 FoodCo eignast Greifann 2011 FoodCo eignast Saffran 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2004 FoodCo kaupir American Style og Aktu Taktu SAFFRAN Í GLÆSIBÆ Árið 2011 keypti FoodCo Saffran-veitingastaðina sem þá voru tveggja ára gamlir. Jóhann Örn Þórarinsson, framkvæmdastjóri FoodCo, segir að landslagið í veitingahúsarekstri hafi breyst töluvert á síðastliðnum árum. Breyttar matarvenjur og aukinn fjöldi ferðamanna hefði greitt götuna fyrir fl eiri veitingastaði og fjölbreyttari rétti. Fréttablaðið/Valli 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 0 -1 4 D 8 1 4 0 0 -1 3 9 C 1 4 0 0 -1 2 6 0 1 4 0 0 -1 1 2 4 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.