Fréttablaðið - 04.03.2015, Blaðsíða 46
4. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
lÍs en kus
✓
✓
30% afsl. á svigskíðapökkum
frá miðvikudegi 4. mars. til
og með laugardegi 7. mars.
SVIGSKÍÐADAGAR
LÍFIÐ
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, ísdrottn-
ing og athafnakona, ákvað að hefja
árið með trukki og hefur sagt skil-
ið við kolvetni og hvítvín í fimm
vikur.
„Ég sem sagt ákvað að taka þátt
í lífsstíls átaki hjá Þorbjörgu Haf-
steinsdóttur og Gló í Fákafeni.
Hún er með námskeiðið Tíu árum
yngri á fimm vikum og ég er að
fylgja sérstöku matarprógrammi
þar sem er eiginlega ekkert um
kolvetni en rosa mikið af hollri
fitu,“ segir Ásdís glöð í bragði.
Hún ber mataræðinu vel sög-
una og segist líða þrælvel. „Ég er
ekkert að pína mig þannig og er
ekkert svöng,“ segir hún og bætir
við að hún snerti ekki við hrís-
grjónum, brauði og öðrum afurð-
um sem innihalda kolvetni. „Ég er
miklu orkumeiri og er ferskari á
morgnana, ekkert slen og engin
þyngd yfir manni. Maður verður
bara rosalega ferskur,“ segir hún
ánægð með árangurinn.
Ásdís er mikil hvítvínskona
og segir mestu áskorunina við
mataræðið fólgna í því að sleppa
köldu hvítvínsglasi með góðri mál-
tíð. „Að geta ekki gripið í hvítvín-
ið með einhverjum góðum mat
er svolítið erfitt. Ég er búin með
sex daga og það eru alveg þrjátíu
eftir, ég vona að ég nái að halda út
í þennan tíma.“
Á morgnana drekkur hún sér-
stakt kaffi. „Þegar ég vakna á
morgnana fæ ég mér kaffi, set
eina matskeið af kókosolíu, eina
matskeið af smjöri og smá bút af
kakósmjöri út í. Þannig að ég er að
drekka alveg massafullt af fitu á
morgnana,“ segir Ásdís hress.
Hún segir kaffið betra en hún
bjóst við í fyrstu. „Það er fínt, ég
bjóst ekki við að þetta yrði drekk-
andi en svo er þetta bara feitt og
djúsí kaffi. Á að næra mann að
innan og ég á að líta út fyrir að
vera tuttugu og fimm eftir fimm
vikur,“ segir hún og skellihlær.
„Á fimmtudaginn byrja ég svo
á djúskúr hjá Gló í sjö daga og fæ
þar sex kaldpressaða drykki á
hverjum degi úr ýmsu góðu græn-
meti og ávöxtum. Þetta verður
eflaust strembið en ég hlakka til
að sjá afraksturinn og breytingu á
líkamanum.“
Það er nóg um að vera hjá Ásdísi
þessa dagana en í gær opnaði hún
vefsíðuna sína, Icequeen.is þar
sem birtast munu ýmsar frétt-
ir úr daglegu lífi fyrirsætunnar,
„beauty tips“, heilsupistlar, mynd-
bönd og annað skemmtilegt. Í gær
birti hún mynd af sér þar sem hún
lék eftir mynd af Kim Kardashian
West þar sem sú síðarnefnda ber-
aði á sér bossann. „Þetta er bara
svona í takt við nútímann og hvað
á ég að segja, öld sjálfsmyndanna.“
gydaloa@frettabladid.is
Ásdís Rán kveður hvítvínið og
kolvetnin í heilar fi mm vikur
Fyrirsætan og athafnakonan tekur þátt í lífsstílsátaki og fer á sjö daga djúskúr. Í gær opnaði hún nýja heimasíðu.
ENGIN KOLVETNI Ásdís Rán tekur þátt í lífsstílsátaki í fimm vikur.
1 stór laukur (smátt
saxaður)
smjör
3-4 tsk. karrýmauk
4 hvítlauksrif, pressuð
1 ½ dós niðursoðnir
tómatar
5 dl kjúklingasoð (vatn
og 2 kjúklingateningar)
1 lítil dós tómatpurée
½ lítri rjómi
1 stór dós niðursoðnar
ferskjur
3 kjúklingabringur
Bræðið smjör og
karrýmauk í potti og
bætið lauknum í. Látið
laukinn mýkjast við
vægan hita. Bætið
tómötum, tómatpurée,
kjúklingasoði, hvítlauk
og rjóma saman við og
sjóðið við vægan hita í
rúmlega 10 mínútur.
Skerið ferskjurnar
smátt niður og bætið
út í ásamt safanum.
Látið sjóða áfram í
aðrar 10 mínútur.
Skerið kjúklingabring-
urnar smátt og steikið
á pönnu upp úr smjöri.
Saltið með maldonsalti.
Bætið kjúklingabitun-
um út í súpuna og látið
hana sjóða í 5 mínútur
til viðbótar.
Uppskrift fengin af
Ljufmeti.com
Girnileg súpa með
kjúklingi og ferskjum
Það er auðvelt og fl jótlegt að skella í þessa gómsætu
kjúklingasúpu sem smakkast vel með nýju brauði.
Að geta ekki
gripið í hvítvínið
með einhverjum
góðum mat er
svolítið erfitt.
Save the Children á Íslandi
NAGLI Jennifer Lawrence mun fara
með hlutverk stríðsljósmyndarans.
Óskarsverðlaunahafarnir Jenni-
fer Lawrence og Steven Spiel-
berg hafa gengið frá samningi við
Warner Bros og munu þau vinna
saman að kvikmynd um stríðsljós-
myndarann og Pulitzer-verðlauna-
hafann Lynsey Addario.
Myndin verður byggð á sögunni
It’s What I Do: A Photograph er‘s
Life of Love and War, sem Addario
skrifaði árið 2008 um reynslu sína,
eftir að hafa myndað í stríðinu í
Afganistan í kjölfar árásarinnar
11. september. Hefur Addario nú
þegar fundað með handritshöfund-
um og Spielberg og mun hún verða
þeim innan handar við gerð mynd-
arinnar.
Spielberg og
Lawrence í
eina sæng
0
3
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
F
-F
C
2
8
1
3
F
F
-F
A
E
C
1
3
F
F
-F
9
B
0
1
3
F
F
-F
8
7
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K