Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 34
 | 8 4. mars 2015 | miðvikudagur Við töldum að kostnaður félags- ins væri of hár. Við höfðum keypt fimm félög árin þar á undan og töldum að það væri hægt að ná meiri samþætt- ingu í rekstri og aðlaga rekstur betur að stefnu. Ég byrjaði á verð- bréfamarkaði og var einn af verð- bréfaguttnum í byrjun og helgaði mig því en það varð ákveðin breyting árin 2001 og 2002 hjá mér. Ég er ekkert meira hrifinn af evrusamstarfi en dollara- samstarfi en meirihluti af okkar nærviðskiptum er í viðskiptum með evrur. Ég held að það sé klárlega meiri fókus á kjarnareksturinn. Sem er hefðbund- ið íslenskt olíufélag. Eggert Þór Kristófersson, fjármála- stjóri N1, var í síðustu viku ráðinn forstjóri félagsins. Hann tekur við af Eggerti Benedikt Guðmundssyni sem sinnti starfi nu í tæp þrjú ár. Eggert Þór starfaði hjá Íslands- banka og Glitni fram til ársins 2008. Þá gekk hann til liðs við Sjávar sýn, sem er eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, og starfaði þar við fjárfestingar og ráðgjöf. Eggert vann að endurskipulagningu N1 eftir bankahrun og tók við sem fjármálastjóri að því loknu. Eggert segir að miklar breyting- ar hafi verið gerðar á rekstri N1 á liðnum árum. „Ég held að það sé klárlega meiri fókus á kjarnarekst- urinn. Sem er hefðbundið íslenskt olíufélag sem er að reka stöðvar um allt land og þjónusta sjávarútveg, verktaka, iðnað og bændur. Þetta er svolítið svona „back to basics“,“ segir Eggert. Aðspurður segir hann að hefð- bundnar bensínstöðvar séu líka að verða meira eins og þæginda- vöruverslanir. „Svipað og 7-11 sem maður sér erlendis,“ segir hann. Bensínstöðvar séu því orðnar að verslunum sem fólk geti komið við í þegar vantar örfáa nauðsynjahluti og þarf ekki að fara langa leið til að sækja þá. Eggert Þór býst ekki við að hann muni eiga minni tíma afl ögu núna þegar hann er orðinn forstjóri. „Það held ég ekki. Fjármálastjórastarfi ð Fer vikulega í bolta með Svíkingunum Eggert Þór Kristófersson er nýr forstjóri olíufélagsins N1. Hann á að baki langan starfsferil úr bankakerfinu, en söðlaði svo um og hóf störf hjá N1. Eggert er mikill íþróttamaður og spilar fótbolta með félögum úr Ólafsvík. Eddi er mjög metnaðargjarn og hefur alltaf verið mjög vinnusamur. Hann er mikill fjölskyldumaður sem full- orðnaðist snemma, þar sem fyrsta barn þeirra hjóna kom í heiminn þegar Eddi var enn hálfgerður krakki sjálfur, á átjánda ári. Við kynntumst í menntaskóla og vorum síðar saman í viðskiptafræði við Hí. Það er aldrei nein lognmolla í kringum Edda, hann er félagslyndur, skemmtilegur og hress í umgengni. Hann er mikill áhugamaður um íþróttir og þá sérstaklega fótbolta, hans helsti galli er að hann heldur ekki með réttu liðunum. Hann hefði til dæmis getað orðið fyrirmyndar Þróttari en kaus að vera Valsari. Steinar Helgason Hann er hress og skemmtilegur náungi. Alltaf gaman að vera í kringum hann. Hann er vel kvæntur. Hann er aldrei feiminn við að segja sína skoðun og stendur á sínu en að sama skapi kemur hann til dyranna eins og hann er klæddur. Hann er klár og duglegur við að fók- usera á atriðin. Helsti galli hans er sá að hann á mjög erfitt með að mæta á réttum tíma, frekar óstundvís. Hann er mikill fótboltaáhugamaður, Valsari sem er kostur og Manchester-maður sem er ókostur. Helgi Þór Logason VALSARI OG MANCHESTER-MAÐUR er mjög erilsamt. Það er eiginlega jafn erilsamt og forstjórastarfi ð,“ segir Eggert, en tekur þó fram að það sé ný upplifun fyrir sig að vera forstjóri. Eggert Þór er mikill íþrótta- áhugamaður og þó sér í lagi knatt- spyrnuáhugamaður. „Ég er uppal- inn í Ólafsvík og við spilum alltaf saman einu sinni í viku, gamlir Ólsarar. Félagið Víkingur í Ólafs- vík er knattspyrnufélag bæjarins en við köllum okkur Svíkinga, suð- urhluti Víkinganna,“ segir hann. Hann segir að þeir félagarnir hafi spilað saman síðan 1988. „Það er kannski aðeins farið að hægja á okkur en við erum mjög góðir í huganum,“ segir Eggert og bætir við að þeir hittist líka reglulega til að horfa á fótbolta. „Svo á ég fjögur börn og konu þannig að það er nóg að gera í því,“ segir Eggert en hann er giftur Ágústu Dröfn Kristleifsdóttur leik- skólakennara. jonhakon@frettabladid.is MAREL ÁRNI ODDUR ÞÓRÐARSON FORSTJÓRI: Marel er eitt fremsta þekking- ar- og tæknifyrirtæki landsins. Marel fæddist sem hugmynd í HÍ árið 1983 til að auka framleiðni í sjávarútvegi. Í dag er fyrirtæk- ið leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á tækjabúnaði til vinnslu á kjúklingi, fi ski og kjöti. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, tók við starfi nu í nóvember 2013 eftir að hafa verið stjórnar- formaður fyrirtækisins í átta ár þar á undan. Bakgrunnur Árna er í fjármálageiranum en hann stofn- aði síðar Eyri Invest fjárfestingar- félag ásamt föður sínum. Fyrir- tækið breytti um stefnu árið 2005 og seldi öll hlutabréf sín í bönkun- um og fór að einbeita sér að fram- leiðslu- og þekkingarfyrirtækjum eins og Marel, Össuri, Fokker og Stork. Árni Oddur er gestur í nýj- asta Klinkinu. Hvers vegna hættir þú sem stjórnarformaður og tókst við sem forstjóri Marel árið 2013? „Við töldum að kostnaður félags- ins væri of hár. Við höfðum keypt fi mm félög árin þar á undan og töldum að það væri hægt að ná meiri samþættingu í rekstri og aðlaga rekstur betur að stefnu. Stjórnin bað mig um að taka þetta að mér og ég ákvað að láta slag standa.“ Var Theo Hoen ekki að nýta tækifæri til lækkunar kostnaðar? „Ef við horfum á forvera mína þá voru þeir báðir að gera góða hluti. Hörður (Arnarson) sá til þess að við fórum í yfi rtöku á laxaeining- um. Theo sá til þess að við fórum úr óstöðluðum vörum í staðlað- ar vörur. Við töldum að það væri hægt að ná meiri samlegð í sölu og rekstrarkostnaði.“ Þú ert í grunninn fjármálagaur. Hvernig var að fara í hátækniþekk- ingarfyrirtæki? „Ég byrjaði á verð- bréfamarkaði og var einn af verð- bréfaguttunum í byrjun og helgaði mig því en það varð ákveðin breyt- ing árin 2001 og 2002 hjá mér. Ég fór að hugsa þetta upp á nýtt og fór í framhaldsnám til Sviss. Fljótlega eftir það breyttum við stefnunni í Eyrir Invest og fórum frekar að horfa á framleiðslufyrirtæki og nýsköpun.“ Er ekki algengt að forstjórar séu bara fjögur til sex ár við stjórnvöl- inn? „Það er einföld staðreynd að meðallífaldur forstjóra er fi mm til sex ár en það helgast af því að meðallífaldur er 8-10 ár og svo eru margir sem stoppa stutt við. Mið- gildið er kannski 8-10 ár en meðal- talið fi mm til sex ár. Það er öllum fyrirtækjum hollt að breyta.“ Hvað á Ísland að gera í gjald- miðils- og peningamálum eftir höft? „Ég er ekkert meira hrifi nn af evr- usamstarfi en dollarasamstarfi . En meirihluti af okkar nærviðskiptum er í viðskiptum með evru.“ „Verðbréfagutti“ sem sneri sér að alvöru verðmætasköpun Marel var stofnað árið 1983 til að auka framleiðni í sjávarútvegi. Nú er það eitt stærsta fyrirtækið í Kauphöll. FORSTJÓRINN Í lok árs 2013 var ákveðið að Árni Oddur Þórðarson tæki við forstjórastólnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@365.is 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 0 -1 9 C 8 1 4 0 0 -1 8 8 C 1 4 0 0 -1 7 5 0 1 4 0 0 -1 6 1 4 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.