Fréttablaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 8
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 67 89 2 Frá kr. 99.900 Páskar á Kanarí Hotel Waikiki Frá kr. 199.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 199.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 24. mars í 13 nætur. Rey Carlos Frá kr. 159.900 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 159.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 24. mars í 13 nætur. Eugenia Victoria Frá kr. 149.900 m/hálft fæði innifalið Netverð á mann frá kr. 149.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 182.900 m.v. 2 ful- lorðna í herbergi. 24. mars í 13 nætur. Walhalla Frá kr. 99.900 Netverð á mann frá kr. 99.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 139.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 24. mars í 13 nætur. SÉRTILBOÐ RÚSSLAND Vladimír Pútín Rúss- landsforseti steig fram í sviðs- ljósið í gær að nýju eftir tíu daga fjarveru. Fjölmiðar fylgdust með þegar hann tók á móti Almazbek Atambajev, forseta Kirgisistans, í Kreml. Síðast sást hann opinberlega 5. mars þegar hann hitti Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu. Enga skýringu gaf hann á fjar- verunni, en sagði að lífið væri harla leiðinlegt ef ekki væri fyrir kjaftasögurnar. Breska dagblaðið The Inde- pendent hafði samt eftir rúss- neskri fréttastofu að að forsetinn hefði verið með flensu. Austur- rískt dagblað segir hann aftur á móti hafa verið í Vínarborg þar sem hann hafi verið í meðferð hjá lækni vegna bakverkja. Kvöldið áður hafði Pútín vakið athygli vegna ummæla sinna í nýrri rússneskri heimildarmynd, sem gerð var í tilefni þess að nú er eitt ár liðið frá því Krímskagi var innlimaður í Rússland. Og þar gegndi Pútín lykilhlutverki, rétt eins og hann sjálfur skýrir fúslega frá í myndinni sem frum- sýnd var í rússnesku sjónvarpi á sunnudagskvöld. „Krímskagi: Leiðin heim,“ heitir myndin og Pútín líkir þar Krímskaga við Kosovo, svæði sem Serbar misstu á endanum úr greipum sér þrátt fyrir örvænt- ingarfullt stríð til að koma í veg fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis. „Krímskagi er ekki bara eitt- hert landsvæði í okkar huga,“ segir Pútín í myndinni. „Sögu- lega séð er hann rússneskt land- svæði,“ og vísar til þess að Krímskagi hafi tilheyrt Rúss- landi þangað til Stalín ákvað árið 1954 að setja hann undir Úkraínu. Enda tilheyrði Úkraína hvort eð er Sovétríkjunum á þeim tíma. Pútín sakar Bandaríkjamenn um að bera ábyrgð á stjórnar- byltingu öfgamanna í Kænugarði, sem hafi orðið til þess að íbúar Krímskaga vildu segja skilið við Úkraínu. Bandaríkjamenn hafi reynt að fela sig á bak við Evrópuríki, en Pútín segist hafa séð í gegnum þann blekkingarleik: „Við viss- um að á bak við tjöldin voru það hinir bandarísku vinir okkar sem raunverulega voru heilinn á bak þetta.“ Hann segir Rússa ekki hafa viljað fara út í stríð: „Ekki vorum það við sem frömdum valdarán, heldur voru það þjóðernissinn- arnir og fólk með öfgaskoðanir.“ Hins vegar hafi hann verið reiðu- búinn að grípa til hvaða aðgerða sem er til að bjarga rússnesk- um íbúum Krímskaga, jafnvel að beita kjarnorkuvopnum: „Við vorum reiðubúnir til þess.“ gudsteinn@frettabladid.is Sakar Bandaríkin um Úkraínustríðið Pútín Rússlandsforseti steig fram í sviðsljósið í gær eftir tíu daga fjarveru og sagð- ist hafa gaman af kjaftasögunum. Í nýrri heimildarmynd lýsir hann aðdraganda innlimunar Krímskaga og viðurkennir fúslega að hafa gegnt þar lykilhlutverki. BROSIR BREITT Pútín Rússlandsforseti gaf engar skýringar á fjarveru sinni þegar hann hitti forseta Kirgisistan í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA DANMÖRK Börn í Danmörku, þau yngstu sex ára, setja myndir og hreyfimyndir af sér á netið. Í sumum tilfellum er um kynferðis- legt efni að ræða, hefur Kristilega Dagblaðið eftir ráðgjafanum Gitte Jakobsen hjá samtökunum Red Barn et. Hún segir mörg börn stofna aðgang á samfélagsmiðlum eins og Facebook og Instagram, jafnvel þótt aldurstakmarkið sé 13 ára. Vitnað er í skýrslu Internet Watch Foundation í Bretlandi sem berjast gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum á netinu ásamt Microsoft. Þar segi að 17,5 prósent af 3.803 hreyfimyndum og myndum á netinu með kynferðislegu innihaldi sem rannsakaðar hafi verið séu gerð af börnum 15 ára og yngri. 7,5 prósent af 10 ára börnum og yngri. Sífellt fleiri börn birta slíkar myndir. Langflestar myndanna eru af stúlkubörnum. Ein myndanna er af sjö ára stúlku sem afklæddi sig fyrir framan vefmyndavél fyrir óþekktan notanda á síðu þar sem fólk skiptist á hreyfimyndum. - ibs Rannsókn á hreyfimyndum og öðrum myndum sem börn setja á netið: Sex ára birta af sér nektarmynd SAMFÉLAGSMÁL Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar um málefni innflytjenda og útlendinga á Íslandi er innanríkisráðuneytið hvatt til þess að ljúka sem fyrst heildarendurskoðun laga um mál- efni útlendinga. Þar kemur fram að Ríkisendur- skoðun telji að stjórnvöld þurfi að framfylgja betur stefnu sinni og lagaákvæðum um málefni innflytjenda. Í skýrslunni er fjallað um málefni innflytjenda og útlendinga á Íslandi. Innanríkisráðuneytið annast þau málefni útlendinga sem varða dvöl þeirra og búsetu hér á landi og jafnframt mál hælisleitenda. Velferðarráðuneytið og stofnanir þess annast á hinn bóginn málefni innflytjenda auk þess að sinna málefnum flóttamannahópa og atvinnumálum útlendinga. Að mati Ríkis- endurskoðunar felast ýmsir annmarkar í þess- ari tvískiptingu. Meðal annars telur stofnunin að afgreiðsla dvalar- og atvinnuleyfa útlendinga sé flóknari og tímafrekari en hún þyrfti að vera þar sem við afgreiðslu mála þurfi báðar þessar stofnanir að koma að. Telur Ríkisendurskoðun að af þessu hljótist kostnaður fyrir ríkið sem hægt væri að minnka með einföldun stjórnsýslunnar. Kannað verði hvort rétt sé að færa málaflokkinn undir eitt ráðuneyti og einfalda stofnanakerfið. - vh Ráðuneyti hvatt til að ljúka endurskoðun laga um málefni útlendinga: Vilja einfalda stofnanakerfið SAMFÉLAGSMIÐLAR Sífellt fleiri börn birta af sér nektarmyndir á samfélags- miðlum. NORDICPHOTOS/AFP INNANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Í skýrslunni kemur fram að afgreiðsla dvalar- og atvinnuleyfa sé flóknari og tímafrekari en hún þyrfti að vera. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Krímskagi er ekki bara eitthvert land- svæði í okkar huga. Sögulega séð er hann rússneskt landsvæði. Vladímír Pútín Rússlandsforseti. 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -E C 3 8 1 4 2 5 -E A F C 1 4 2 5 -E 9 C 0 1 4 2 5 -E 8 8 4 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.