Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 4
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ALÞINGI Valdníðsla, meirihátt- ar stjórnskipunarkrísa og svik eru á meðal orða sem þingmenn stjórnarandstöðunnar notuðu til að lýsa þeirri stöðu sem upp er komin gagnvart Evrópusam- bandinu. Alþingi var undirlagt í gær af umræðu um málið og var öðrum málum frestað, meðal ann- ars umræðu um tolla á franskar kartöflur. Loft var lævi blandið í þinginu og mikill hiti í fólki. Ekki bætti úr skák að framan af fundi voru allir ofnar á blússandi hita og gluggar lokaðir, þar sem vetrarstillingin var enn í gangi. Með tiltölulega auðveldum aðgerðum tókst að kæla hið raunverulega andrúms- loft, en pólitíska andrúmsloftið var enn á suðupunkti þegar þing- fundi lauk um sexleytið í gær. Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra átti að sitja fyrir svörum í óundirbúnum fyrir- spurnum, en boðaði forföll. Aðrir ráðherrar þurftu því að svara fyrir stefnuna. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra dró enga dul á hve ánægður hann væri með bréf Gunnars Braga. Hann minnti á að í þingmálaskrá ríkisstjórnar- innar hefði aðeins verið talað um að hugsanlega kæmi fram þings- ályktunartillaga um ESB. Mikil samskipti hefðu verið við sam- bandið um málið og út úr þeim hefði komið „niðurstaða sem er auðvitað, þegar öllu er á botninn hvolft, hin augljósa besta niður- staða í málinu, þ.e. að ljúka þessu á sem jákvæðastan hátt gagnvart Evrópusambandinu, ef svo má segja, gera þetta í góðu.“ Árni Páll Árnason, formað- ur Samfylkingarinnar, var hins vegar harðorður í garð Sigmund- ar Davíðs, sakaði hann raunar um að rjúfa drengskaparheit sitt. „Hann er orðinn ber að því að ganga á svig við það heit sem hann hefur undirritað, dreng- skaparheit að stjórnarskránni, sem felur í sér að hæstvirtur for- sætisráðherra þarf að virða þing- ræðisregluna og á ekki í sam- skiptum við önnur ríki að búa til leiðir til að halda ákvörðunum frá Alþingi Íslendinga.“ Sérstök umræða fór fram í gær um stöðu Alþingis og yfir- lýsingu forseta. Í dag er munnleg skýrsla utanríkisráðherra á dag- skrá þingsins. kolbeinn@frettabladid.is SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ 31 stóra eða meðalstóra fiskihöfn er að finna hringinn í kringum landið. Uniq 4202 Glæsilega hannaður og vandaður sturtuklefi. Auðveldur í uppsettningu FRÁBÆR GÆÐI / GOTT VERÐ Töluverður tími fór í umræður um fundarstjórn forseta og Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, var skammaður fyrir að hafa ekki haldið þingfund á föstudag þótt yfir þriðj- ungur þingmanna hefði krafist þess. Einar bar af sér sakir og vísaði meðal annars til efnis bréfsins umrædda. „Því taldi forseti það einfaldlega betra fyrir þá umræðu sem kallað var eftir að hún færi fram síðar þegar fyrir lægi með skýrari hætti um inntak bréfsins.“ Þurfti að skýra inntak bréfsins betur Brigslað um svik og svínarí Hiti var í þingmönnum í gær vegna ESB-mála. Stjórnarandstaðan sakar stjórnina um valdníðslu og brot gegn þingræðinu. Forsætisráðherra sagður svíkja drengskaparheit. Besta mögulega leiðin, segir forsætisráðherra. SAMSTIGA Forsætisráðherra telur bréf utanríkisráðherra bestu mögulegu leiðina í ESB-málinu. „Meirihlutinn ræður,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í umræðum í gær, við lítinn fögnuð minnihlutans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá BLESSUÐ BLÍÐAN Nú er fólk hvatt til að nýta lognið og góða veðrið í skemmtilega útivist áður en næsta lægð kemur. En það verður fínasta veður á landinu þar til seint á morgun en þá gengur í stífa suðaustanátt með úrkomu suðvestan til í fyrstu. 0° 4 m/s 3° 3 m/s 3° 2 m/s 4° 4 m/s Vaxandi SA-átt síðdegis. 5-13 m/s. Gildistími korta er um hádegi 12° 30° 5° 16° 17° 7° 15° 8° 8° 20° 14° 15° 15° 11° 14° 15° 9° 15° 3° 3 m/s 3° 6 m/s 2° 3 m/s 3° 2 m/s 2° 2 m/s 3° 2 m/s -2° 3 m/s 2° 5° 0° 3° 3° 3° 0° 5° -1° 3° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FIMMTUDAGUR Á MORGUN STJÓRNMÁL Viðskiptaráð telur að verklag utanríkisráðherra við að draga til baka umsóknina að ESB sé hættulegt fordæmi og auki enn á þann stjórnmálalega óstöðugleika sem ríkt hafi síðan haustið 2008. Þá er það mat Viðskiptaráðs að þrátt fyrir tilkynningu utanríkis- ráðherra sé staða aðildarumsókn- ar Íslands enn óbreytt og að vinnu- brögð sem viðhöfð voru í málinu séu gagnrýniverð. Ef stjórnvöld vilji slíta aðildarviðræðum við Evr- ópusambandið þurfi að fylgja hefð- bundnu stjórnskipulagi og stjórn- málalegum hefðum. Viðskiptaráð hafði áður samþykkt ályktun um að best væri að gera hlé á aðildarvið- ræðum við ESB þangað til í lok kjör- tímabilsins. Það myndi skapa sátt til að vinna að byggja upp efnahagslíf- ið og ná sátt á vinnumarkaði. Þá minnir Viðskiptaráð á að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sé fast kveðið á um að stjórnin muni leitast eftir að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn sundur- lyndi. - srs Viðskiptaráð fordæmir léleg vinnubrögð stjórnvalda vegna viðræðuslita: Bréf til ESB hættulegt fordæmi GUNNAR BRAGI SVEINSSON Viðskipta- ráð gagnrýnir ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Hann er orðinn ber að því að ganga á svig við það heit sem hann hefur undirritað, drengskapar- heit að stjórnarskránni, sem felur í sér að hæstvirt- ur forsætisráðherra þarf að virða þingræðisregluna. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar. ÖRYGGI Neyðarlínan ætlar að endurmeta viðbúnað 112 eftir það ástand sem ríkti síðastliðinn laugardag þegar 1.400 símtöl bár- ust vegna óveðursins. Þegar mest lét reyndu yfir 500 að hringja á sama tíma en á tímabili voru mörg dæmi þess að símsvari Neyðarlínunnar segði: „Þetta númer er ekki til.“ Neyðarlínan segir í tilkynn- ingu vegna málsins þetta vera röng skilaboð úr kerfum síma- félaganna en um var að ræða að allar tengingar voru yfirfullar vegna álags. Vinna símafélögin nú að því í sameiningu að greina orsakir og að tryggja að ástandið endurtaki sig ekki. - bo, vh Kerfið bilaði í óveðrinu: 112 greinir orsakir bilunar NEYTENDAMÁL Mælingar á ill- gresiseyði, skordýraeitri og öðrum varnarefnum í matvælum í Evr- ópusambandinu, Íslandi og Nor- egi sýndu að langflest, eða um 97 prósent, matvæla voru með varnarefnaleifar undir leyfilegum mörkum. Þetta kemur fram í niðurstöðu samræmdrar eftirlitsáætlunar Evrópusambandsins sem Ísland tekur þátt í. Á Íslandi voru tekin 242 sýni af ávöxtum og grænmeti árið 2013, bæði af innlendri afurð og innfluttri. Í heildina voru tekin 81.000 sýni í 29 ríkjum. - srs Reglur um varnir skila sér: Skordýraeitur undir mörkum GRÆNMETI Mælingar á Íslandi sýna lítið magn varnarefna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ATVINNUMÁL Stéttarfélag lög- fræðinga hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls til að knýja á um gerð kjarasamnings milli félagsins og ríkisins. Þetta kemur fram í tölvuskeyti sem sent var til félagsmanna í dag. Atkvæðagreiðslan verður leyni- leg og þar með ópersónugreinan- leg. Kosningin verður rafræn og stendur frá klukkan tólf mánu- daginn 16. mars til klukkan tólf fimmtudaginn 19. mars. - sks, vh Efna til atkvæðagreiðslu: Lögfræðingar í verkfall? 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -D D 6 8 1 4 2 5 -D C 2 C 1 4 2 5 -D A F 0 1 4 2 5 -D 9 B 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.