Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 38
USD 133,53 GBP 205,27 DKK 20,43 EUR 149,35 NOK 17,32 SEK 16,14 CHF 139,12 JPY 1,12 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla FTSE 100 6899,85 -40,79 (0,59%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti STJÓRNAR - MAÐURINN @stjornarmadur Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2014 nam 228 milljónum króna í fyrra samanborið við 299 milljónir árið 2013. Hreinar rekstrartekjur námu 1.408 milljónum króna samanborið við 1.354 milljónir árið áður. Rekstrargjöld námu 1.123 milljónum samanborið við 980 milljónir árið áður. Í lok desember voru 18 sjóðir í rekstri og slitum og nam hrein eign þeirra 114 milljörðum. 228 MILLJÓNIR Íslandssjóðir með 18 sjóði Mest viðskipti voru með bréf í Marel í febrúar og námu þau 11,1 milljarði króna. Viðskipti með bréf í Icelandair Group námu 5,4 milljörðum, 3,8 milljarða viðskipti voru með bréf í N1 og viðskipti með bréf í HB Granda námu 3,4 milljörðum. Úrvalsvísitalan lækk- aði um 0,3% á milli mánaða og stóð í 1.377 stigum í fyrradag. Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlut- deildina og nam hún 32,5 prósentum, Arion banki með 20,7% og Íslandsbanki með 20,5%. Í lok febrúar voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 736 milljörðum króna. 11,1 MILLJARÐA VELTA Marel á toppnum Stjórnarmaðurinn fylgdist forviða með fjaðrafoki kringum skip- an framkvæmdahóps um afnám gjaldeyrishaftanna. LÍKT OG STUNDUM virðist loða við á Íslandi má segja að aðalatriðum hafi lítill gaumur verið gefinn. Einkum virðist fólki hafa verið umhugað um þá staðreynd að þrír meðlima hópsins hafi starfað hjá MP banka. Ekki var að finna sérstök rök fyrir áhyggjunum í fréttum af málinu, önnur en þau að skipan sérfræðingana hefði valdið „titr- ingi“ hjá öðrum fjármálastofn- unum og haft var eftir þingmanni að mikilvægt væri að „eyða öllum efasemdum sem tengjast hinum mikil vægu verkefnum nefndar- innar“. Á ENSKRI BLOGGSÍÐU Sigrúnar Davíðsdóttur var þó gengið lengra. Rakin voru ættartengsl forstjóra MP banka og forsætisráðherra, og fundið að því að enginn þriggja lögfræðinga í nefndinni hefði alþjóðlega reynslu. Stjórnarmaðurinn klóraði sér í höfðinu yfir þessum umkvörtun- um, enda fær hann ekki séð að MP banki og starfsmenn hans hafi sér- staka hagsmuni aðra en almennar fjármálastofnanir og landsmenn allir af afnámi haftanna. LANGSÓTT ÆTTARTENGSL manns sem ekki situr í nefndinni og for- sætisráðherra, teljast heldur vart tíðindi í litlu landi. Einkum í ljósi þess að skipan nefndarinnar var á vegum fjármálaráðherra en ekki forsætisráðuneytisins. Loks leiðir stutt Google-leit í ljós að a.m.k. einn lögfræðinganna sem um ræðir hefur starfað við lögmennsku í London um skeið, en slík starfsreynsla er nokkuð fátíð á Íslandi í ljósi staðbundins eðlis lögfræðinnar. Við það má bæta að formaður hópsins er Glenn nokkur Kim, sem hefur áratugareynslu af alþjóðafjármálamörkuðum og hefur m.a. ráðlagt þýska fjármála- ráðuneytinu í tengslum við krísuna á evrusvæðinu. UMRÆÐA um þetta mál hefur einkennst af því sem kalla mætti tortryggni fyrir tortryggni sakir. Það er lágmarkskrafa þegar rætt er um jafn mikilvæg málefni að menn sái ekki efasemdafræjum að óþörfu, og beiti boðlegum rökum. Annars dæmir fólk sig úr leik í opinberri umræðu. AÐ HRÓSA ÞVÍ SEM VEL ER GERT Stjórnarmaðurinn hefur í fyrri pistlum kallað eftir því að innleidd- ir verði, að breskri fyrirmynd, skattafslættir fyrir einstaklinga vegna fjárfestinga í nýsköpun. Fjármálaráðherra hefur nú til- kynnt að frumvarp um slíkt sé í smíðum. Stjórnarmaðurinn hrósar ráð- herra og hlakkar til að kynna sér afraksturinn. Vel gert Bjarni. Tortryggni fyrir tortryggni sakir 02.03.2015 Mér hugnast ekki skotgrafir og ég vil ekki vera þar og ég tel að hagsmunir bænda og hagsmunir verslunarinnar eigi að vera algjörlega þeir sömu. Það eru neytendur sem skipta máli og við eigum að vera þar. Það sem við þurfum að átta okkur á er að það verða alltaf einhverjir verndartollar. Það er alls staðar verið að styðja við landbúnað, eða allavega í okkar samkeppnisríkjum þannig að það verður áfram. Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og þjónustu. 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 0 -0 1 1 8 1 3 F F -F F D C 1 3 F F -F E A 0 1 3 F F -F D 6 4 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.