Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 22
 | 4 4. mars 2015 | miðvikudagur Hugmyndin að dönsku húsgagna- verslunin NORR11 varð til í árs- lok 2010 og fyrsti sýningarsalurinn var opnaður í Danmörku í nóvember 2011. Frá þeim tíma hefur verslunin vaxið hratt, enda er aðalhvatamað- urinn að baki henni, Jesper Sjølund, vanur maður þegar kemur að hús- gagnaframleiðslu. „Ég hafði verið í húsgagnabransanum áður, að fram- leiða húsgögn í Kína og selja þau á internetinu. Ég sá möguleikana á því hversu góð húsgögn væri hægt að búa til í Kína og ræddi þetta við félaga minn hvort við ættum að búa til okkar eigin hönnun,“ segir Sjø- lund í samtali við Markaðinn. Hugmyndin hafi verið að fram- leiða hágæðahúsgögn en líka á við- ráðanlegu verði. „Síðan fórum við til Kína og ég fór til þeirra framleið- enda sem ég þekkti til þess að sjá hvaða möguleikar væru í stöðunni. Og þannig settum við saman lista yfi r það hvaða húsgögn við vildum framleiða. Eftir það fundum við tvo unga hönnuði í Danmörku sem voru að ljúka námi og kynntum fyrir þeim hugmyndir okkar,“ segir Sjø- lund. Hann segir að það hafi gengið vel að markaðssetja vörur NORR11. „Fólk hefur áhuga á vörunum í Bandaríkjunum, Ástralíu og víðar. Í september 2014 var byrjað að semja við samstarfsaðila um að þeir seldu húsgögnin okkar. Við höfum fengið mjög góða samstarfsmenn og það er víða í heiminum verið að opna sýn- ingarsali,“ segir Sjølund. Síðastliðið sumar höfðu Magn- ús Berg Magnússon og Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir svo samband við Sjølund og vildu opna verslun í New York og á Íslandi. Sjølund seg- ist strax hafa lýst yfi r gagnkvæm- um áhuga og komið hingað ásamt félaga sínum. Það var ákveðið að byrja á því að opna á Íslandi og stefna síðar að opnun í New York. Úr varð að opnaður var sýningarsal- ur á Hverfi s götu, beint á móti Þjóð- leikhúsinu. Ísland var þó ekki fyrsti staðurinn þar sem NORR11 opnaði verslun utan Danmerkur heldur Eistland. „Við erum með tvo sýningarsali í Danmörku, við erum með sam- starfsaðila í Eistlandi, við erum með samstarfsmann í Belgíu, Þýskalandi og Svíþjóð. Það er víða fólk sem vill gerast samstarfsaðilar okkar. En við verðum að fara varlega og gæta þess að við getum annað eftir- spurn,“ segir Sjølund. Það þurfi að sjá fyrir hversu hratt fyrirtækið geti vaxið. Það séu ekki bara ein- staklingar sem séu að kaupa heldur einnig hótel og byggingaverktak- ar þannig að eftirspurnin sé orðin nokkuð mikil. „Verkefnið okkar núna er því að gera lítið fyrirtæki að stóru fyrirtæki. Það er skrefi ð sem er fram undan. En ekki of hratt,“ segir Sjølund. Vörur NORR11 eru hannaðar í Danmörku en framleiddar í Kína, á Englandi og víðar. „Margt sem framleitt er úr viði er gert í Indó- nesíu vegna þess að þeir eru með besta viðinn. Við framleiðum bara þar sem við fi nnum rétt gæði fyrir rétt verð,“ segir Sjølund. Kínverjar séu til dæmis bestir í að framleiða allt með rafmagni, til dæmis lampa og slíka fl ókna vöru. „Þeir eru með bestu vélarnar og tæknina í að framleiða slíkt,“ segir hann. Annað sé réttast að framleiða í Austur-Evr- ópu, Eistlandi, Litháen og Póllandi. En núna sé mestallt framleitt í Indó- nesíu. NORR11 á fjóra sýningarsali og hugmyndin er ekki að fjölga þeim, heldur fjölga samstarfsaðilum sem geti selt vörurnar hver í sínu landi. „Það eru mikil sóknarfæri í Evrópu en það þýðir ekki að við getum ekki líka byrjað í Bandaríkjunum. Ég held því að það séu mikil sóknarfæri fyrir okkur. Það er mikil eftirspurn eftir skandinavískum húsgögnum og skandinavískum hugmyndum. Þú sérð það alls staðar, á öllum svölustu stöðunum í New York, Lundúnum og líka í Berlín. Ég held að það sé möguleiki fyrir okkur til þess að stækka ört í Bandaríkjunum líka,“ segir hann. jonhakon@frettabladid.is Stefna á að opna verslun í New York Húsgagnaverslunin NORR11 hefur vaxið hratt frá því að fyrsta verslunin var opnuð í Danmörku árið 2011. Stofn- andinn, Jesper Sjølund, segir tækifæri felast í Bandaríkjunum. Hins vegar megi fyrirtækið ekki stækka of ört. Á HVERFISGÖTU Magnús Berg og Sól sömdu við Jesper um að opna sýningarsal á Íslandi. Svo er stefnt að því að fara til New York. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eignir slitabús Glitnis banka nema tæplega 963 milljörðum íslenskra króna en kröfurnar nema 2.271 milljarði króna. Búið á því um það bil 42 prósent upp í kröfur. Við það bætast um 80 milljarðar króna sem forgangskröfuhafar hafa þegar fengið greiddar. Neikvætt eigið fé hefur farið úr 1.417 millj- örðum króna í lok árs 2013 í 1.322 milljarða í lok síðasta árs. Þetta kom fram á kynningu á kröfuhafafundi í gær, en glær- ur frá kynningunni voru birtar á vef bankans í gær. Stærstur hluti eigna bankans er handbært fé og samsvarar það 660,5 milljörðum í íslenskum krónum. Næststærsti hlutinn er eign í Íslandsbanka sem nemur tæplega 175 milljörð- um króna. Samtals nema krónueignir 313,6 milljörðum króna. Að frá- dregnum eignarhlutnum í Íslands- banka nema krónueignir því um 138 milljörðum króna. Eignir í evrum samsvara tæplega 232 milljörðum króna og eignir í doll- urum samsvara 163 milljörðum króna. Eignir í norskum krónum samsvara rúmum 99 milljörðum og eignir í breskum pundum 98 milljörðum. „Þessir 313 milljarðar eru okkar hluti í snjóhengjunni,“ segir Krist- ján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis. Ef Íslandsbanki yrði seld- ur fyrir erlent fé þá stæðu eftir 138 milljarðar í íslenskum krón- um sem þyrfti þá að leysa með einhverjum öðrum hætti. „Þess vegna skiptir afar miklu máli að geta selt Íslandsbanka fyrir erlent fé,“ segir Kristján. Kristján segir jafnframt að það sé mikilvægt að átta sig á því að það fé sem er erlendis hefur aldrei komið til Íslands og hefur ekkert með íslenskt efnahagskerfi að gera. Þó það yrði borgað út þá myndi það ekki hafa nein áhrif á Íslandi. - jhh Krónueignir Íslandsbanka nema rúmum 313 milljörðum: Glitnir á 963 milljarða upp í eignir Allir stjórnarmenn í BankNordik hyggjast segja af sér og verður ný stjórn því kjörin á næsta aðal- fundi bankans sem fer fram þann 25. mars næstkomandi á Hótel Færeyjum í Þórshöfn. Bankinn var skráður tvíhliða í Kauphöll Íslands og Kauphöllina í Kaup- mannahöfn árið 2007 og hefur verið skráður þar síðan. Bankinn er með fi mm útibú í Færeyjum, nítján í Danmörku og eitt á Grænlandi. Við starfi stjórnarformanns tekur Stine Boss, sem hefur setið í fram- kvæmdastjórn Nordea, stærsta banka á Norðurlöndunum, og Allianz. Ársreikningur BankNordik var birtur á þriðjudag í síðustu viku. Þar kom fram að rekstr- arhagnaður bankans hefði auk- ist um 47 prósent frá fyrra ári og næmi 157 milljónum danskra króna, eða um 3100 milljónum íslenskra króna. Bættan rekst- ur mátti fyrst og fremst rekja til starfseminnar í Danmörku. Þá var gert ráð fyrir að bank- inn greiddi 20 milljónir danskra króna (um 400 milljónir íslenskra króna) í arð. Rekstrartekjur bankans minnkuðu aftur á móti á síðasta ári, námu 789 milljónum danskra króna, eða tæplega sext- án milljörðum íslenskra króna, sem er sex prósentum minna en árið áður. Starfsmenn bankans eru 506 og hefur þeim fækkað um 106 á þremur árum. „Það kemur alltaf að því, fyrr eða síðar, að það þarf að gera breytingar á stjórn,“ segir Klaus Rasmussen, fráfarandi stjórnar- formaður bankans, í yfi rlýsingu. Hann segir að stjórn bankans hafi setið í nokkuð mörg ár og leitt bankann í gegnum erfi ða fjármálakreppu. Bankinn hafi þróast mikið og náð góðri stöðu á markaði og tvöfaldað stærð sína á sjö árum. - jhh Nýr stjórnarformaður BankNordik með mikla reynslu úr atvinnulífi: Allir stjórnarmenn sögðu af sér Í KAUPHÖLL ÍSLANDS Jan Petersen hefur verið forstjóri bankans um árabil. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HÖFUÐSTÖÐVAR GLITNIS Hlutur bankans í snjóhengjunni er 313 milljarðar íslenskra króna. Það kemur alltaf að því, fyrr eða síðar, að það þarf að gera breyt- ingar á stjórn. Hagnaður verslunarinnar Nínu á Akranesi var 13,5 milljónir króna á síðasta ári og nam salan um 100 milljónum, samkvæmt nýlega birtum ársreikningi. Nína er fataverslun og selur einnig skó og fylgihluti. Hagnaðurinn er um 900 þúsund krónum meiri en hann var árið áður. Eignir fyrir- tækisins námu 63 milljónum um síðustu mánaðamót og jukust um tæpar fjórar milljónir frá árinu áður. Nína Áslaug Stefánsdóttir rak áður verslunina ásamt Daníel Daníelssyni eiginmanni sínum. Árið 2007 tók dóttir þeirra, Helga Dís Daníelsdóttir, við rekstrinum ásamt Heimi Jónassyni eigin- manni sínum. - jhh 100 milljóna velta á Akranesi: Nína skilar 14 milljónum Arion banki hefur gefi ð út skulda- bréf að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 45 milljörðum íslenskra króna. Tilboð bárust frá um 100 fjár- festum fyrir rúmlega 675 milljón- ir evra. Umframeftirspurn var því rífl ega tvöföld. Skuldabréfi n eru til þriggja ára og bera fasta 3,125% vexti, og voru seld á kjörum sem jafngilda 3,10% álagi yfi r milli- bankavexti. „Skuldabréfaútgáfan nú er ekki aðeins mikilvæg fyrir okkur og viðskiptavini okkar heldur einn- ig fyrir efnahagslífi ð hér á landi, þar sem aðgengi að erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum skiptir miklu fyrir áframhaldandi uppbygg- ingu,“ segir Höskuldur Ólafsson. Tvöföld umframeftirspurn: 45 milljarða skuldabréf 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 0 -1 9 C 8 1 4 0 0 -1 8 8 C 1 4 0 0 -1 7 5 0 1 4 0 0 -1 6 1 4 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.