Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR gönguleiðir standast þessa staðla. Það eru Laugavegurinn frá Land- mannalaugum yfir í Þórsmörk, Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk og Víknaslóðir frá Borgar firði eystri yfir í Mjóafjörð. LÉTTA ÁLAGI AF LAUGAVEGINUM Eitt af markmiðum verkefnisins var að varpa ljósi á fleiri göngu- leiðir á Íslandi þannig að hægt sé að létta álaginu á vinsælar leiðir á borð við Laugaveginn. Gísli Rafn segir nokkrar leiðir áhugaverðar. „Þar má nefna Kerlingarfjalla- hringinn. Þar eru gistimöguleikar góðir, þar er tenging við almenn- ingssamgöngur og leiðin er vel merkt. Þá er Pílagrímaleiðin einnig langt á veg komin en hún liggur frá Bæ í Borgarfirði 95 km leið að Skálholti. Þar er búið að merkja leiðina, gistimöguleikar eru góðir og salerni á leiðinni,“ lýsir Gísli Rafn og bendir á að í raun þurfi lítið til viðbótar til þess að þessar leiðir standist sömu staðla og Laugavegurinn. Vonir standa til að verkefnið nýtist stjórnvöldum til stefnu- mótunar og lagasetningar sem miðar að því að koma á vönduðu gönguleiðakerfi á Íslandi. „Hug- myndin að verkefninu var að finna hugmyndir að lausnum enda eru löndin í kringum okkur og víðar, til dæmis Nýja-Sjáland, öll með kerfi og ákveðna staðla um sínar gönguleiðir.“ Verkefni Gísla Rafns, Þjóð-stígar á Íslandi, var þriggja mánaða rannsóknarverk- efni sem hann vann í samvinnu við Ferðamálastofu og Nýsköpunar- sjóð námsmanna síðastliðið sum- ar. Í ritinu eru lögð drög að þróun gönguleiðakerfis fyrir Ísland. Verk- efnið var tilnefnt til Nýsköpunar- verðlauna forseta Íslands 2015. „Í verkefninu var lagt mat á fimmtán gönguleiðir og þróaður gæðastaðall þannig að göngufólk geti vitað að hverju það gengur,“ segir Gísli Rafn og telur upp nokkra staðla sem lengri göngu- leið þarf að búa yfir. „Gerð er krafa um gistingu eða tjaldstæði, salerni í hverjum náttstað, tengingu við almenningssamgöngur, að leiðin sé merkt með stikum eða vörðum til að tryggja öryggi, að upplýs- ingaskilti séu við upphaf og endi hverrar dagsleiðar, að öll stærri fallvötn séu brúuð, að leiðin sé á aðalskipulagi, að ábyrgðaraðili sé skilgreindur yfir leiðinni og að opnunartímabil sé skilgreint.“ Gísli Rafn segir aðeins þrjár ÞRJÁR GÖNGULEIÐIR UPPFYLLA STAÐLA RÁÐSTEFNA Ferðamálastofa, Ferðafélag Íslands og Útivist standa fyrir ráð- stefnu um ferðagönguleiðir á fimmtudaginn undir yfirskriftinni „Stikum af stað“. Fjallað verður um framtíðarskipulag og -þróun lengri gönguleiða. Gísli Rafn Guðmundsson mun kynna verkefnið Þjóðstígar á Íslandi. GÍSLI RAFN GUÐMUNDSSON Ræðir verkefni sitt, Þjóðstígar á Íslandi, á ráðstefnu á morgun. MYND/GVA BORGARFJÖRÐUR EYSTRI Víknaslóðir á Austurlandi, sem liggja frá Borgarfirði eystri til Mjóafjarðar, er ein af þeim leiðum sem uppfylla þá staðla sem settir eru í ritinu: Þjóð- stígar á Íslandi. MYND/GVA LANDMANNALAUGAR Laugavegurinn, frá Landmannalaugum til Þórsmerkur, er afar fjölfarinn og því nauðsynlegt að finna fleiri áhugaverðar gönguleiðir til þess að minnka álagið á hann. MYND/VILHELM Ráðstefnan Stikum af stað fer fram í sal Ferðafélags Ís- lands, Mörkinni 6, þann 5. mars frá klukkan 13 til 17. Ekkert þátttökugjald er en nauðsynlegt að skrá þátttöku. Sjá nánar á www.ferdamalastofa.is. DAGSKRÁ STIKAÐ AF STAÐ 13.00 Ferðamálastjóri setur ráð- stefnuna 13.10 Lukas Stadtherr frá Swiss Mobility. Sú stofn- un hefur það hlutverk að þróa landsnet ferðaleiða í Sviss. Verkefnið hófst 1993 og nú er í Sviss vel þróað net göngu-, hjóla-, línu- skauta- og kanóleiða. 14.00 Stefnumótun og upp- bygging þjóðstígakerfis á Íslandi – Gísli Rafn Guð- mundsson 14.30 Kaffi 15.00 Laugavegurinn – 35 ára uppbygging – Páll Guð- mundsson 15.15 Reykjavegur á Reykja- nesi – Gunnar Hólm Hjálm- arsson 15.30 Þingvellir og þjóðgarðar – erlendar fyrirmyndir – Ólafur Örn Haraldsson 15.45 Dalakofinn – uppbygg- ing á nýju svæði – Linda Udengaard 16.00 Stutt hlé 16.15 Pílagrímaleiðin Bær – Skálholt – Hulda K. Guð- mundsdóttir 16.30 Hornstrandir og Víkna- slóðir – Páll Ásgeir Ás- geirsson 16.45 Lokaorð 17.00 Ráðstefnu slitið P R E N T U N .IS Igennus Pharmepa endurstillir hlutfallið af Omega 3 EPA og Omega 6 og dregur úr bólgumyndun í líkamanum sem er undirliggjandi þáttur varðandi þróun á mörgum lífsstílssjúkdómum. Ég er allt annar maður eftir að ég fór að taka inn Pharmepa Omega 3 EPA frá Igennus og er miklu fljótari að jafna mig eftir æfingar og lengri sund. Auk þess finn ég fyrir mun meiri orku og einbeitingin er betri. Árni Þór Árnason, 44 ára afreksmaður og sjósundkappi Pharmepa Fæst í Heilsuhúsinu, Lyfjaveri, Heilsuveri, Lyfsalanum, Árbæjarapóteki, Urðarapóteki, Heilsutorginu Blómavali, Lyfjavali ogApóteki Suðurnesja Þvílíkur árangur! “ ” 0 3 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 F F -E D 5 8 1 3 F F -E C 1 C 1 3 F F -E A E 0 1 3 F F -E 9 A 4 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.