Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 4
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 1.367 krónur kostaði kíló af lambalæri í febrúar. Fyrir tíu árum kostaði kílóið 967 krónur. Verðið hefur hækkað um 41 prósent. Á sama tíma hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um 76 prósent. HEILBRIGÐISMÁL „Þetta getur verið skaðlegt fyrir fólk á þann hátt að það mögulega hafni hefðbundinni meðferð. Það eru dæmi um þetta sem hafa leitt til skaða fyrir sjúklinga,“ segir Gunnar Bjarni Ragnarsson, yfirlækn- ir lyflækninga krabbameina á Landspítala og formaður Félags krabbameinslækna, um mögulega skaðsemi óhefðbundinna lækn- inga. Gunnar segir þá meðferð sem krabba- meinslæknar veita í dag vera gagnreynda, það er, hana er búið að meta með klínískum rannsóknum, vega og meta aukaverkanir gagnvart ávinningi. Slíkar rannsóknir séu mjög langt ferli en óhefðbundin meðöl þurfi ekki að undirgang- ast sambærilegt ferli. „Þetta getur haft milliverkanir fyrir með- ferð sjúklinga, aukið aukaverkanir og minnk- að virkni krabbameinslyfjanna.“ Það þekkist einnig að fólk vilji frekar reynar óhefðbundnar lækningar en hefð- bundnar og afþakki jafnvel hinar hefð- bundnu. „Það eru örfá tilvik þar sem fólk hafnar hefðbundinni læknismeðferð við læknanleg- um sjúkdómum sem urðu síðan ólæknanleg- ir fyrir vikið. Þetta er sjaldgæft en þekkist alveg.“ Gunnar segir að fólk haldi yfirleitt að það hafi engu að tapa. „Ég myndi hiklaust hvetja sjúklinga til að ræða svona hluti við læknana sína. Bara ræða almennt við þá um óhefðbundnar lækn- ingar,“ segir Gunnar. Þar að auki geta ýmsar óhefðbundnar með- ferðir verið mjög dýrar. „Við þekkjum dæmi um að fólk sé að greiða yfir 100 þúsund krónur á mánuði fyrir óhefð- bundnar læknismeðferðir sem er náttúrulega brjálæðislegt. Fólk er oft að eyða milljónum í eitthvað sem er síðan tilgangslaust.“ Gunnar segir þetta einnig vera áreiti fyrir sjúklingana. „Fólk verður oft fyrir miklu áreiti, margir að hringja til að segja frá hinu og þessu og rökstyðja með reynslusögum sem er allt- af hæpið. Þetta truflar oft sjúklinga mikið. Þeim er gefin von um einhver fyrirheit sem ekki er hægt að standa við.“ Gunnar segist hafa rætt svona aðferðir við sjúklinga sína sem eru að hugsa á þessum nótum. „Sumir spyrja út í þetta og hætta við eftir slíkt samtal. Aðrir ekki. Það þarf að ná til fólks með rökum, að þetta geti haft milli- verkanir en síðan veit maður ekki nóg um það af því engar rannsóknir hafa farið fram á þessu.“ Auk alls þessa geta óhefðbundnar læknis- meðferðir einfaldlega raskað lífsgæðum fólks á viðkvæmu stigi í þeirra lífi. „Þau eru að drekka einhverja ólyfjan sem er vond á bragðið og mögulega hætta að borða mat sem þeim finnst góður af engri ástæðu.“ Gunnar segist aldrei banna sjúklingum sínum að fylgja óhefðbundnum læknismeð- ferðum. „En ég mæli gegn því af því að það er ekki búið að sanna að neitt af þessu virki,“ segir Gunnar að lokum. fanney@frettabladid.is Óhefðbundnar lækningar geta minnkað virkni lyfja Krabbameinslæknir segir óhefðbundnar lækningar geta haft milliverkanir fyrir læknismeðferðir og ófyrirsjá- anlegar aukaverkanir. Dæmi eru um að skaði hafi hlotist af fyrir sjúklinga, bæði líkamlegur og fjárhagslegur. VEKUR FALSKAR VONIR Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslæknir hvetur fólk til að ræða óhefðbundn- ar lækningar við lækna sína. Sumar slíkar meðferðir geti vakið falskar vonir en verið til- gangslausar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Við þekkjum dæmi um að fólk sé að greiða yfir 100 þúsund krónur á mánuði fyrir óhefð- bundnar læknismeð- ferðir sem er náttúru- lega brjálæðislegt. Fólk er oft að eyða milljónum í eitthvað sem er síðan tilgangslaust. Gunnar Bjarni Ragnarsson, yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítala. LANDBÚNAÐUR „Maður hélt að riðan væri farin að tilheyra hinum forna fjanda þegar hún stingur skyndilega upp kollinum,“ segir Birgir Hauksson, bóndi í Valagerði í Skagafirði. Riðuveiki greindist í síðustu viku á búi hans og þarf hann að farga öllu sínu fé. Aðeins er um mánuður síðan riða greind- ist á Vatnsnesi. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Fyrir skömmu kviknaði hjá Birgi grunur um riðuveiki í þremur ám og hafði hann samband við dýra- lækni. Kindunum var lógað og sýni send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti nokkrum dögum síðar að um hefð- bundna riðuveiki væri að ræða. Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á átta búum á undanförnum 15 árum en á þessu búi hefur veikin ekki greinst áður. Nú þarf að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreins- un. Birgir segist varla átta sig á því hversu miklar aðgerðir eru í vændum og áfallið mikið. Þetta er í annað skipti á árinu sem upp kemur riðusmit en það hefur ekki greinst riða á landinu frá árinu 2010 og segir í tilkynningu frá Matvælastofnun að þessi nýju til- felli sýni að baráttunni við riðu- veiki sé langt frá því lokið en á níunda áratug síðustu aldar var skorið niður á tugum búa á hverju ári en mjög hefur dregið úr tíðni veikinnar og á undanförnum árum hefur hún aðeins greinst á stöku búum. - kbg Riðuveiki hefur komið upp á átta búum á undanförnum 15 árum í Skagahólfi: Bóndi þarf að farga þremur hundruðum fjár ÁTTUNDA SMITIÐ Riðusmit í Valagerði í Skagafirði er það áttunda á 15 árum í Skagahólfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu greinir frá auk- inni slysatíðni í febrúarmánuði. Fjór tán veg far end ur slösuðust í átta umferðarslys um á höfuð- borgar svæðinu. Tvö um ferðarslys voru til kynnt sunnu dag inn 22. febrú ar og tvö þriðju dag inn 24. fe brú ar. Miðviku dag inn 25. febrú- ar slösuðust þrír og fimmtu- daginn 26. febrúar slösuðust tveir. Laug ar dag inn 28. fe brú ar slösuðust einnig tveir í umferðar- slysi vegna slæmrar færðar. - kbg Umferðarslys tóku toll: Umferðarslys- um fjölgar SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Kanarí Frá kr. 166.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 166.900 á Sevatur Waikiki m.v. 2 í herbergi. 10. mars í 14 nætur Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ENN EIN LÆGÐIN Það hvessir af suðaustri í dag og búast má við stormi eða roki um tíma, einkum á Snæfellsnesi og hálendinu. Hlýnar í veðri og horfur á talsverðri rigningu suðaustanlands síðdegis. Dregur lítillega úr vindi til morguns. -1° 11 m/s 0° 17 m/s 1° 16 m/s 5° 18 m/s Strekk- ingur eða allhvasst, einkum S- og V-til. SV-átt í fyrstu en snýst í SA-átt og kólnar. Gildistími korta er um hádegi 5° 29° 0° 9° 16° 3° 5° 5° 5° 21° 9° 14° 22° 16° 12° 6° 6° 7° 2° 12 m/s 1° 5 m/s 0° 8 m/s -1° 7 m/s 0° 8 m/s 1° 10 m/s -4° 16 m/s 1° 3° 1° 2° 1° 4° 0° 1° -1° 1° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN SELFOSS Sérsveit ríkislögreglu- stjóra var kölluð út í gær vegna konu sem miðaði byssu á gang- andi vegfaranda á Selfossi. „Sonur minn var á leiðinni í leikfimitíma þegar bíll stöðvar fyrir framan hann og kona dregur fram byssu og öskrar á hann bamm, bamm,“ sagði faðir átján ára nemanda við Fjölbrautaskóla Suðurlands í sam- tali við Vísi í gærmorgun. Konan var leidd út úr íbúð sinni í handjárnum um klukkan eitt í gær samkvæmt sjónarvotti. Konan er fædd 1963 og því á sex- tugsaldri. Hún hefur áður komið við sögu hjá lögreglu en síðasta sumar mun hún hafa otað hnífi að fólki á Selfossi. Ekki var um alvöru skotvopn að ræða. - kbg Kona ógnaði vegfaranda: Sérsveit kölluð út á Selfossi SÉRSVEITIN KÖLLUÐ TIL Konan reynd- ist ekki vopnuð. 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 F F -E 8 6 8 1 3 F F -E 7 2 C 1 3 F F -E 5 F 0 1 3 F F -E 4 B 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.