Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 20
 | 2 4. mars 2015 | miðvikudagur MIÐVIKUDAGUR 4. MARS Þjóðskrá – Fasteignamarkaðurinn í mánuðum eftir landshlutum Marel - Aðalfundur FIMMTUDAGUR 5. MARS Hagstofan – Vöruskipti við útlönd í febrúar Þjóðskrá – Fjöldi útgefinna vegabréfa MÁNUDAGUR 9. MARS Lánamál ríkisins – Mánaðarlegar markaðsupplýsingar ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS Hagstofan – Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2014 Þjóðskrá – Fjöldi þinglýstra leigu- samninga eftir landshlutum MIÐVIKUDAGUR 11. MARS Icelandair Group – Aðalfundur Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins Rekstrarvörur Við erum mjög spennt fyrir þessari þróun. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Sk jó ða n ARION BANKI vill „bestu hluta“ lána-safns Íbúðalánasjóðs (ÍLS) að því er kom fram í frétt á Bloomberg í síð- ustu viku. Væntanlega verður þreif- ingum Arion banka hafnað og fremur efnt til útboðs á eignum sjóðsins ef til sölu kemur. Þess má vænta að bankar og aðrir fjárfestar séu tilbúnir til að greiða yfi rverð fyrir þessa bestu bita sem eru verðtryggðir og á fyrsta veð- rétti í íbúðum landsmanna. HÖSKULDUR Ólafsson, bankastjóri Arion banka, lýsti enn fremur þeirri skoðun sinni að rétt væri að sameina félagslega starfsemi ÍLS og LÍN undir hatti Landsbankans á meðan bankinn er enn í ríkiseigu. Að mati bankastjórans ber ríkinu að sinna þeim hluta húsnæðis- markaðarins sem einkaað- ilum þykir ekki fýsilegur – þá vænt- anlega í gegnum Landsbankann, sem breytt verður í allsherjar félagsmála- sjóð gangi hugmyndir bankastjórans eftir. Stóru bankarnir þrír högnuðust um rífl ega 80 milljarða á síðasta ári og Landsbankinn einn um næstum 30 milljarða. Varla ætlast bankastjóri Arion banka til þess að Landsbankinn starfi áfram sem hefðbundinn banki eftir að búið er að fl ytja þangað veik- ustu lánasöfn ÍLS og námslán. ÍSLENSKAR fjármálastofnanir sýna litla samfélagslega ábyrgð og enn minni samfélagslega sýn. Kapp er lagt á að hámarka verðmæti eigna og tekjur án þess að huga að hagkerfi nu í heild eða samfélaginu. Hundraða milljarða hagnaður bankanna þriggja frá því þeir voru endurreistir byggir á stærstu eignatilfærslu lýðveldistím- ans og gífurgjaldtöku. Vaxtamunur er óheyrilegur. BANKARNIR birta fallegar ímyndar- auglýsingar og styrkja margvíslegt málefnið en þeir seilast æ dýpra ofan í vasa viðskiptavina sína og tilgang- urinn virðist helga meðalið. Nýjasta nýtt er að Landsbankinn er farinn að auglýsa sérstaklega endurfjármögnun húsnæðislána eins og vinsælt var fyrir hrun eftir að bankarnir fóru inn á íbú- ðalánamarkað. ÞAÐ SKYLDI þó ekki vera að bankarnir séu nú að reyna að þrýsta þeim, sem tekið hafa óverðtryggð lán, yfi r í verð- tryggð lán að nýju? Vextir á óverð- tryggðum lánum eru í kringum 7%, þó að verðbólga um þessar mundir sé næstum engin, eða nær tvöfaldir á við verðtryggða vexti. Í byrjun er því greiðslubyrði verðtryggðra lána lægri en óverðtryggðra en eftir u.þ.b. 5 ára lánstíma snýst dæmið við miðað við meðalverðbólgu liðinna áratuga. Höfuðstóll verðtryggðra lána hækkar framan af lánstíma öfugt við óverð- tryggð lán og hækkun höfuðstóls geta bankar fært til tekna. EN HVER á að borga þennan ofurhagn- að íslenskra banka inn í framtíðina? Hvernig samfélag er það sem leyfi r bönkum að soga til sín allar ráðstöf- unartekjur almennings og gott betur? Er þar fagurt mannlíf? Er gott að búa þar? Engin samfélagsleg ábyrgð – engin samfélagsleg sýn Avis hyggst opna bílaleigu fyrir styttri ferðir, svokallaða Snattbíla, í bílakjallaranum í Höfðatorgi í kringum næstu mánaðamót. Starfsfólk Höfðatorgs mun geta leigt bílana út. Það verða tíu bílar til að byrja með en í framhald- inu verður verkefnið hugsanlega útvíkkað að sögn Ingigerðar Einars- dóttur, markaðs- og þjónustustjóra Avis. Bílum verði þá fjölgað og þeir leigðir út fyrir aðra en starfsfólk hússins. Nú er unnið að því að leggja loka- hönd á pantanakerfi fyrir þessa leigu. „Fólk þarf að vera skráð inn sem notandi hjá okkur. Þá getur það séð hvenær bíll er laus og bókar svo eftir því hvað þarf, klukkustund, tvær klukkustundir eða heilan dag. Síðan þarf það að skila bílnum aftur á sama stað og hann er tekinn,“ segir Ingigerður en viðskiptavin- ir munu opna og loka bílunum með snjallsímum. Reykjavíkurborg er fjölmennasti vinnustaðurinn í Höfðatorgi en um 400 manns starfa í byggingunni. Reykjavíkurborg hefur sjálf verið með tilraunverkefni með bílaleigu fyrir starfsmenn Reykjavíkurborg- ar í Höfðatorgi og í Ráðhúsinu. „Við erum mjög spennt fyrir þess- ari þróun,“ segir Dagur B. Egg- ertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. „Þetta mun auðvelda fólki að koma til vinnu með öðruvísi ferðamáta en eigin bíl,“ segir Dagur og bætir við að með þessu verði hægt að nýta betur bílakjallarann við Höfðatorg Bílaleiga fyrir stuttar ferðir í Höfðatorgi Avis mun opna bílaleigu í kjallara Höfðatorgs fyrir styttri ferðir starfsfólks byggingarinnar. Reykjavíkurborg er með til skoðunar hvernig útvíkka megi verkefnið og fjölga slíkum bílaleigum. HÖFÐATORG Ingveldur Einarsdóttir segir að verkefnið verði hugsanlega útvíkkað með fleiri bílum sem leigðir verði út fyrir aðra en starfsfólk Höfðatorgs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA og aðra staði þar sem lítið er af laus- um bílastæðum. Reykjavíkurborg er með til skoð- unar hvernig koma megi á fót fl eiri slíkum bílaleigum en starfshópur hjá Reykjavíkurborg mun skila til- lögum þess efnis á næstu vikum. ingvar@frettabladid.is Gengi félaga í Kauphöll Íslands Á UPPLEIÐ Félög sem hækkuðu í verði Á NIÐURLEIÐ Félög sem lækkuðu í verði STÓÐU Í STAÐ Félög sem stóðu í stað MESTA HÆKKUN NÝHERJI 39,8% frá áramótum SJÓVÁ 5,3% í síðustu viku MESTA LÆKKUN BANK NORDIC -3,8% frá áramótum HB GRANDI -2,9% í síðustu viku 9 4 1 Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting Bank Nordic (DKK) 100,00 -3,8% 0,0% Eimskipafélag Íslands 234,00 -1,3% -0,2% Fjarskipti (Vodafone) 40,10 14,6% 2,4% Hagar 44,50 10,0% 4,0% HB Grandi 37,45 10,8% -2,9% Icelandair Group 21,70 1,4% 2,1% Marel 149,00 8,0% 1,7% N1 27,35 1,4% 2,1% Nýherji 7,24 39,8% 4,9% Reginn 14,60 7,7% 2,1% Sjóvá 13,00 8,8% 5,3% Tryggingamiðstöðin 27,95 6,3% 0,4% Vátryggingafélag Íslands 9,40 3,9% -1,5% Össur 425,00 17,7% -1,2% Úrvalsvísitalan OMXI8 1.387,31 5,8% 1,6% First North Iceland Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0% Hampiðjan 25,90 14,6% 3,6% Sláturfélag Suðurlands 1,85 0,0% 0,0% SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi. 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 0 -0 6 0 8 1 4 0 0 -0 4 C C 1 4 0 0 -0 3 9 0 1 4 0 0 -0 2 5 4 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.